Vísir - 10.07.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 10.07.1968, Blaðsíða 12
VISIK . MlðvUcudagur 10. JOII 1968. 12 ANNE' L.ORRAINE: Henni féll ekki vel/að hún skyldi i komast í þessa andstöðu við skoö-! anir fööur síns, og þegar hún heim sótti hann, sárlangaði hana stund um til þess að trúa honum fyrir hvemig væri ástatt um sig. En, hvað átti hún að segja? Það eina ! sem hún hafði gert var að drekka ! te meö ungum manni — og var nokkuð við það að athuga? Hún sagöi honum ekki neitt. Tony og Mary héldy áfram að hittast. Stundum forfallaðist hún frá að koma, en Tony tók þvl meö þolinmæði og dagsetti nýtt stefnu mót. Eitt kvöldiö fór hann með hana í leikhús og f lítinn dansveit ingastað á eftir. Við það tækifæri varð hún fróðari um hann en áður ,og á leiðinni heim í sjúkrahúsið varð henni órótt, er hún fann, hve mikils virði þessir samfundir voru orðnir henni. Hún reyndi að hrista þetta af sér og bað hann að segja sér ítarlegar frá því, sem hann hefði fyrir stafni — Við erum alltaf að tala um, hvað ÉG er að gera, sagði hún. — En I þaö eina sem ég veit um þitt starf er að þú ert fasteignasali. Hvernig datt þér í hug að leggja það fyrir þig Tony? Gengur það — Hvers vegna ég lagði þaö fyrir mig? sagði hann. — Ætli það hafi i ekki sprottið af því að mig langaði ; til að eignast heimili sjálfur, Mary Svo langt sem ég man aftur í tím ann hefur mig alltaf langað að sjá húsakynni fólks. Þaö fyrsta, sem ég teiknaði, þegar ég var krakki, var hús með reyk upp úr strompinum og trjám í kring. Þiö sálfræðingarn BÍLAKAUP - BÍLASKIPTI Skoðið bilona, gerið góð kaup — Övenju glæsilegt úrvai Vel meS farnir bílar í rúmgóðum sýningarsal. Umboðssala Við tökum velútlítandi bila i umboðssölu. Höfum bílana fryggða gegn þjófnaði og bruna. SYNINGARSALURINN SVEINN EGILSSONH.F, LAUGAVEG 105 SlMI 22466 ir komizt kannski að þeirri niður stöðu, að þetta hafi stafað af þvf að ég hefði ekki verið ánægður með lífiö heima hjá mér. Og það kann að vera, að þið hafið rétt að mæla þar, aldrei þessu vant. Þegar ég var j eldri, fannst mér bezta ráðið til að ! nálgast hús og heimíli að fara að i kaupa og selja sjálfur. Faðir minn | reyndi að fá mig til að leggja stund i á læknisfræði, vitanlega, og ég varð að berja í borðið og segja, að ég neitaði aö vikja hársbreidd frá því, sem ég teldi mig hæfastan til að gera. Þaö var þá, sem ég fór að heiman. Faðir þinn hefur þá ekki hjálpað þér að koma þér á laggirnar? spurði hún varfærnislega. — Hjálpaði hann þér ekkert 1 fyrstu? — Hann hafði veitt mér þann stuðning, sem hann taldi mér hent- ugastan, sagði Tony bitur. — Hann gaf mér gott uppeldi — en aðeins til þess að láta mig verða lækni, er hann sá að ég ætlaði að veröa allt annað, var orðið um seinan að breyta upþeldinu. Nei, hann hjálp- aði mér ekki — hann sagði mér að byrja og sjá, hvað ég gæti án hans. Ég leigði mér ódýrt herbergi og fékk forstjóra stórs fasteignamiðl- arafirma til þess að trúa, að ég væri maðurinn sem hann þyrfti á að halda — maðurinn, sem hægt væri að nota í alls konar snatt. Ég gekk á kvöldskóla, og á daginn var ég „allragagn" í skrifstofunni. Þetta er ekkert ævintýr um „self-made man”, Mary, heldur ofur algeng saga. Ég hef verið kappsamur, og nú er ég farinn að hafa talsvert upp úr því. Ég hætti ekki, fyrr en ég er orðinn meðeigandi í firm- anu. Hún horföi á hann forviða af kappinu, sem í honum var. Þetta var nýr Tonv, maður, sem hún þekkti varla. Hingað til hafði hann verið skemmtilegur og heillandi fé- lagi, ekki meira. Nú haföi hún fengiö nasasjón af alvarlegum og eiginlega óhamingjusömum manni, sem faldi sig undir hjúpi gaman- seminnar. — Þú verður að segja mér betur frá þessu, sagði hún hikandi. — Þykir föður þínum ekki vænt um, að þér gengur svona vel? — Ekki er svo að sjá. Hann álít ur að ég hafi misþyrmt sér, þegar ég neitaði að veröa „doktor Speck- lan yngri“. Geturðu hugsað þér, hvernig ævi mín hefði orðið þá? Fölur skuggi hins fræga föður míns. Ég heföi verið fyrirlitnastur allra — maður sem lifði á frægð fööur síns. Það var ÞAÐ, sem hann vildi. Hann vildi fá nýja sönnun fyrir snilld sinni. Hann varð að eiga '.V.'