Vísir - 18.05.1968, Blaðsíða 1
58. árg. — Laugardagur 18. maí 1968. - 108. tbl.
Fjarskiptakerfi siökkvi-
stöðvarinnar senn tilbúið
Innanhúss'ima og b'ilageymsluhurðum stjórnaB frá sama skiptiborði
,Tilhlökkunarefni að koma til
Reykjavíkur44
— segir Manlio Brosio, abalframkvæmdastjóri
NATO i viðtali við Axel Thorsteinsson,
aðstoðarritstjóra Visis i Brussel
■ íslenzku fréttamennirnir, sem fóru tii Brussel
s.l. sunnudag í heimsókn til aðalstöðva Efnahags-
bandalags Evrópu og Norður-Atlantshafsbandalags
ins, komu heim í gær. Þeir ræddu þar við Níels P.
Sigurðsson ambassador íslands hjá Norður-Atlants
hafsbandalaginu, Manlio Brosio, aðalframkvæmda-
stjóra þess, Lemnitzer hershöfðingja, yfirmann her-
afla Norður-Atlantshafsbandalagsins í Evrópu,
Harlan Cleveland ambassador Bandaríkjanna hjá
Norður-Atlantshafsbandalaginu, J. L. W. Price
upplýsingastjóra Nato, Simonet, sérfræðing Efna-
hagsbandalagsins á sviði fiskveiðimála o. fl. ráða-
menn.
Brosio orð á þessa leið: Oss er
það mikið ánægjuefni að fara til
Reykjavíkur til þess að sitja
ráðherrafundinn og er ferðin
okkur rpikið tilhlökkunarefni.
Vér gerum oss grein fyrir, að
Reykjavík er ekki stór höfuð-
borg, þótt hún sé mjög aðlað-
andi, og skilyrði takmörkuð
en íslenzka ríkisstjórnin hefir
verið mjög hjálpsöm og sam-
starf við hana til undirbúnings
ins hið bezta, og vér erum í alla
staði ánægðir, með allar undir-
búningsráðstafanir.
Ég get ekki á þessu stigi gert
ýtarlega grein fyrir dagskrá
ráðstefnunnar, þar sem ekki er
búið að ganga frá henni til
fullnustu — en á vorfundi ráð-
herra bandalagsins, er ávallt
rætt almennt um allt sem
bandalagið varðar, ástand og
horfur, og að sjálfsögðu meö
tilliti til þess sem gerist og
hversu horfir á alþjóðavettvangi
Fyrir ráðherrafundinum munu
liggja niðurstöður bvggðar á
Harmelskýrslunni.
Þetta verður í fyrsta sinn,
sem ráðherrafundurinn er hald-
inn á íslandi, og eins og ég tók
fram, er það okkur öllum til-
nlökkunarefni að sitja fundinn
þar.
Þess er hér að geta, að Har-
mel-skýrslan, hefir verið þýdd
á íslenzku en í henni er endur-
tekin sú fasta stjórnmálalega á-
10. síöa
Unnið hefir verið á undan-
gengnum tíma að undirbúningi
fundar utanríkisráöherra Norð-
ur - Atlantshafsbandalagsland-
anna, sem haldinn verður hér
í Reykjavík 24. og 25. júnf, og
er það f fyrsta skipti, sem
fundur utanríkisráðherranna er
haldinn hér. Allir ráðamenn
NATO, sem fréttamennirnir
ræddu við, létu í ljósi ánægju
sína yfir, að fundurinn verður
nú haldinn hér.
Um þetta fórust Manlio
Lítill árangur sjáanlegur
af viðræðunum í París
N-Vietnamar einstrengingslegir i kröfum sinum
• í dag, þegar þeir hittast á
nýjan leik yfirsamninga-
mennimir frá Norður-Víetnam,
Xuan Thuy, og Averell Harriman
frá USA, mun Thuy endurtaka hina
skilyröislausu kröfu um, að Banda-
ríkin hætti sprengjuárásum á
Norður-Víetnam, að sögn talsmanns
norður-vietnömsku sendinefndar-
innar, Nguyen Van Sao. Þegar
hann var spurður aö því, hvort
stjórn hans mundi reiðubúin að
gera einhverjar álíka tilslakanir,
svaraöi hann því, að hann vissi
ekki til þess að sprengjuflugvélar
frá Víetnam væru dag og nótt
önnum kafnar við að fleygja nap-
almsprengjum á bandarískt lands-
svæði.
Norður-Víetnamar voru svo
þverir f einhliða kröfum sínum um,
aö Bandaríkjamenn hætti algerlega
hemaðaraðgerðum sínum, aö lítil
von er um að samningar náist, þar
sem báðir aöiiar verða að láta und-
an að einhverju leyti, ef nokkur
von er til þess að bundinn verði
endir á ófriðinn.
Manlio Brosio.
Uppreisnaralda gengur yfir Frakkland
— Viðtækt verkfall — Forstjórar læstir inni
— De Gaulle enn i Rúmeniu
■ Þúsundir franskra stúdenta söfnuðust saman í gærkvöldi í
latínuhverfinu í París, og síðan fðru þeir í göngu frá Sorbonne-
háskóla að Renault-bifreiðaverksmiðjunum, þar sem þúsundir
verkamanna sem eru í verkfalli hafa lagt undir sig verksmiðju-
byggingamar.
