Vísir - 26.06.1968, Síða 5
VÍSIR . Miðvikudagur 26. júní 1968.
5
.ntmmsli,
Orlof húsmæðra að Laug-
um i sumar
Nú stendur yfir í Reykjavík, Kópavogi og Hafnar-
{ firði skráning á húsmæðrum er hafa hug á að dvelj-
S ast í orlofi á orlofsheimilinu að Laugum í Dala-
^ sýslu og fer hér nánari frásögn af tilhögun orlofsins
Camkvæmt lögum um orlof
^ húsmæöra frá 1960, er hús
masörum um land allt gefinn
kostur á orlofi og er orlofið
fyrir konur á öllum aldri.
Nefndirnar sem sjá um fram
kvæmd þessa, eru á vegum
kvenfélagasambandanna.
1 Reykjavík starfar orlofs-
nefnd á vegum Bandalags
kvenna í Reykjavík, og mun
hún í sumar hafa samvinnu viö
orlofsnefndir í Kópavogi og
Hafnarfiröi Þessar þrjár nefnd-
ir hafa orlofsheimili aö Laugum
í Dalasýslu f sumar eins og s.l.
sumar. Á Laugum er veðursæld
mikil og náttúrufegurð, húsa-
kynni góö og sundlaug til af-
nota fyrir dvalargesti.
Orlofiö fyrir hvern hóp hef-
ur jafnan verið 10 dagar, og
veröur svo að mestu leyti nú,
en sú nýbreytni veröur upp tek-
in hjá Reykjavíkurnefndinni að
bæta viö tveimur hópum, sem
hvor um sig verður í 5 daga.
Er þetta hugsaö sem mögu-
leiki fyrir þær konur, sem ættu
erfiöara með aö koma bömum
sínum fyrir, ef um lengri tíma
væri aö ræöa og einnig komast
fleiri húsmæður í orlof með
þessu móti. I hverjum hópi eru
ca. 40 konur og fylgir þeim
fararstjóri, en hver hópur fer í
eitt smáferöalag. Skólastjóra-
hjónin að Laugum hafa oft veitt
hópunum ómetanlega leiðsögn,
enda eru þau ávallt boðin og
búin til þess aö gera gestunum
dvölina sem ánægjulegasta.
Oft er glaðværð mikil að
Laugum, ekki sízt á kvöldvök-
unum, sem allir taka þátt f á
ýmsan hátt, svo sem með söng
og leikjum. Margar konurnar
yrkja ljóð og lausavísur, enda
er umhverfi Lauga þrungið sögu
legri rómantík.
7 hópar verða í sumar aö
Laugum. Fyrst verða 5 hópar
frá Reykjavík. Sá fyrsti 1.—11.
júlí, síðan koma tveir 5 daga
hópar, sá fyrri fer 11. júlí og
kemur heim að kvöldi 16. júlí.
Sama dag að morgni fer síð-
ari hópurinn og kemur hann svo
heim að kvöldi 21. júlí. Og þann
sama dag að morgni fer 4.
hópurinn, og kemur hann heim
þann 31. júlf að kvöldi. Síöasti
hópurinn frá Reykjavík fer þá
31. júlí og kemur heim 10. ágúst
að kvöldi.
Kópavogur tekur þá við og
fara orlofskonur þaöan að
morgni 10. ágúst og koma heim
20. ágúst að kvöldi.
Hafnarfjörður hefur svo ^fð-
asta hópinn, og leggur hann af
stað að morgni 20. ágúst og
kemur heim þann 30. ágúst að
kvöldi.
Orlofsnefnd húsmæðra f
Reykjavík hefur opna skrifstofu
að Hallveigarstöðum, Túngötu
14, í húsnæði Kvenréttindafé-
lags íslands 4 sinnum f viku
þ. e. á mánudögum, miðvikudög
um, föstudögum og laugar-
dögum kl. 4—6 e. h.
Síminn er 18156.
Orlofshefnd húsmæðra í Kópa
vogi mun hafa skrifstofu sína í
Félag'sheimilinu og verður það
auglýst síðar.
Orlofsnefnd húsmæðra í Hafn
arfirði mun nota skrifstofu
Verkakvennafélagsins Ftamtfð-
arinnar í Alþýöuhúsinu og verð-
ur það auglýst síðar.
