Vísir - 10.07.1968, Side 12
VISIK . MlðvUcudagur 10. JOII 1968.
12
ANNE' L.ORRAINE:
Henni féll ekki vel/að hún skyldi i
komast í þessa andstöðu við skoö-!
anir fööur síns, og þegar hún heim
sótti hann, sárlangaði hana stund
um til þess að trúa honum fyrir
hvemig væri ástatt um sig. En,
hvað átti hún að segja? Það eina !
sem hún hafði gert var að drekka !
te meö ungum manni — og var
nokkuð við það að athuga? Hún
sagöi honum ekki neitt.
Tony og Mary héldy áfram að
hittast. Stundum forfallaðist hún
frá að koma, en Tony tók þvl meö
þolinmæði og dagsetti nýtt stefnu
mót. Eitt kvöldiö fór hann með
hana í leikhús og f lítinn dansveit
ingastað á eftir. Við það tækifæri
varð hún fróðari um hann en áður
,og á leiðinni heim í sjúkrahúsið
varð henni órótt, er hún fann, hve
mikils virði þessir samfundir voru
orðnir henni.
Hún reyndi að hrista þetta af sér
og bað hann að segja sér ítarlegar
frá því, sem hann hefði fyrir stafni
— Við erum alltaf að tala um, hvað
ÉG er að gera, sagði hún. — En
I þaö eina sem ég veit um þitt
starf er að þú ert fasteignasali.
Hvernig datt þér í hug að leggja
það fyrir þig Tony? Gengur það
— Hvers vegna ég lagði þaö fyrir
mig? sagði hann. — Ætli það hafi
i ekki sprottið af því að mig langaði
; til að eignast heimili sjálfur, Mary
Svo langt sem ég man aftur í tím
ann hefur mig alltaf langað að sjá
húsakynni fólks. Þaö fyrsta, sem ég
teiknaði, þegar ég var krakki, var
hús með reyk upp úr strompinum
og trjám í kring. Þiö sálfræðingarn
BÍLAKAUP - BÍLASKIPTI
Skoðið bilona, gerið góð kaup — Övenju glæsilegt úrvai
Vel meS farnir bílar
í rúmgóðum sýningarsal.
Umboðssala
Við tökum velútlítandi
bila i umboðssölu.
Höfum bílana fryggða
gegn þjófnaði og bruna.
SYNINGARSALURINN
SVEINN EGILSSONH.F,
LAUGAVEG 105 SlMI 22466
ir komizt kannski að þeirri niður
stöðu, að þetta hafi stafað af þvf að
ég hefði ekki verið ánægður með
lífiö heima hjá mér. Og það kann
að vera, að þið hafið rétt að mæla
þar, aldrei þessu vant. Þegar ég var
j eldri, fannst mér bezta ráðið til að
! nálgast hús og heimíli að fara að
i kaupa og selja sjálfur. Faðir minn
| reyndi að fá mig til að leggja stund
i á læknisfræði, vitanlega, og ég
varð að berja í borðið og segja, að
ég neitaði aö vikja hársbreidd frá
því, sem ég teldi mig hæfastan til
að gera. Þaö var þá, sem ég fór
að heiman.
Faðir þinn hefur þá ekki hjálpað
þér að koma þér á laggirnar? spurði
hún varfærnislega. — Hjálpaði
hann þér ekkert 1 fyrstu?
— Hann hafði veitt mér þann
stuðning, sem hann taldi mér hent-
ugastan, sagði Tony bitur. — Hann
gaf mér gott uppeldi — en aðeins
til þess að láta mig verða lækni, er
hann sá að ég ætlaði að veröa allt
annað, var orðið um seinan að
breyta upþeldinu. Nei, hann hjálp-
aði mér ekki — hann sagði mér að
byrja og sjá, hvað ég gæti án hans.
Ég leigði mér ódýrt herbergi og
fékk forstjóra stórs fasteignamiðl-
arafirma til þess að trúa, að ég
væri maðurinn sem hann þyrfti á að
halda — maðurinn, sem hægt væri
að nota í alls konar snatt. Ég gekk
á kvöldskóla, og á daginn var ég
„allragagn" í skrifstofunni. Þetta
er ekkert ævintýr um „self-made
man”, Mary, heldur ofur algeng
saga. Ég hef verið kappsamur, og
nú er ég farinn að hafa talsvert
upp úr því. Ég hætti ekki, fyrr en
ég er orðinn meðeigandi í firm-
anu.
Hún horföi á hann forviða af
kappinu, sem í honum var. Þetta
var nýr Tonv, maður, sem hún
þekkti varla. Hingað til hafði hann
verið skemmtilegur og heillandi fé-
lagi, ekki meira. Nú haföi hún
fengiö nasasjón af alvarlegum og
eiginlega óhamingjusömum manni,
sem faldi sig undir hjúpi gaman-
seminnar.
— Þú verður að segja mér betur
frá þessu, sagði hún hikandi. —
Þykir föður þínum ekki vænt um,
að þér gengur svona vel?
— Ekki er svo að sjá. Hann álít
ur að ég hafi misþyrmt sér, þegar
ég neitaði að veröa „doktor Speck-
lan yngri“. Geturðu hugsað þér,
hvernig ævi mín hefði orðið þá?
