Vísir - 02.12.1967, Blaðsíða 1
(
VISIR
57. árg. - LáiTgárdagur 2. desamber. 1967. 278. tbl.
Vann 40 skákir —
gerði eitt jafntefli
Skáksambandib sendir skákmenn til bess
a<5 tefla fjöltefli úti á landi
Vetrarstarfsemi taflfélaganna
er sem óöast að komast á skriö.
Taflfélag Reykjavíkur hefur nú
til skiptis á laugardögum fjöl-
tefli og skákæfingar fyrir ung-
llnga f félagsheimilinu viö
Grensásveg. Seinasta laugardag
tefldi Guðmundur Sigurjónsson
skákmeistari T.R. fjöltefli á 41
boröi og vann fjörutíu skákir,
en gerði eitt jafntefli. Þykir
þetta frábær árangur hjá Guð-
mundi. 1 dag verður skákæfing
á vegum T.R. í félagsheimilinu.
Leiðbeinandi verður Bragi Krist-
jánsson, æfingin stendur frá
tvö til flmm og er ætluð ungl-
ingum. Næsta laugardag verð-
ur svo fjöltefli fyrir unglinga
og teflir þá Gunnar Gunnarsson.
Skáksamband íslánds ætlar
að gangast fyrir fjöltefli í bæj-
unum hér í nágrenninu í vetur
og mun sambandi leita til helztu
skákmanna okkar til þess að
sækja staðina heim þeirra er-
inda. Verða fjöltefli þessi eink-
um ætluð unglingum. Friðrik
Ólafsson mun byrja þessa fjöl-
teflisdagsskrá í Kópavogi núna
á morgun. Teflt verður í Sjálf-
stæöishúsinu og byrjað klukkan
tvö. — Næst mun Friðrik svo
tefla í Hafnarfirði að likindm
og síöan veröa aðrir skákmenn
fengnir til þess að tefla á Akra-
nesi, í Keflavík, Selfossi og
jafnvel víðar.
Akurnesingar og Vestmanna-
eyingar tefldu nýlega simskák
og lyktaöi henni með sigri
Skagamanna 7 vinningar gegn
þremur.
Bökunarkeppnin:
Sú yngsta vann —
bakaði rúgbrauðstertu
Úrslitin í bökunarsamkeppni
Pillsburys voru tilkynnt í gær-
dag, en fyrstu verðlaun hlaut
frú Bryndís Brynjólfsdóttir,
Tryggvaskála, Selfossi fyrir upp
skrift sína á Rúgbrauðstertu. —
Bryndís er yngst þeirra, sem
tóku þátt í úrslitakeppninni, eða
21 árs gömul. Hún hlýtur í verð-
laun ferð til Bandaríkjanna með
Loftleiðum og aö auki hrærivél
og kaffikvöm, sem allar þær er
til úrslita kepptu fengu einnig.
Við töluðum lítillega við frú
Bryndísi eftir að henni höfðu
verið veitt verðlaunin og kvaðst
hún vera mjög hissa á úrslitun-
um. „Það var eiginiega hann
pabbi, sem sagði mér að senda
uppskrift í keppnina," sagði hún.
„Það er um það bil ár síðan ég
byrjaði að baka þessa köku, en
upphaflega fékk ég uppskriftina
hjá vinkonu minni og síðan hefi
ég breytt uppskriftinni dáh'tið,'1
sagði Bryndís. Dómarar í keppn-
inni voru þau Guöbjörg Birkis,
húsmæðrakennari, Tryggvi Þor-
finnsson, skólastjóri, Matsveina-
og veitingaþjónaskólans og Sig-
urður Jónsson bakarameistari.
SniókarHnn
sitjondi
„Halló! Er þetta Vísir?"
„Þetta er á Vísi — Já“.
„Heyrðu! Ég heiti Hafdís og
mig langaöi að vita hvort þið
vilduð taka mynd af snjókarl-
inum okkar. Hann er gasalega
stór og feitur".
„Já, — ja, hvað er hann
stór?“
„Hann er miklu stærri en
pabbi minn og miklu feitari,
samt er pabbi minn stór og
feitur. Og hann er með hatt.“
„Hvar áttu heima, vinkona?"
„Otrateig 22. Ætlarðu þá aö
taka mynd af snjókarlinum
okkar?"
Við brugðum snögglega við
og ókum inn á Otrateig og þar
blasti við okkur þessi lika
myndarlegi snjókarl, með rönd-
óttan stráhatt, tölur og munn
og nef. Reyndar fannst okkur
efri hlutinn óeölilega stór miðað
við þann neöri, en ekki stóð á
útskýringunum hjá bömunum.
„Sko, hann situr". sögðu þau.
mm
Jólasveinarnir komu í
gær. — Meira efni fyrir
börnin á bls. 3 í Myndsjá
Hafdís, Rut, Guörún, Ragnar og Helga með sjókarlinn sinn.
Fólkið beið en ekkert skeði
— þegar sjósetja átti tv'ó skip / gær
Það ver snjómugga í lofti og flug-
hálka á Hafnarfjarðarveginum, þeg-
ar blaðamaöur og ljósmyndari óku
til Stálvfkur um miðaftan i gær.
