Vísir - 28.12.1967, Page 3
VÍ'S'I’R. Fimmtudagur 28. desember 1968.
Billy lygari (Hákon Waage) og kærustumar hans tvær: Anna Guðmundsdóttir og Guðrún Guð-
laugsdóttir
Amraan (Jónína Jónsdóttir) og mamman (Auður Guðmundsdóttir).
Siguröur Skúlason og Guðrún Guölaugsdóttir í hlutverkum sínum.
Leikstjórinn, Eyvindur Erlendsson, ræöir við þau Hákoi, Waage og Sigrúnu Bjömsdóttur.
TTngir leikarar! Þetta virðist
^ hljóma eins og skammar-
yrði í eyrum borgaranna---------
Ungt leikhús, nútímaleikhús, til-
raunaleikhús ... allt saman stór-
varasamt og heilsuspillandi!
Félög ungra leikara hafa átt
erfitt uppdráttar hér í Reykja-
vík, hvernig sem á því stendur.
„Leikhús æskunnar" datt upp
fyrir, Gríma hefur barizt í bökk-
um við lélega aðsókn í nokkur
ár.
Það má því kallast bjartsýni
hjá ungu fólki, sem útskrifað-
ist úr leiklistarskólum leikhús-
anna I fyrra að opna enn tvö
,,ung leikhús" upp á náð eða
ónáð almennings, annað I Tjarn-
arbæ, hitt I Lindarbæ.
★
Myndsjáin er í dag með öðr-
um þessum hópi. Leikflokkur
litla sviðsins kalla þau sig og
eru öll útskrifuð úr Þjóðleik-
hússkólanum í vor sem leið.
Þau byrjuðu starfsemina í
haust með tveimur einþáttung-
um af ólíku efni, ,.Yfirborðiö“
og „Dauði Bessie Smith". Kevin
Palmer setti leikina á svið. Sýn-
ingarnar urðu átta og aðsókn
að þeim sæmileg, enda er flokk-
urinn bjartsýnn á næsta verk-
efni, sem frumsýna á nú I byrj-
un janúar,. „Billy lýgari” eftir
Keith Watérhouse og Willis
Hall.
Það var rétt fyrir jól, að við
litum inn á Lindarbæ. Billy lyg-
ari var I slæmri klípu á svið-
inu, sem var víst ekki sú eina
í leiknum. Allt út af kvennafari
hans, hún ríður sannarlega ekki
við einteyming í honum kven-
semin honum Billy lygara, frek-
ar en aðrir hans lestir. Hann er
erfiður sonur og ótrúr elskhugi.
Það er Hákon Waage, sem leik
ur titilhlutverkið. Ástkonur hans
af ýmsum gráðum leika þær
Anna Guðmundsdóttir, Guörún
Guölaugsdóttir og Sigrún-Björns
dóttir. Móðurina leikur Auður
Guðmundsdóttir, ömmuna Jón-
ína Jónsdóttir, föðurinn Jón
Gunnarsson. Sigurður Skúlason
fer auk þess með hlutverk í
leiknum, en hann hefur þýtt
„Billy lygara“.
★
Leikstjórinn, Eyvindur Er-
Iendsson, bregður upp nokkrum
atriöum úr leiknum, þau eru
endurtekin hvað eftir annað, eitt
hvað mátti betur fara. Það vant-
ar í þetta það og það, meira
af þessari stemmningu eða
hinni. Þannig er verið að snur-
fusa og velta fyrir sér hlutunum
allt fram undir frumsýningu. Þá
er búið aö finna lausn á flestum
vanda, ekki einu hugsanlegu
Frh. á bls. 13.
Billy lygari
&i? " '* :' v • -*M*T>;Vt v »