Vísir - 13.07.1968, Síða 8
i oo
V1SIR . Laugardagur 13. júli 1968.
VISIR
Otgetandi: Reykjaprent hí.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólisson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Sfmar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sfmi 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sfmi 11660 (5 ifnur)
Askriftargjald kr. 115.00 á mánuðl innanlands
1 lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda hf.
Farnir að slá úr og í
§vo sem kunnugt er hafa Tíminn og Þjóöviljinn
hamraö á því sýknt og heilagt, að þeir efnahagsöröug-
leikar, sem íslendingar hafa átt við að stríða, væru
rangri stjórnarstefnu og engu ööru að kenna. Nú
bregður hins vegar svo við, að tekið er að örla á skyn-
semi í skrifum þessara blaða og má sjá þar setningar,
eins og t. d. í Þjóðviljanum í gær, þar sem játað er
að ekki megi „gera lítið úr þeim vanda, sem erfitt
tíðarfar hefur í för meö sér og aldrei hefur verið
lengra að sækja síldina en nú 700—800 mílur norður í
haf.“
Þetta er strax í áttina hjá Þjóðviljanum, og vel má
svo fara, að eftir helgina viðurkenni blaðið aö stór-
felldur aflabrestur og verðhrun á helztu útflutnings-
afurðum okkar á erlendum mörkuðum valdi einhverju
um afkomu þjóðarbúsins. Og ekki má gleyma því, að
fyrir nokkrum dögum viðurkenndi Þjóðviljinn að stór-
framkvæmdirnar við Búrfell og Straum hefðu verið
gagnlegar og lét í ljós ugg um að skarð yrði fyrir
skildi þegar þeim lyki á næsta ári. Ber helzt að skilja
þessi orð blaðsins á þann veg, að það sé að undirbúa
árásir á ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki undirbúið
nýjar stóriðjuframkvæmdir, sem hefja mætti strax
að þessum loknum eða jafnvel fyrr!
En ekki er Þjóðviljinn samt enn kominn lengra á
vegi skynseminnar en svo, að hann heldur því blákalt
fram, að frumorsök allra okkar erfiðleika sé sú, að
við höfum fylgt í meginatriðum þeirri efnahagsstefnu,
sem nágrannaþjóðir okkar og lýðræðisríkin yfirleitt
telja heillavænlegasta, og tryggt hefur þeim þjóðum
betri lífskjör og meiri almenna farsæld en þekkist í
löndum kommúnista. „Skýringin felst umfram allt í
því að kerfið er rangt“ segir í forustugrein Þjóðviljans
í gær. Svona geta menn barið höfðinu við steininn,
þrátt fyrir þá staðreynd, sem öllum hinum siðmennt-
aða heimi er ljós, að hagkerfi kommúnismans stenzt
ekki samanburð við hagkerfi Vesturlanda.
Þess hefur einnig mátt sjá merki í Tímanum að þar
eru ráðamennimir farnir að sjá, að ekki muni lengur
tjóa að ganga með öllu fram hjá þeim augljósu stað-
reyndum, að aflabrestur, ótíð og verðfall hafi áhrif á
afkomu þjóðarbúsins. Það blað gleymir vitaskuld ekki
að tala um ranga stjómarstefnu, en telur þó hyggilegt
að fara að draga eitthvað úr fyrri fullyrðingum um
að allir erfiðleikarnir séu stjómarstefnunni að kenna.
Eitt er víst: Hefðu Framsóknarmenn og kommún-
ístar farið með völd í landinu undanfarin ár, hefðu
þeir í veigamiklum atriðum orðið að fylgja þeirri
stefnu, sem núverandi rfkisstjórn hefur fylgt, en ekki
hefði útkoman, þrátt fyrír það, orðið betri en nú, eftir
þeirri reynslu, sem fengizt hefur af samstjórn þessara
flokka.
Stjórnar-
skiptin í
Frakklandi
Couvé de Murville, sem de
Gaulle forseti fól stjómarmynd-
un, haföi nýhafizt handa við það
hlutverk, er þessar linur eru
ritaðar. Myndin af Georges
Pompidou fyrrverandi forsætis-
ráöherra sýnir hann koma bros-
andi af fundi de Gaulle, eftir
að forsetinn haföi gefið í skyn,
að hann yröi næsti forseti
Frakklands. Hin myndin er líka
ný — af hinum nýja forsætis-
ráðherra.
