Vísir - 10.01.1968, Qupperneq 13
VlSIR. Miðvikudagur 10. janúar 1968.
13
Það vandaðasta verður
ávallt ódýrast.
Kynnið yður uppbygg-
ingu DANFOSS hita-
stillta ofnventilsins áð-
ur en þér veljið önnur
tæki á hitakerfi yðar.
Konsúllinn í Jóhannesarborg
Hr. ritstjóri!
T Tndirritaður áskrifandi dagblaðs-
ins Vísi er einn þeirra, sem
ekki trúðu sínum eigin augum,
þegar þeir lásu fréttina um skipan
íslenzks „konsúls" i Jóhannesar-
borg. Sú skipan hefur verið gagn-
rýnd m. a. i Þjóðviljanum og
Morgunblaðinu. Einhverra hluta
vegna hefur Vísir talið sér skylt
að verja þetta embættisverk hlut-
aðeigandi ráðherra. Ég vil ekki að
óreyndu trúa þvi, að eina ástæðan
sé sú, að Vísir birti viðtal við hinn
nýbakaða „konsúl" þ. 12. des. s.l.;
a. m. k. virðist mér fráleitt að dag-
blöð telji sér skylt að taka sið-
ferðilega ábyrgð á öllum þeim,
sem þau birta viðtöl við. Mættum
við fá meira að heyra?
Mér er ekki kunnugt um að Vísir
hafi birt neinar leiðréttingar né
skýringar á þessu viðtali, fyrr en
Hilmar Kristjánsson var útnefndur
fulltrúi íslenzku þjóðarinnar í Jó-
hannesarborg. Af því dreg ég þá
ályktun, að allt í viðtalinu sé rétt
eftir haft. í þessu viðtali eru tvenn
ummæli, er sýna svart á hvítu,
að þessi maður er allsendis óhæfur
sem fulltrúi íslenzku þjóðarinnar
og skipan hans i slíkt embætti ekki
bara mistök hlutaöeigandi ráð-
herra, heldur vægast sagt afglöp.
Hilmar Kristjánsson lætur þess
getið í viðtalinu, að hann hafi valið
sér hiö nýja föðurland eöa hvað
maður á nú að kalla það, að vand-
lega hugsuðu máli. Manni leyfist
því að álykta að dvöl hans þar sé
atf honum hugsuð til frambúðar.
En — og hér kemur hið stóra en,
— hann vill ekki gerast þegn
þessa lands. Hann tilgreinir eina
aðeins eina — ástæðu til þessa.
Suðurafríkanskt vegabréf hefur
sums staðar viss óþægindi í för með
sér. Hann vill sem sé njóta allra
þeirra gagna og gæða, sem landið
honum einhverjum óþæg-
indum. Svona hugsunarháttur er
hvorki runninn updan þessari né
hinni skoðuninni á stjómmálasvið-
inu; hann er annars eðlis og á sér
sín heiti.
En hvað um ríkið í norðri, hvers
vegabréf Hilmar Kristjánsson vill
af þægindaástæðum halda í.
Blaðamaðurinn Þráinn Bertelsson
telur sig hafa „enga ástæðu til að
draga í efa vilja hans né getu til
að verða ættjörð sinni til gagns
og sóma“. Þetta kemur hvergi
Danfoss hitastýrður ofnlöki er lykillinn
að þagindum
VELJIÐ AÐEINS
ÞAÐ BEZTA
fram í viðtalinu! Það hlýtur því að
skoðast sem eftirá tilbúningur
blaðamannsins og afgreiðist sem
slíkt. Hilmar Kristjánsson lætur
hvergi í það skína að hann vilji
gera íslandi handarvik til gagns
eða sóma. Þvert á móti
telur hann óbúandi í landinu fyrir
sig og sína líka og kveðst munu
í framtíðinni forðast það eins og
heitan eldinn. Aðeins vegabréfið
vill hann varðveita, af fyrmefndum
ástæðum. Það væri napurt háð að
óska Suður-Afríku til hamingju
með þennan nýja fósturson.
Hr. Þráinn Bertelsson lætur þess
getiö, að þetta „konsúls“embætti
hafi verið veitt Hilmari Kristjáns-
syni „af þeim, sem almenningur
íTandinu hefur falið vald til slíkra
hluta“. Ég vil í fyllsta bróðemi
benda þessum blaðamanni á, að
almenningur kýs ekki ríkisstjóm,
heldur þing, og þingið myndar síð-
an ríkisstjóm, en embættisverk
ráðherra eru á ábyrgð ráðherra
eins og einskis annars, og þau eru
sem betur fer ekki ennþá hafin
yfir gagnrýni almennings. Ég tel
þetta embættisverk óhæfu, og verði
hér ekki gerð lagfæring á, skal
hlutaðeigandi ráðherra krafinn
skila á þeim vettvangi, þar
sem ráðherrar verða að standa
reikning gjörða sinna. Pólitískar
skuldir einstakra ráðherra við ein-
hverja ákveðna liðsmenn sína
skulu ekki mótmælalaust verða
greiddar með þjóðarheiöri.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ólafur Haukur Ólafsson,
læknir.