Orlofsnefndirnar vilja vekja
athygli á því, aö geti einhverj-
ar konur ekki farið á þeim tfma,
sem orlofshópar af þeirra svæði
fara getur verið um möguleika
að ræða að komast með
hópum hinna orlofsnefndanna.
Eitt tízkufyrirbrigði sumarsins er kallað „Balkantízka“, en helztu einkenni hennar eru
leggingabönd og ýmiss konar prjónabönd, sem fest eru á kjóla, jakka, dragtir og blússur.
Böndunum fylgja gjarnan ýmiss konar hneslur, eins og við sjáum hér á myndinni. Þessi
tízka á rót sína að rekja til þjóðbúninga þjóðanna sem búa á Balkanskaga, en þeir búningar
þykja meðal fegurstu og skrautlegustu þjóðbúninga heims.
K osningaskrifstofur
stuðningsmanna Gunnars
Thoroddsens i Reykjavík
AÐALSKRIFSTOFA:
Pósthússtræti 13, sími 84500
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA:
Aðalstræti 7, sími 84533
ÞJÓÐKJÖR:
Afgreiðsla, sími 84530 — Ritstjórn, sími 84538
SAMTÖK UNGRA STUÐNINGSMANNA:
Vesturgata 17, sími 84520
SAMTÖK STUÐNINGSKVENNA:
Hafnarstræti 19, sími 13630
Hverfisskrifstofur
VESTUR- OG MIÐBÆJARHVERFI:
Vesturgata 40, sími 84524
MELAHVERFI:
K.R.-heimilið, sími 23195
AUSTURBÆJARHVERFI:
Hverfisgata 44, sími 21670
HLÍÐAHVERFI:
Mjölnisholt 12, sími 42755
LAUGARNESHVERFI:
Hraðfrystihús Júpiters og Marz, sími 84526
LANGHOLTSHVERFI:
Sólheimar 35, sími 84540
KRINGLUMÝRARHVERFI:
Háaleitisbr. 58—60 (Miðbær), sími 84525
SMÁÍBÚÐAHVERFI:
Háaleitisbr. 58—60 (Miðbær), sími 82122
ÁRBÆJARHVERFI:
Hraunbær 18, sími 84541
Bílar á kjördag
Þeir sem vilja lána bíla á kjördag eru vinsam-
lega beðnir um að hafa samband við aðal-
skrifstofuna, sími 84500 eða hverfisskrifstof-
umar.
Aðalskrifstofur utan
Reykjavíkur
AKRANES: Skólabraut 21, sími (93)-1915
BORGARNES: Sæunnargata 2, sími (93)-7346
(Opin kl. 17-22)
PATREKSFJÖRÐUR: Brunnum 5, sími (94)-1121
BOLUNGAVlK: Völusteinsstræti 16, sími 199
(Opin kl. 14- 16 og 20-22)
ÍSAFJÖRÐUR: I húsi Kaupfél. ísfirðinga, sími 699
BLÖNDUÓS: Húnabraut 27, sími 53
SAUÐÁ KRÓKUR: Aðalgata 14, sími (96)-5450
SIGLUFJÖRÐUR: Aðalgata 28, sími (96)-71670
AKUREYRI: Strandgötu 5, símar (96)-21810 og 21811
HÚSAVÍK: Garðarsbraut 9, sími (96)-41234
EGILSSTAÐIR: Lagarási 12. sími 141
NESKAUPSTAÐUR: Hafnarbraut 24, sími 327.
Opin kl. 1. -19 qg 20-22)
VESTMANNAEYJAR: Drífanda v/Bárugötu, sími (98)-1080
SELFOSS: Austurvegi 1, sími (99)-1650
KEFLAVÍK: Hafnargötu 80, sími (92)-2700
NJARÐVlKUR: Önnuhús v/Sjávargötu, sími (92)-1433
HAFNARFJÖRÐUR: Góðtemplarahúsinu v/Strandgötu,
símai 52700 og 52701
HAFNARFJÖRÐUR: Ungir stuðningsmenn: Vesturgata 5,
sími 52705
GARÐAHREPPUR: Breiðási 2, símar 52710, 52711 og 52712
KÓPAVOGUR: Melgerði 11, sími 42650 og 42651
KÓPAVOGUR: Ungir stuðningsménn, Hrauntungu 34,
sirui 40436.
SELTJARNARNES: Skólabraut 17, sími 42653
(Opinkl. 17-19)