Vísir


Vísir - 02.12.1967, Qupperneq 8

Vísir - 02.12.1967, Qupperneq 8
8 VÍSIR Utgefandi: Blaðaútgaxan vlöu» Kramkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: AxeJ rhorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgk Pétursson ‘ Augiysingástjóri: Bergþór Oltarsson Auglýsingar: ÞinghoItsstrætJ 1, simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 Unur) Askriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 7.00 eintakið Pren'oi^iðjr Visis — Edda hJ. Verr farið en heima setið l>að er almannarómur, að stjórnarandstaðan hafi iengið hina smánarlegustu útreið í útvarpsumræðun- um um vantraustið á ríkisstjórnina. Vitaskuld vissu stjómarandstæðingar að vantrauststillagan mundi verða felld, én þeir vildu nota sér þetta tækifæri til þess að koma gagnrýni sinni á framfæri við alþjóð. En þa$ er almennt álit, að þar hafi verið verr farið en heima setið. Einkanlega voru hrakfarir Eysteins Jónssonar herfilegar. Hann þrástagaðist á því, eins og hann hefur gert undanfarið, að undirrót efnahagserfiðleik- anna sé röng stjórnarstefna. Hann lætur enn sem hann viti ekki um verðfallið og aflabrestinn. Þá lýsti Eysteinn mikilli vanþóknun á vexti verð- bólgunnar, sem hann kvað hafa grafið grunninn und- an íslenzkum atvinnuvegum og lamað kaupmátt laun- anna. En hann gleymdi að geta þess, að hann hefur sjálfur gert allt sem i hans valdi hefur staðið til þess að koma í veg fyrir að þær ráðstafanir, sém gerðar hafa verið til þess að stöðva verðbólguna, bæru á- rangur. Hann hefur beitt flokki sínum til hvers konar skemmdarverka og gengið þar feti framar en komm- únistar. Og allt þetta hefur hann gert til þess að valda ríkisstjórninni erfiðleikum og reyna, að komast sjálf- ur í ráðherrastól. Allt háttemi Eysteins Jónssonar ber vott um á- byrgðarlausa valdabaráttu og sjúklega löngun til þess að komast í ríkisstjóm. Nú þykist hann vera á móti gengislækkun. Það þóttist hann líka vera árið 1950, eins og hann var minntur á í umræðunum. Þá báru Framsóknarmenn fram vantraust á minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins, sem vildi leysa efnahagsörðug- leikana með gengislækkun. Þetta vantraust var sam- þykkt. Og hvað gerðist svo? Líklega em ýmsir búnir að gleyma því. Framsókn myndaði samstundis stjórn með Sjálfstæðisflokknum og felldi með honum geng- ið, nákvæmlega eins og Sjálfstæðismenn höfðu lagt til í upphafi! Þetta mun vera, eins og Emil Jónsson sagði í út- varpsumræðunum, „einstætt í allri þingsögunni, að flokkur, sem ber fram vantraust á annan, myndi svo þegar í stað stjórn með þessum flokki, sem hann hafi fengið sámþykkt vantraust á“. Þetta er sígilt dæmi um „heilindi“ Framsóknar í stjómmálabaráttunni. Og ekki hafa þeir batnað síðan 1950. Það er áreiðanlega rétt, sem sagt var við þá í umræðunum núna, að „það hefði verið lítill vandi að fá þá til að samþykkja gengislækkunina. Líklega hefði einn ráðherrastóll dugað“, — handa Eysteini — og „enginn vafi að tveir hefðu verið fullnægjandi“! Reynslan hefur sannað að Framsókn er alltaf til kaups fyrir völd. V í SIR . Laugardagur 2. desember 1967. Brottflutnlngur brezkra hersveita gekk slysalaust, en haft var eftir brezkum ráðherra kvöldið fyrir seinasta brottfarardaginn: Vig liggjum á bæn, að ekkert komi fyrir á seinustu stundu. Og brezku hermennimir vom vel á verði seinasta daginn — og allt fór vel. Lokið þætti í nýlendusögu Er sá þáttur raunverulega forleikur að nýjum hættum? ENN HEFUR bætzt við ríki I tölu hinna sjálfstæðu rikja heims, og eins og svo mörg önn- ur fengu þeir, sem það byggja, sjálfstæði sitt úr hendi Breta. Þar með lauk enn einum kapí- tula í sögu hins mikla brezka nýlenduveldis — og vonandi rætist ekki sú spá, sem gat að líta í erlendu blaði, og var þess efnis, að þessi kapítuli kunni einnig að reynast hættulegur for leikur að þvi sem gerast kann á komandi tíma á sviðl heims- mála. T>é£t er aö rifja upp i örstuttu 1 máli, að það kom æ betur í ljós á þeim tíma sem liöinn er síðan stjóm Wilsons tók við völdum fyrir 3 árum, að stefnt var ag því að hverfa sem allra fyrst með herafla og herbúnað og annað frá Aden, vegna á- forma tengdum spamaði á út- gjöldum til landvama, og vegna þess að innanlandsástandið var í rauninni orðið öþolandi, og sí- fellt ráðizt á Breta> og þeim kennt um allt sem miður fór eða þegar þjóðemissamtökin NFL og FLOSY voru ekki aö berjast innbyrðis. Brezka stjórn- in kaus að fara með gát, en hvik Með