Vísir - 18.05.1968, Blaðsíða 7
V1SIR . Laugardagur 18. maí 1968.
7
l*»’ ’ ~
w-ntrt’wm'
UMFERÐARNEFND
REYKJAViKUR
LDGREGLAN í
REYKJAViK
í síðasta þætti var skýrt frá
nokkrum varfrugaverðum atrið
um sem sænskir vísindamenn
benda á, að einkum geti valdið
noKkrum erfiðleikum fyrst eftir
aö hægri utnferð hefur verið
tekin npp. í þessum þætti verður
haMið áfram aö skýra frá þess-
um atriðum, og hér tekin fyrir
þrjfi atriði, akstur á hringtorg-
am, akstur á mjóum vegum og
akstur frá vegarbrún.
Veljið réttar akreinar á hring-
torgum.
Það eru einkum tvö atriði f
akstri á hringtorgum, sem koma
ökumönnum til að bregðast við
samkvæmt vinstri umferðarvenj
um. 1 fyrsta lagi er það hin
mikla umferð, sem oftast er á
hringtorgum, sem veldur því, að
ekki þarf mikið að bregöa út af f
akstrinum til að ökumaðurinn
missi stjörnina á umferðarað-
stöðunni og þá vill hann oft við-
hafa vinstri umferðarviðbrögð.
Hitt atriðið er það aö stundum
kemur fyrir í hringakstri að ekiö
er fram úr öðru ökutæki hægra
megin við það, sem getur minnt
ökumenn á vinstri umferð. Það
aftur á móti getur freistað öku-
manna til að bregðast við sam-
kvæmt vinstri umferðarvenjum
einkum komi eitthvaö óvænt
fyrir f akstrinum.
Aðalboðorðiö í akstri á hring
torgi er að velja akrein á torginu
með tilliti til fyrirhugaðrar akst
ursstefnu. Sjá mynd 15. en allar
örvarnar á þeirri mynd sýna
hvernig ekki á að aka á hring-
torgum f h-umferð, þar sem akst
ur á hringtorgum verður í öfuga
stefnu miðað við akstursstefnu f
vinstri umferð.
Mæting á mjóum vegum.
Við akstur á mjóum vegum
freistast ökumenn til að aka inn
að vegarmiðju og halda ökutæk-
inu þar, einkum ef umferöin
á veginum er þaö lítil, að þaö
reynist unnt. Sé ökutækið komið
inn á vegarmiöju, leiðir það oft
til þess, að ökumaðurinn hneig
ist til að aka yfir á vinstri veg-
arbrún.
Annaö er það í akstri á mjóum
fáförnum vegum, sem getur or-
sakað það, aö ökumenn bregðist
við samkvæmt vinstri umferðar-
venjum. Hafi ökumaður ekið
bifreið sinni langtímum saman á
mjóum vegi, án þess að mæta
öðru ökutæki, freistast hann til
að bregðast við samkvæmt
vinstri umferðarvenjum, mæti
hann ökutæki skyndilega.
í þessu sambandi má geta þess
að um 1400 áminningarmerkjum
verður komið upp meðfram
þjóðvegum landsins, og eiga
merkin að vera stöðug áminrfing
til ökumanna um að hægri um-
ferð sé í gildi. Athugið myndir
20 hér að ofan, en á þeim báð-
um merkja svörtu örvarnar
ranga akstursháttu.
Akstur frá vegarbrún.
Sé ekið frá vegarbrún, eða
frá ýmiss konar þjónustu-
stöðvum, svo sem bensínaf-
greiðslum, söluturnum og fleiru
sem staðsett er á vegarbrún,
getur það oft leitt til þess að
ökumennirnir leiðist yfir á
vinstri vegarhelming. Einkum
getur þetta átt sér stað, sé ekið
af stað af vinstri vegarbrún, eða
séu þjónustustöðvamar staö-
settar vinstra megin vegarins
miðað við akstursstefnu ökutæk
isins. Athugið mynd 19, en á
henni sýnir svarta örin ranga
akstursstefnu.
Varhugaverð atr-
iði í hægri umferð
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Dagblabið VISIR
jwy
k kveðiö hefur verið að fjölga
þátttakendum í Reykjavík-
urmótinu, um tvo. Verður ann-
ar þeirra júgóslavneski alþjóða-
meistarinn Ostojic, en hann afl-
aöi sér þess titils á síðasta
Hastingsmóti. Guðmundi Pájma-
syni var boðin þátttaka, en
hann sá sér ekki fært að taka
boðinu. Þá hefur verið leitaö
til Benónýs Benediktssonar, en
svar hefur ekki borizt frá hon-
um ennþá.
Á skákmótinu í Monte Carlo
sem er nýlokiö hélt Bent Larsen
áfram sigurgöngu sinni. Fékk
Larsen 9 y2 vinning af 13 mögu-
legum. Botvinnik hlaut annað
sætið með 9 vinninga en í 3.—4.
sæti urðu Hort og Smyslov.
Þeir R. Byrne og Uhlmann, sem
munu tefla hér á Reykjavíkur-
mótinu voru báðir meðal kepp-
enda. Byrne hlaut 8 vinninga
og var eini keppandinn sem
sigraði Larsen. Uhlmann náði
sér aldrei á strik og hlaut að-
eins 5 y2 vinning.