Tilefni feröarinnar var væntanleg
sjósetning tveggja fiskiskipa, sem
smíðuö hafa verið í Stálvik. Margar
bifreiðir stóðu á hlaði skipasmíða-
stöðvarinnar og gestir tfndust inn í
risastóra byggingu stöðvarinnar.
Þegar inn kom var margt um
manninn og nokkuð stórmenna, svo
sem sjávarútvegsmálaráðherra og
ritstjóri Morgunblaðsins. Það er
ekki á hverjum degi að 350 og 380
tonna fiskiskipum er hleypt af
stokkunum í einu í skipasmíðastöö
hér á iandi og eru minni tíðindi
gerð að frétt í blöðum og útvanpi.
Pljótlega kom í Ijós, að það skipið,
sem innandyra stóð, mundi ekki á
sjó fara þennan dag. Menn voru
að festa hliðarskrúfur á skipið fram
anvert. Hitt skipið stóð feröbúið
utan dyra, kampavínsflaska á palli
og verið að brenna sundur festing-
ar. Stöðugur strauniur karla og
kvenna, barna og unglinga var út
og inn um dyrnar og beið hinnar
hátíölegu stundar, að sjá kampa-
vínsflösku brotna á kinnungi, nafn
afhjúpað og ? ? ? ? KE 37 renna
tignarlega á haf út, þar sem tveir
dráttarbátar biðu þess ag taka hiö
nýja skip í tog inn á Reykjavíkur-
höfn.
En tíminn leið án þess nokkuð
skeði. Menn krúnkuðu sig saman
í smáhópa og ræddu málin. For-
stjórinn, ráðherrann og ritstjórinn.
Blaðamaðurinn, fréttamaðurinn og
ljósmyndarinn. Jársmiðurinn, skipa
smiðurinn og rafvirkinn. Og frúm-
ar hér og þar innan um. Nokkru
álengdar stóðu krakkar úr nágrenn-
inu og köstuðu snjóboltum á kinn-
ung skipsins og kampavínsflaskan
beið með snæri bundið um hálsinn1
. En ekkert skeði.
Loks kvisaðist það út, að skipiö
mundi ekki á sjó fara þennan dag.
Lóðsaramir þorðu ekki að draga
það fyrir Skerjafjörðinn í þessu
veðri og fólk fór að tínast heim.
En hvað skyldi hafa oröiS um
kampavínsflöskuna?
Danirnir í gæzlu-
vardhaldi meðan
mól þeirra er
ronnsakað
Rannsókn í máli Dananna
tveggja, sem handteknir voru um
síðustu helgi fyrir nauðgun á 16
ára stúlku, stendur enn yfir en
stúlkan kærði verknáðinn til yfir-
valdanna. Þeir sitja nú báðir í
gæzluvarðhaldi, 30 daga hvor.
Þeir hafa báðir verið yfirheyrðir
og einnig stúlkan og liggur nú fyr-
ir játning þeirra beggja um að
hafa barið stúlkuna. Sá yngri, sem
er 19 ára, hefur viöurkennt, að
hann hafi haft kynmök við stúlk-
una, meðan hún var miður sín af
ótta eftir barsmíðina.
V erð á þor skblokkum hækkandi
á Bandaríkjamarkaði
Samið um sölu á 25 jbús. tonnum af hraÓfrystm fiski til Rússlands
næsta ár i Moskvu næstu daga
Undanfarnar vikur hef-
ur opinbert verð á hrað-
frystum þorskblokkum
á Bandaríkjamarkaði far
ið nokkuð vaxandi, er
nú 24—25 sent fyrir
hver pund, en var í árs»
byrjun 21—22 sent. —
Þetta virðist benda
til þess, að heims-
markaðsverð á hrað-
frystum sjávarafurðum
geti farið vaxandi á
næstunni, en verðbreyt-
ingar á þorskblokkum
sýna nokkuð hvert verð-
breytingar leita.
Fyrir veröfallið, sem varð á
hraðfrystum sjávarafurðum
seinni hluta árs 1966, var pund-
ið á hraðfrystum þorskblokkum
komið upp I 30 sent ag
hafði verið í því verði f eitt ár
u. þ. b. Lengi áður rokkaði verð-
ið á bilinu 25—27 sent pundið
og þvl veröið á þessum afurðum
Islendinga að þokast í rétta átt
aftur, ef sama þróun helzt og
verið hefur undanfarið. Ekki
er vitað til, að sama verðþróun
hafi átt sér á öðrum markaðs-
svæðum lslands.
Samningar um sölu hrað-
frystra sjávarafurða ti*l Rúss-
lands á næsta ári standa nú
fyrir dyrum og halda sölustjórar
sölusamtaka hraðfrystihúsanna,
SÍS og SH, utan næstu daga til
Moskvu. Rammasamningur Is-
lands og Rússlands gerir ráð fyr
ir árlegri sölu á 15 þús. tonn-
um af frystum flökum, 5 þús.
tonnum af heilfrystum fiski og
5 þús. tonnum af heilfrystri sfld.