Óskast strax
Þriggja herbergja íbúö meö húsgögnum (sem næst
miðbænum). Upplýsingar í síma 16115.
Húsmæður
í Árbæjarhverfi og nágrenni
Get tekið börn í gæzlu á aldrinum 3-5 ára. Uppl. í
síma 19366 kl. 6 —8 í dag.
börn af 59, sem slösuðust í umferðinni í
Reykjavík á s.l. ári, voru 6 ára og yngri.
Á morgun tekur til starfa umferðarskóHnn „UNG-
IR VEGFARENDUR“. Skólinn er bréfaskóli, og er
þátttaka heimil öllum bömum í Reykjavík, Kópa-
vogi, Hafnarfirði, Garðahreppi, Seltjamarneshreppi
og Mosfellssveit, á aldrinum 3, 4, 5 og 6 ára, for-
eldrum þeirra að kostnaðarlausu.
1 vetur munu þau böm, sem gerast þátttakendur,
fá.tvær til þrjár sendingar frá skólanum, og auk
þess smá gjöf á afmælisdaginn.
Þátttökueyðublöð liggja frammi á morgun og föstu-
dag í mjólkurbúðum og öðrum þeim verzlunum,
sem selja mjólk á höfuðborgarsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir fræðslu- og upplýs-
ingaskrifstofa umferðamefndar Reykjavíkur, sími
83320.
Eyvindur, Una Collins og Arnar komin til Akureyrar til þess að
setja upp Gísl.
= HÉÐINN =
^^VÉ^VERZLUN-S!MI^426^^^
ir Seinni hluta vetrar er jafna
blómatími leikhúsanna hér i
borg. Átta leiksýningar eru nú
í gangi í Reykjavík.
Lei'kfélag Reykjavíkur sýnir:
Indíánaleik, franskættaöan
gamanleik, sem gerist raunar í
„Villta vestrinu — Snjókarl-
inn okkar, nýtt íslenzkt bama-
leikrit, sem Oddur Bjömsson
samdi í samvinnu við böm úr
Myndlistarskólanum — Koppa-
logn — Tvo einþáttunga í
gamansömum tónum eftir Jón-
as Ámason, alþingismann og
rithöfund. — Auk þess er í
uppsiglingu hjá Leikfélaginu
nýtt leikrit eftir Jökul Jakobs-
son og Hedda Gabler Ibsens.
Þjóðleikhúsið sýnir.
Jeppa á Fjalli þann kunna
heimagang í islenzku leiklistar-
lífi og eitt vinsælasta verk Hol-
bergs — I'talskan stráhatt,
gáskafullan gamlan, enskan
gamanleik — Þrettándakvöld,
einn kunnasta gamanleik
Shakespeares — Auk þess er
von á íslandsklukkunni á fjal-
ir Þjóðleikhússins,
„Leikflokkur Litla sviðsins",
sem er eins konar útibú frá
Þjóðleikhúsinu sýnir Billy lyg-
ara í Lindarbæ. Það leikrit var
frumsýnt i London fyrir fáum
ámm og hefur hlotið góðar
viðtökur víða.
Auk þess er í uppsiglingu hjá
„Litla Leikfélaginu", sem er
hins vegar útibú frá Leikfélagi
Reykjavíkur, Ieikþáttur eftir
Bergman, með meim, í Tjamar-
bæ. Þessir tveir siðamefndu
leikflokkar em nýmæli í leik-
listarlífi borgarinnar, en þá
skipa verðandi leikarar, sem út-
skrifuðust úr leikskólum leik-
húsanna í vor sem leið.
Mikið líf er auk þess I leik-
listinni úti um land. Þarf raun-
ar ekki að fara lengra en til
Kópavogs, þar em „Sexumar"
(Boeing Boeing) gamanleikur að
vestan, sýndar með miklu fjöri.
Akureyringar munu auk þess
vera að hressa upp á leiklist-
arlíf sitt með því að setja upp
Gísl, sem kunnur er af sviði
Þjóðleikhússins frá því á ámn-
um. Aðalhlutverkið fyrir norð-
an mun enginn annar en Amar
Jónsson leika, en hann gat sér
einmitt fyrst frægðarorð sem
leikari í sýningu Þjóðleikhúss-
ins á þessu kunna írska stykki.
Leikstjóri verður Eyvindur Er-
lendsson og leikbúnað sér Una
Collins um. Virðast Akureyr-
ingar ætla að vanda vel til
þessarar sýningar.
II
_’f.