Vísir - 19.01.1968, Blaðsíða 8

Vísir - 19.01.1968, Blaðsíða 8
8 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristiánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands í lausasölu kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda hf. Heilbrigðiseftirlit ]\fargir halda, að þingmenn geri ekki annað en að þjarka um pólitík á Alþingi og að allt þeirra starf sé frekar þarflítið. Þetta er misskilningur. Mikill hluti þingstaifa er fólginn í að fjalla um almenna umbóta- löggjöf, sem allir geta verið sammála um, að sé nauð- synleg. Á liðnum áratugum hafa sífellt aukizt verkefni Al- þingis í ópólitískri umbótalöggjöf, og þrefið hefur horfið æ meira í skuggann. Þessi þróun tók töluverð- an kipp, þegar núverandi stjórnarsamstarf hófst fyrir um það bil átta árum. Ríkisstjórnin hefur verið sér- staklega iðin við að hlaða á þingmenn almennum um- bótafrumvörpum. Á hverju þingi hefur hún lagt fram frumvörp að umfangsmiklum lagabálkum. Svipuð undirbúningsvinna einkennir flest þessi frumvörp. Fyrst gerir ríkisstjórnin sér ljósa þörfina á samningu laga um ákveðið efni, ýmist að eigin frum- kvæði eða að frumkvæði áhugamanna og áhugahópa. Sérstök nefnd sérfræðinga er skipuð til að fjalla um málið og semja síðan frumvarp til laga. Ríkisstjómin endurskoðar síðan frumvarpið og leggur það fyrir Al- þingi. Þessi fmmvörp eru yfirleitt sérstaklega vand- lega unnin. Nokkur slík frumvörp hafa verið lögð fyrir Alþingi í þessari viku. Þeirra viðamest er frumvarp heilbrigð- ismálaráðherra um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sem marka mun alger tímamót í þeim efnum, ef það verður samþykkt. Fmmvarp þetta er þannig til komið, að heilbrigðis- yfirvöld hafa haft þungar áhyggjur af ástandinu í þessum efnum. Löggjöf um hollustuhætti og heil- brigðiseftirlit er nú bæði úrelt og hefur ekki verið framfylgt. Lítið samræmi er í lögum og reglum um þessi efni. Heilbrigðisfulltrúar em of fáir. Almennu hreinlæti er víða ábótavant, sérstaklega í meðferð neyzluvöm. í marz s.l. skipaði heilbrigðismálaráðherra fjögurra manna sérfræðinganefnd til þess að endurskoða öll þessi mál og semja um þau lagafmmvarp. Nefndin hefur starfað mjög vel og gengið frá frumvarpi því, sem lagt var fyrir Alþingi í vikunni. í því em mörg nýmæli. Gert er ráð fyrir, að stofnað verði sérstakt heilbrigðis ef tirlit ríkisins á vegum land- læknis, og hafi það umsjón með heilbrigðiseftirliti á öllu landinu. Þessari nýju stofnun er falið mikið vald, til þess að heilbrigðiseftirlitið megi verða sem virk- ast. Þá em ströng ákvæði um skyldu sveitarfélaga að hafa heilbrigðisfulltrúa. Einnig er í frumvarpinu gert ráð fyrir, að gefin verði út heilbrigðisreglugerð fyrir allt landið. Oft er hljött um ljöggjafarstarf af þessu tagi. En í slíkri löggjöf em oft stigin stærstu framfaraskrefin. V í S I R . Föstudagur 19, janúar 1968. ^ Félag fslendinga í London. Jólatrésskemmtun, fimmtudaginn 28. desember 1967, aö: „The Danish Club“, í Knightsbridge. Jólasveinn: Bjöm Bjömsson. Hjá íslendingum í London ,Hin árlega jólatrésskemmtun Félags íslendinga í London, var haldin að „The Danish Club“ Knightsbridge, fimmtudaginn 28. desember síðastliðinn. Þátttakendur voru um 90 böm og fullorðnir. íslenzkir jólaleikir og sálmar. Gengið kringum jóla- tréð. Jóhann Tryggvason var við píanóið. „UNCLE“ (trúðleikari) skemmti bömunum, en jöla- sveinn (Bjöm Bjömsson) gekk með bömin kringum jólatréð og gaf þeim síöan gjafir, sælgæti og blöðmr. Þessar jólatrésskemmtanir fé- lagsins byrjuðu 1948 og verður því sú tuttugasta haldin næst- komandi jól, 1968. Mörg af „börnunum" sem þátt tóku i fyrstu jólatrésskemmtuninni, em nú fullorðin og gift og koma með sín eigin böm. Þetta er orðinn einn af aðal- liðum í skemmtanastarfi félags ins og verður svo óefað áfram- haldandi, ef dæma má eftir hinni stöðugu og góðu þátttöku í jóla- trésskemmtununum. Ársafköst skipsins jafnmikil og ver tíðarafköst íslenzkra frystihúsa Tjróun markaðsmála hefur valdiö íslenzkum sjávarút- vegi þungum búsifjum. Seinasta reiðarslagið er sölusamningur fslendinga og Rússa um fisk- kaup, sem verið er aö ganga frá um þessar mundir. Kemur þaö einkum niður á hraðfrystiiðn- aðinum, sem þegar er lamaður vegna markaðsörðugleika og getur eins og nú standa sakir ekki starfað við gildandi fisk- verð — nema stórkostlegir styrkir komi til. Mörg viðskiptalönd okkar hafa stóraukið fiskframleiöslu sína, ekki sízt á frystum fiski. Bretar og Þjóðverjar hafa til dæmis haldið úti stórum verk- smiðjutogurum og fryst óhemju magn af fiski um borð f þeim. — Rússar hafa stóraukið veiðar sfnar á flestum sviöum. Rússar eru nú að smíða risa- skip, sem á trúlega fáa eða enga sína líka í fiskveiðiflota heims. Þetta er 43 þúsund lesta verk- smiðjuskip og móðurskip. Vo- stok heitir það, er í smíðum í Admiralteislcy-skipasmfðastöð- inni í Leningrad og verður til- búið á næsta ári. Þetta skip á að geta skilað 21 þúsund lestum af frosnum f'ski á einu ári. Til samanburð- ar má geta þess að framleiðsla Islendinga á frosnum fiski á tímabilinu janúar—júní 1967 var 29 þúsund lestir. Liggur því við að þetta eina skip Rússa sé fært um að afkasta vetrar- vertíðarframleiðslu allra hrað- frystihúsa okkar. Auk þess á þessi fljótandi risayerksmiðja aö geta framleitt 20 milljónir dósa af niðursoðnum fiski, svo og mjöl og lýsi eftir þörfum. Vostok mun flytja meö sér á miðin 14 litla togara, sem eiga að fiska í skipið. Þetta verða litlir togarar úr „fiber- glassefni" og veröur fimm- manna áhöfn á hverjum þeirra. Þessir „fiberglass“-togarar veröa ýmist aö veiöum eða á sínum stað á dekki móðurskips- ins, en það á ekki að taka nema mínútu að vippa þeim um borö með sérstökum lyftitækjum. Og þetta er ekki eina nýjung- in um borð í Vostok. Þar verða einnig þrjár þyrlur, sem notað- ar verða við leit að hentugum fiskimiðum. Þessi gífurlega tækniþróun í fiskveiðum Rússa lofar ekki beinlínis gulli og grænum skóg- um hvað snertir sölu islenstks fisks í Sovétríkjunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.