Stúdentagangan var farin til aö
undirstrika samstöðu stúdentanna
og verkamannanna, sem eru i
verkfalli. Eftir að forsætisráðherr-
ann hafði á fimmtudagskvöld sent
út í útvarpi og sjónvarpi yfirlýsingu
þess efnis, að lögreglan mundi
grípa til strangra refsiaðgerða til
að uppihalda lögum og reglu, hélt
hann í gær fund með æðstu for-
ingjum iögreglunnar.
Uppreisnaralda hefur gengið yf-
ir Frakkland, síðan stúdentaóeirð-
irnar brutust út, en þær leiddu til
blóðugra átaka við lögregluna og
í fyrri viku lögðu stúdentarnir há-
skólabyggingarnar undir sig og i
þessari viku „Theatre de France".
Um það bil 40.000 af 60.000
verkamönnum við hinar ríkisreknu
Renault-verksmiðjur fóru í verk-
fall á miðvikudag. Forstjóri Ren-
aultverksmiðjanna í Cleon og for-
stjóri flugverksmiöjanna í Nantes
hafa verið læstir inni á skrifstof-
um sínum. í Lyon hafa verkamenn
yfirtekið verksmiðjur og for-
stjórar hafa verið læstir inni í
Bodeaux, Orleans og víðar.
Mikill viðbúnaöur lögregluliðs
er nú 'í París og öðrum borgum
til að fyrirbyggja óeirðir, og er
hafður vörður um Signu-brýr til aö
varna stúdentum og uppreisnar-
seggjum að komast yfir á hægri-
bakkann, þar sem flestar opinberar
byggingar og stofnanir eru. Tals-
menn de Gaulle forseta hafa þrátt
fyrir allt þetta boriö til baka orð-
róm um, að hann muni binda endi
á heimsókn sina til Rúmeníu til
að snúa heim og taka stjórnartaum
ana í sínar hendur á nýjan leik.
■ Senn líður að því, að öll
starfsemi slökkviliðsins verði
komin í nýju slökkvistöðina,
en fram til þessa hefur hluti
starfsins — lítill að vísu —
verið unninn í gömlu stöð-
inni. Nefnilega stjórn fjar-
skiptakerfis slökkviliðsins.
Undir fjarskiptakerfið fellur
simasamband slökkviliðsins inn
anhúss og utan, útkall slökkvi-
bíla, útkall sjúkraflutningabíla,
boðunarkerfi varaliðs, viðvörun-
arkerfi og fleira, og flestu af
þessu hefur verið stjórnað frá
Tjarnargötu, aðeins símaborðinu
stjórnað frá nýju slökkvistöð-
inni.
Nú er unnið að þvi að setja
upp og ganga að fullu frá stjórn-
borði í nýju slökkvistöðinni við
Öskjuhlíð, þar sem svo öllu
þessu margflókna kerfi verður
svo stjómað i framtíðinni af ein-
um manni.
„Við vonumst til þess, að það
komist í gagnið í næsta mánuði.
Það er unnið að því nú að setja
þetta upp,“ sagði Rúnar Bjama-
son, slökkviliösstjóri, við Vísi.
Hann sagöi að inn á stjórnborð-
ið yrði einnig tengt sjálfvirkt
viðvörunarkerfi, sem nú væri
þegar komið í nokkur hús í bæn
um, en mundi væntanlega verða
útbreiddara.
Frá þessu stjórnborði yrði svo
stjórnað jafnt fjarstýringu á
bílageymsluhurðum, sem síma-
samböndum innanhúss og utan.
Sú tækninýjung verður einnig
við þetta stjórnborð, að þaðan
mun slökkviliðiö einnig geta
stjórnað götuljósum.
Sá á bak þjófnum
en jat gefið lógreglunni
lýsingu á flóttabifreiðinni
Lögreglan handtók í fyrrinótt eft
ir töluverða leit, mann, sem grun-
aður var um að hafa stolið rú-
skinnsjakka úr óiæstri bifreið hér
í bænum kvöldið áður.
Hafði eigandi jakkans skilið hann
við sig í bíl sínum og brugðið sér
frá, en sá til þjófsins úr fjarlægö,
þar sem hann fór inn í bílinn og
seildist í jakkann.
Brá eigadinn við skjótt og hljóp
til, en varö of seinn og sá þjófn-
um ekið á brott í brúnni Chevro-
letbifreið. Náði hann rétt að festa
sér í minni svæðisnúmer bifreið-
arinnar og tvo fyrstu stafi skrásetn
ingarnúmersins.
Tilkynnti hann síðan lögreglunni
um atburðinn og var öllum eftirlits
bifreiðum hennar gefin lýsing á
bílnum.
Kl. 1.30 eftir miðnætti, eða fjór-
um klukkustundum eftir að hnupl-
ið átti sér stað, handtóku vegalög-
gæzlumenn hinn grunaða og öku-
mann Chevrolet-bifreiðarinnar, þar
sem þeir óku suöur Keflavíkurveg
„Vísir í
vikulokin
fylgir blaðinu i dag
til áskrifenda