Fölur skuggi hins fræga föður
míns. Ég heföi verið fyrirlitnastur
allra — maður sem lifði á frægð
fööur síns. Það var ÞAÐ, sem hann
vildi. Hann vildi fá nýja sönnun
fyrir snilld sinni. Hann varð að eiga
'.V.'.VW.VAVAVAVAVAV/.V.WWA’.VAVAV.V.W
:■ PIRA-SYSTEM í
Tvimælalaust hagkvæmustu og fjölbreyttustu hillu- \
húsgögnin á markaönum. Höfum lakkaðar PIRA-hillur, ■!
teak, á mjög hagstæðu verði. íj
Lítið í SÝNINGARGLUGGANN, Laugavegi 178. I;
STÁLSTOÐ s/f, Laugavegi 178 (v/Bolholt), sími 31260 I*
:.v.v.vav.v.v.vaw.v.w.v.w.v^.\vavaw.v!:
son, sem var innblásinn af hans eig
in hugsjónum. Ég átti að verða
fjöður í hatti, sem var margfjaðrað
ur fyrir.
Hún var dauf í dálkinn um kvöld
ið og var sífellt aö hugsa um, hve
Tony var gramur föður sínum.
Hafði þessi beiskja líka áhrif á
tilfinningar hans í hennar garð.
— EKKI SJÚKL-
INGUR YÐAR?
Tony símaði til hennar eitt
kvöldið, þegar hún var aö koma úr
vinnunni. Hún svaraði honum stutt
og hálf ergilega. Hann hefði átt
að vita, að henni féll ekki, að sim-
að væri til hennar, meðan hún var
í sjúkrahúsinu.
— Þaö er viövíkjandi því, hve-
nær við eigum að sjást næst Mary
— Ég var að hugsa um, hvort þú
gætir ekki eins vel hitt mig á
mánudaginn. Ég hef sérstaka á-
stæðu til að biðja þig um þetta, og
mér þætti vænt um, ef þú gætir
hagað því þannig.
— Ég er ekki viss um það, sagði
hún hálf gröm. — Mér er ómögu-
legt aö segja nokkuð ákveðið um
það, eins og þú skilur. Þaö er alltaf
mikið af nef- og háls-aðgeröum á
mánudögum, og ég er vön að aö-
sfoða við þær. Vitanlega er þetta
aðallega fyrripart dagsins, en ...
— Þá fer það ekki lengra, sagði
hánn hlæjándi. — Vértu ekki að
léita þér að fleiri afsökunum,
Mary. Mér er áhugamál, að þú
komir — það er árlðandi, Mary!
Kemurðu?
— Ef ég get, sagði hún með
semingi. — Ég get ekki sagt meira
núna. Ég — ég er að koma af verð-
inum.
— Þá tölum við ekki meira um
það, sagði hann og hló aftur. Það
var auðheyrt, að vel lá á honum.
— Ég geri ráð fyrir, að allur hjúkr-
unarkvennaskarinn með yfirhjúkr-
unarkonuna í broddi fylk’ingar góni
á þig núna. Vertu óhrædd. Ég skal
sjá um þetta. Við sjáumst á mánu-
dag — klukkan hálfsjö — á sama
stað.
Hún sleit sambandinu og varð
íy Edgar Rice Eurroughs
CAPTUREP
ANP TIEP TO
A GJGANTIC
PKJMITIVE
KHINOCEROS
BY TAILEP-
MEN! THIS
COULP ONLY
B£ THE LQST
LANP OF
RAL-UL-
Handtekinn og bundinn af mönnum með
hala og settur á risavaxið spendýr. Þetta
getur aðeins verið týnda landið Pal-Ul-
Don.
Pal-Ul-Don. Hið vilita land með for-
sögulegum dýrum og ðþekktu fólki, sem
enn er ófundið af nútímamönnum. Er
þetta til á 20. öldinni eða hefur einhver
neðansjávará flutt mig aftur f tímann?
hissa á, aö hún skyldi ekki smitast
af honum og komast 1 gott skap
sjálf. Var hún að verða leið á
þessum sífelldu stefnumótum með
Tony? Ef svo var, þá hlaut hún
aö vera í meira lagi hverflynd.
Eða stafaði þetta af því, að hún
var hrædd um, aö þessi stefnumót
spilltu vinnuþreki hennar?
Hún fór fram ganginn 1 áttina
til útidyranna. Nam staðar f for-
dyrinu og leit á auglýsingatöfl-
una. Svo heyrði hún, að emhver
var að koma, og leit við. Það var
Simon Carey.
Hann var auðsjáanlega glaöur,
þegar hann sá hana. — Þér voruð
einmitt sú, sem ég þurfti að ná f,
sagði hann. — Ég vonaði að fá
tækifæri til að tala við yður, doktor
Marland. Þessi drengur, Martin,
var sendur í deildina mína í morg-
un. Honum fer furðanlega fram.
og nú halda þeir, að ég geti hjálp-
að honum eitthvað. Þér munið
aö yður var annt um hann, og lof-
uðuð að hjálpa mér, ef hann kæm-
ist undir mínar hendur?
Hún reyndi að taka eftir þvf, sem
hann sagði.
Hann hnyklaði brúnimar. — Þér
eruð þreytuleg, sagði hann. — Ég
hef tekið eftir, að þér hafíð verið
áhyggjufull upp á síðkastið. Hvað
er að. Get ég gert eitthvað fyrir
yður?
Hún sðtroðnaði og gramdist þessi
afskiptasemi. — Nei, ekkert, sagði
hún stutt, — af þeirri einföWn
ástæðu, aö ekkert gengur að mér.
Mér líður vel, þakka yðar fyrir.
— Likamlega, já, sagði hann og
staröi á hana. — En ég er ekki
viss um, aö sálariffið sé eins og
það á að vera?
Maðurinn sem
aldrei les augiýsingar
auglýsingar yf^ I
lesa allir J
REIKNINGAR*
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
c*qd sparat vður t'ima og óþægindi
INNHEIMT ÍJSK RIFSTOFAN
Tjarnarg'ótu 10 —III hæö — Vanarstrætismegin — S'imi 13175 (3l'mur)