tilkomu hins nýja hús- næðis T.R. og Skáksambands íslands opnast miklir möguleik- ar til eflingar þróttmikils skák- lífs í höfuðborginni. Enda hefur eitt skákmótið rekið annað, frá því að húsið var öpnað. Nú í desembermánuði em fyrirhuguð tvö hraðskákmót. Fyrra mótið verður haldið sunnudaginn 10. desember kl. 2 e. h. og dagana 27. og 28. desember verður hið árlega jólahraðskákmót T.R. haldið. Verður keppt í undan- úrslitum fyrri daginn, en seinni daginn til úrslita. Eins og kunnugt er, tryggöu sér rétt til þátttöku í næsta kandidatamóti þessir skákmenn. V. Kortsnoj og E Geller Rúss- landi, Bent Larsen Danmörku, L. Portisch Ungverjalandi og S. Gligoric Júgóslavíu. Eitt sæti er þá eftir að skipa og keppa þeir L. Stein Rússlandi, V. Hort Tékkóslóvakíu og S. Reshevsky Bandaríkjunum um það. Keppni þeirra fer fram í febrúar n. k. aði ekki frá áforminu um að fara og tók þaö hyggilega skref, að vekja ábyrgðartilfinningu hinna þjóðemissinnuðu leiðtoga með því að bjóða þeim upp á viðræður um samninga. Þangað komu leiðtogar þeirra þjóðemis- sinna, sem sterkari vom (NLF eða National Liberation Front), en Flosy-samtöikin neituðu að og hóta andspymu þeirri stjóm, sem nú hefur verið mynduð að fengnu sjálfstæði, við forustu Quantan al-Shaabi, aðal samningamanns NLF 1 Genf, en hann var útnefndur forseti eftir heimkomuna þaðan og fengið fullt forsetavald í hendur, þar til lokig væri stjómarmyndun — en hann var búinn að mynda stjóm innan 12 klukkustunda og er sjálfur forsætisráðherra, í Bandarikjunum. Verður keppn- in áreiðanlega jöfn og tvísýn, þó gera megi ráð fyrir að Stein sé> einna sigurstranglegastur. Einn sigursælasti skákmeist- ari sem nú er uppi, Viktor Kortsnoj hefur þó aldrei kom- izt í færi viö heimsmeistara- titilinn í skák. Má ætla eftir hina góðu frammistöðu hans i millisvæðamóti að Kortsnoj sæki fast að kórónu Petroshans. Hér sjáum við Kortsnoj leggja stórmeistarann D. Minic Júgó- slavíu að velli. Hvítt: Minic. Svart: Kortsnoj. Fröhsk vörn. 1. e4 e6 . 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 BcR+ 6. bxB Re7 7. Dg4 Dc7 8. Dxg Hg8 9. Dxh cxd Frh. á V 10. Hann er 47 ára. Ekki hefur allt faHið í ljúfa löð milli Breta og NLF, því að óleyst er deila um hversu miklu skuli nema brezk efnahagsaðstoð og hve lengi Suður-Yemen-lýðveldið, en svo heitir hið nýja riki, skuli njóta hennar. Hinn nýi forseti hefur boðað einsflokkskerfi og sterka sam bandsstjóm, hlutleysi í alþjóða deilum og umsókn að félagsskap Sameinuðu þjóðanna. v Það má með sanni segja, eins og sagt er í grein um þessa at- burði, að eftir mörg mistök hafi ekki verið um það eitt að ræöa fyrir Breta, að komast þannig hjá þvi, að þeir héldi áliti sfnu á yfirborðinu, heldur raunvera- lega um það, aö komast burt með herinn áöur en til stórkost- legra, blóðugra átaka kæmi. NLF-samtökin sigraðu Flosy með því, að stofna „sellur“ í samtökum þeirra — og rufu svo samstarf við þau samtök 12. des. 1966, en f átökunum síðan hafa NLF-menn gengið með sig- ur af hólmi. Nasser reyndi fyrir nokkra aö sætta leiðtoga NLF og Flosy, en það mistókst. Oft hefur verið talið, að Plosy-menn vildu fram- ar öllu vera vinir Egypta og njóta stuönings þeirra, og oft litið á þá sem Nassers-menn, en þótt NLF tæki sjálfstæöari stefnu og sigraði, er þar með ekki sagt, að þeir séu andvígir Nasser, og Egyptaland hefur þeg ar viöurkennt hið nýja ríki, írak og Alsír. Vitanlega veröur engu spáð um þá erfiðleika, sem Flosy nú kann að valda. Hiö nýja riki er fátækt. Segja. má, að Aden-borg hafi lifaö á brezka setuliðinu. Mörg verkefni bíða. Óvissa er mikil.- Efnahagsleg geta til meiri stufjnings en búið er að lofa er takmörkuð. Og stuöning þarf landig að fá. En hvar — hjá hinum oliuauðugu Arabaríkjum? Sovétríkjunum? Timinn leiðir það í ljós, en Ad- en án aðstoðar gæti aftur orðið það, sem hún var 1839, er Tyrk- ir hypjuðu sig: Fámennt þorp. Það er hú hægt að flytja lið — mikið lið landa milli — heims álfa milli — loftleiöis á skömm- um tfma. Hemaðarlega var Ad- en ekki eins mikilvægt og áður — ekki eins og þó mikilvægt — en Bretum finnst að þeir eigi enn mikið að verja á nálægum hjara, þar sem eru olíuauðug smáríki undir þeirra vernd Og því er brezk flotadeild á fram úti fyrir ströndum hins nýja ríkis Suður-Yemen, hvaðan eflaust er litið hýram augum til olíulindanna inni f Persaflóa. a. | Skákþáttur Vísis ! t t * * W I

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.