.VW.VAVAVAVAVAV/.V.WWA’.VAVAV.V.W :■ PIRA-SYSTEM í Tvimælalaust hagkvæmustu og fjölbreyttustu hillu- \ húsgögnin á markaönum. Höfum lakkaðar PIRA-hillur, ■! teak, á mjög hagstæðu verði. íj Lítið í SÝNINGARGLUGGANN, Laugavegi 178. I; STÁLSTOÐ s/f, Laugavegi 178 (v/Bolholt), sími 31260 I* :.v.v.vav.v.v.vaw.v.w.v.w.v^.\vavaw.v!: son, sem var innblásinn af hans eig in hugsjónum. Ég átti að verða fjöður í hatti, sem var margfjaðrað ur fyrir. Hún var dauf í dálkinn um kvöld ið og var sífellt aö hugsa um, hve Tony var gramur föður sínum. Hafði þessi beiskja líka áhrif á tilfinningar hans í hennar garð. — EKKI SJÚKL- INGUR YÐAR? Tony símaði til hennar eitt kvöldið, þegar hún var aö koma úr vinnunni. Hún svaraði honum stutt og hálf ergilega. Hann hefði átt að vita, að henni féll ekki, að sim- að væri til hennar, meðan hún var í sjúkrahúsinu. — Þaö er viövíkjandi því, hve- nær við eigum að sjást næst Mary — Ég var að hugsa um, hvort þú gætir ekki eins vel hitt mig á mánudaginn. Ég hef sérstaka á- stæðu til að biðja þig um þetta, og mér þætti vænt um, ef þú gætir hagað því þannig. — Ég er ekki viss um það, sagði hún hálf gröm. — Mér er ómögu- legt aö segja nokkuð ákveðið um það, eins og þú skilur. Þaö er alltaf mikið af nef- og háls-aðgeröum á mánudögum, og ég er vön að aö- sfoða við þær. Vitanlega er þetta aðallega fyrripart dagsins, en ... — Þá fer það ekki lengra, sagði hánn hlæjándi. — Vértu ekki að léita þér að fleiri afsökunum, Mary. Mér er áhugamál, að þú komir — það er árlðandi, Mary! Kemurðu? — Ef ég get, sagði hún með semingi. — Ég get ekki sagt meira núna. Ég — ég er að koma af verð- inum. — Þá tölum við ekki meira um það, sagði hann og hló aftur. Það var auðheyrt, að vel lá á honum. — Ég geri ráð fyrir, að allur hjúkr- unarkvennaskarinn með yfirhjúkr- unarkonuna í broddi fylk’ingar góni á þig núna. Vertu óhrædd. Ég skal sjá um þetta. Við sjáumst á mánu- dag — klukkan hálfsjö — á sama stað. Hún sleit sambandinu og varð íy Edgar Rice Eurroughs CAPTUREP ANP TIEP TO A GJGANTIC PKJMITIVE KHINOCEROS BY TAILEP- MEN! THIS COULP ONLY B£ THE LQST LANP OF RAL-UL- Handtekinn og bundinn af mönnum með hala og settur á risavaxið spendýr. Þetta getur aðeins verið týnda landið Pal-Ul- Don. Pal-Ul-Don. Hið vilita land með for- sögulegum dýrum og ðþekktu fólki, sem enn er ófundið af nútímamönnum. Er þetta til á 20. öldinni eða hefur einhver neðansjávará flutt mig aftur f tímann? hissa á, aö hún skyldi ekki smitast af honum og komast 1 gott skap sjálf. Var hún að verða leið á þessum sífelldu stefnumótum með Tony? Ef svo var, þá hlaut hún aö vera í meira lagi hverflynd. Eða stafaði þetta af því, að hún var hrædd um, aö þessi stefnumót spilltu vinnuþreki hennar? Hún fór fram ganginn 1 áttina til útidyranna. Nam staðar f for- dyrinu og leit á auglýsingatöfl- una. Svo heyrði hún, að emhver var að koma, og leit við. Það var Simon Carey. Hann var auðsjáanlega glaöur, þegar hann sá hana. — Þér voruð einmitt sú, sem ég þurfti að ná f, sagði hann. — Ég vonaði að fá tækifæri til að tala við yður, doktor Marland. Þessi drengur, Martin, var sendur í deildina mína í morg- un. Honum fer furðanlega fram. og nú halda þeir, að ég geti hjálp- að honum eitthvað. Þér munið aö yður var annt um hann, og lof- uðuð að hjálpa mér, ef hann kæm- ist undir mínar hendur? Hún reyndi að taka eftir þvf, sem hann sagði. Hann hnyklaði brúnimar. — Þér eruð þreytuleg, sagði hann. — Ég hef tekið eftir, að þér hafíð verið áhyggjufull upp á síðkastið. Hvað er að. Get ég gert eitthvað fyrir yður? Hún sðtroðnaði og gramdist þessi afskiptasemi. — Nei, ekkert, sagði hún stutt, — af þeirri einföWn ástæðu, aö ekkert gengur að mér. Mér líður vel, þakka yðar fyrir. — Likamlega, já, sagði hann og staröi á hana. — En ég er ekki viss um, aö sálariffið sé eins og það á að vera? Maðurinn sem aldrei les augiýsingar auglýsingar yf^ I lesa allir J REIKNINGAR* LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA... c*qd sparat vður t'ima og óþægindi INNHEIMT ÍJSK RIFSTOFAN Tjarnarg'ótu 10 —III hæö — Vanarstrætismegin — S'imi 13175 (3l'mur)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.