Vísir - 02.03.1968, Side 3

Vísir - 02.03.1968, Side 3
VÍSIR . Laugardagur 2. marz 10^8. La Bostella og Jenka voru vinsælustu dansarnir á grímuballinu, enda höfðu börnin öll lært þá hjá He rmanni. .Bráðum koma breyttar reglur, börnin eiga að muna þær" — sungu börnin á grimuballi hjá Dansskóla Hermanns Ragnars ”Eitt spor til vinstri og eitt ■^spor til hægri.“ Þessi orð óm uðu á móti okkur er viö gengum upp stigann á Hótel Sögu, og þegar við vorum komin upp í Súlnasalinn blasti nú heldur en ekki skrautleg sjón við okkur. Þama var nefnilega grímubali. Það fyrsta sem við sáum var ævintýraprinsessa í bláum silki- kjól, við hlið hennar stóð Mikki mús og arabískur soldán með kvennabúrsmey í ökklasíðum bux um. stóö þarna álengdar. Dans- gólfið liktist eiginlega helzt skreyttum jólaglugga tilsýndar, en þegar við komum nær sáum við að þetta voru allt saman grimuklædd böm, 4—6 ára göm- ul, sem vom þama að dansa. Og uppi á pallinum stóð Her- mann Ragnars og stjórnaði, en börnin eru öll nemendur hans í dansskólanum. „Og nú syngjum við ví'suna um hægri-umferðina,“ segir Her- mann uppi á pallinum. „Þiö vit- ið öll hvað er hægrl og hvað er vinstri, er það ekki?“ Allir flýta sér að rétta upp hendurnar og segja: „Þetta hérna er hægri og þetta er vinstri,“ og svo var tekiö til að syngja um hægri umferðina, en vísan er eftir Magnús Péturs- son píanóleikara i dansskólan- um: Bráðum koma breyttar reglur, börnin eiga að muna þær. Allir verða þá að víkja vel til hægri nær og fjær. Þegar búið var að syngja um hægri umferðina, settust börnin hjá mæðmm sínum við borðin, og gafst okkur þá tækifæri til að skoða búningana dálítið nán- ar. Margir þeirra höfðu verið leigðir, en flestir voru þó heima- tilbúnir. Þarna voru brúðhjón, þjónn og þjónustustúlka, Mjall- hvít, Rauðhetta, H-umferðin, blómálfar og sjáum við hér á síðunni sýnishom af búningun- um. Það fór ekki milli mála, að bömin skemmtu sér hið bezta og áður en Hermann Ragnars kvaddi þau, tók hann af þeim loforð að þakka nú pabba og mömmu fyrir að búa þau svona vel og skemmtilega á grímuball- ið, en það mun láta nærri, að þama hafi verið um 200 böm samankomin öll í mismunandi búningum. Hér sjáum við eina spánska senjórítu að dansa Jenka. „Snemma byrjar það,“ sagði einhver, þegar brúðhjónin birt- ust. Þau heita Ásgeir Sigurðsson og Sigrún Sæmundsdóttir. Þessi tvö vöktu mikla athygli, enda búningarnir mjög fallegir, báðir heimasaumaðir. Soldáninn heitir Þór Björnsson, 7 ára, og ambáttin, Margrét Björg Hilmisdóttir, 5 ára. j

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.