Faðir og sonur —
I Bamberg í Þýzkalandi haföi
P. Keres forystuna eftir 13 um-
ferðir með 10 vinninga. Heims-
meistarinn Petroshan var í 2.
sæti með 9 vinninga og Schmid
V. Þýzkalandi með 8]/2 vinning.
Zinser, einn af þekktari skák-
mönnum Frakklands, tók þátt
í skákmóti í Moskvu, nú fyrir
skömmu. Sovézku keppendurnir
sýndu honum fljótlega þann
reginmun sem er á sovézkum
og frönskum skákstyrkleika og
bjuggu kyrfilega um Zinser í
neðsta sætinu. Eftirfarandi
skák tefldi Zinser gegn sigur-
vegara mótsins.
Svart: Zinser.
Hvítt: Zaitsev.
Alechinesvörn.
I.e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6
4. Rf3 Rb6?
Sjálfsagt var að láta hvítan
hafa fyrir því að reka riddarann
burt.
5. Rc3 g6
Svartur heldur áfram á hættu
.V.V.V.V.V.W.W.V.WA1
legri braut. Kóngsstaða svarts
verður nú opin gegn sókn hvíts.
6. Bf4 Bg7 7. Dd2 Bg4 8.
Bh6! 0-0
Ef 8. ... BxB 9. DxB BxR
10. gxB dxe 11. dxe Dd4 12.
Dg7 Hf8 13. Hdl og hvítur
stendur mun betur.
9. h4! BxR 10. h5!
Glæsilega teflt. Ef nú 10. ...
Bxh? 11. HxB gxH 12. Dg5 Eða
10. ... Bc6 11. hxg fxg 12.
BxB KxB 13. Dh6t Kf7 14.
Dxhf Ke8 15. e6 Dc8 16. Dxgt
Kd8 17. 0-0-0 d5 18. Df7! og hvít
ur vinnur.
10. ... Bh8!
Eina vörnin.
11. gxB dxe 12. BxH DxB
13. hxg hxg 14. dxe Bxe 15. f4
Bf6 16. Re4! Rc6?
Svartur varð að reyna 16. ...
Bxb 17. c3! BxH 18. Dd4 f6 19.
Bc4f RxB 20. DxRt Kg7 21.
Rc5 og hvítur ætti aö vinna.
Eins og skákin teflist lendir
svartur í vonlausu endatafli.
17. RxBf exR 18. 0-0-0 Hd8
19. Bd3 f5 20. De3 Dg7 21.
Bxf! HxHf 22. HxH Rc4
Ef 22. ... gxB 23. De8f Kh7
24. Hhlf
23. De8f Df8 24. DxDt KxD
25. Be4 Rd6 26. BxR bxB 27.
Hel Gefið.
Jóhann Sigurjónsson.
’.VmWmWmWAWmWm'mWm
16 síðu.
og Gylfi með 1469, 8. Jón og
Stefán með 1467 stig.
Átta efstu pörin spila aftur
í meistaraflokki næsta ár og
fjögur efstu í fyrsta flokki fá
rétt til þess að spila f meistara-
flokki þá.
Þessir urðu efstir í 1. flokki:
Jón Arason og Lárus Karlsson
meö 1651 stig, Einar Þorfinns-
son og Jakob Ármannsson með
1622 stig, Arnar Hinriksson og
Jakob R. Möller 1594, Jón
Hjaltason og Örn Arnþórsson
1586.
UMFERÐAR-
TAKMÖRKUN
KL. 0300-0700
SÓLHEIMABÚÐIN AUGLÝSIR:
ALLT 1 SVEITINA
Nýkomið:
Gallabuxur með tvöföldum hnjám í stærðum
4—14, kr. 160.
Terylene drengjaskyrtur í stærðunum 6—16
kr. 158.
Kahki, breidd 140 cm, margir litir, kr. 84.90
pr. m.
Nælonstyrkt nankin, breidd 140 cm, kr. 115
pr. m.
Stuttbuxur, stærð 4—10, kr. 40.
Sportbolir á telpur og drengi, ódýrt.
Nærföt á telpur og drengi.
Hosur, sokkar, ullarhosur, belti, axlabönd
og margt fleira. Allt á hagstæðu verði.
SÓLHEIMABÚÐIN
Sólheimum 33 — Sími 34479.
Sveinspróf í húsasmíði
Sveinspróf í húsasmíði hefjast laugardaginn
8. júní n. k. kl. 14 í Iðnskólanum í Reykjavík.
Prófnefndin.
[V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.Y.V.'.VAV.V.W.’AWAV.W.V.V.V.W.V
ITIL ÁSKRIFENDA VÍSIS
■
|! Vísir bendir áskrifendum sínum á að hringja í afgreiðslu blaðsins fyrir kl. 7 að kvöldi,
■! ef þeir hafa ekki fengið blað dagsins. Hringi þe fyrir kl. 7, fá þeir blaðið sent sérstak-
■; lega til sín og samdægurs. Á laugardögum er afgreiðslan lokuð eftir hádegi, en sams
I; konar símaþjónusta veitt á tímanum 3.30 — 4 e. h.
Muníð að hringja fyrir klukkan 7 í sínra 1-16-60
i
V.VV.V.V.V.V.V.V.-. . .■.■.V.V.V.V.V.V.V..,.V.V.,.V.V.".VrtV.V.V.V.V%V.V.,.SW.,.V.