Neyðinni í Biafra verð-
ur ekki með orðum lýsf
Bjarga verður 600.000 frá hungurdauða
„Neyðin í Biafra er svo mikil,
að henni verður ekki með orðum
lýst“.
24 biðu bunu
í sprengingu
Sprenging varö i gær i verk-
smiðju í Bllterfeld í Austur-
Þýzkalandi.
Tuttugu og fjórir menn biöu
bana, en 83 meiddust svo mik-
ið, aö það varð að flytja þá í
sjúkrahús.
1 austur-þýzkri fregn um
þetta segir, að ekki sé kunnugt
um orsök sprengingarinnar.
Mótmæla íhlutun
Bunduríkjunnu
París: Á fundi 125 lögfræð-
inga frá 40 löndum, sem hald-
inn var i París, var samþykkt
að mótmæla íhlutun Bandaríkj-
anna i Vietnam.
Þannig komst að orði Elias
Berge, framkvæmdastjóri hjálp-
amefndar norsku kirkjunnar, er
hann hafði viðdvöl í Kaup-
mannahöfn síðdegis í gær á leið
til Uppsala, þar sem Alþjóða
kirkjuráðið er á ráöstefnu, en
Berge var að koma frá Biafra,
þar sem hann kynnti sér ástand
og horfur.
Ný risavaxin hjálparáætlun
verður rædd á Uppsalaráðstefn-
unni. Aöildarkirkjufélögin að
ráðinu verða beöin að leggja
fram sem svarar til um 168
milljónir króna til starfseminn-
ar.
Stjórnarvöldin i Lagos hafa
lofað að halda opinni ákveðinni
flutningaleið til Biafra, en mið-
stöð hjáiparstarfsemi Kirkju-
ráðsins verður á Fernando Po,
spönsku eynni, sem er úti fyrir
ströndum Biafra, birgðum safn-,
að þar saman, og flogið tii
Biafra.
Um 600.000 manns í landinu
eru bráðrar hjálpar þurfi.
Washington: Landvamaráð-
herra Bandaríkjanna hefir boð
að að smíöaður verði kafbátur
af nýrri gerð (super-uboat),
sem veröi miklu hraðskreiðari
en aðrir ' kafbátar. Hann kvað
kafbáta af þessari gerð verða
notaöa til sóknar, en neitaöi
frekari upplýsingum. Líklegt er
að kostnaður við smíði slíks
kafbáts verði um 100 milljónir
dollara á bát. — Bandaríkja-
menn eiga 58 Polariskafbáta í
notkun og 35 em 1 smíöum.
París: Fulltrúadeild franska
þjóðþingsins kom saman 11.
þ. m. til fundar í fyrsta sinn
eftir kosningar og kaus
Jacques Chaban-Delmas forseta
og var hann endurkjörinn. —
Nokkrir stjómmála-„spámenn“
töldu, að Pompidou kynni aö
verða fyrir vali, en f ljós kom,
að þeir höfðu rennt blint I sjó-
inn. Chaban-Delmas fékk 356
atkvæði.
Parfs: Seinustu vikur hefur
Frakkland selt gull tfl Banda-
ríkjanna fyrir 100 milljónir
dollara.
Stokkliölmun Stolið hefir ver-
ið mörgum merkum gripum úr
Nordiska Museet f Stokkhólmi ,
og er þeirra leitað um alla Sví-
þjóð.
Bonn: Talsvert tjón varð af 1
ofviðri í Vestur-Evrópu 11. þ.
m. 1 Vestur-Þýzkalandi einu
meiddust á annað hundrað
manns svo alvarlega, að flytja ,
varð fólkið í sjúkrahús. Ofviðrið ,
gerði einnig usla í héruðunum í .
Frakklandi, sem næst em
Þýzkalandi.
Saigon: Herdómstóll í Saigon
dæmdi 11. þ. m. til lífláts 10 ’
menn að þeim fjarverandi.
Meðal þeirra er ein kona. Menn- •
þessir voru forsprakkar í nýárs-
sókninni gegn Saigon, og var
þeirra meðal kunnur lögfræö-
ingur í Saigon, Trinh Dinh
Thao. Konan, Duong Quynh,
er kunn sem læknir. Allt þetta
fólk fer huldu höfði einhvers
staðar í Suöur-Vietnam.
Saigon: Bandarískar sprengju-
flugvélar geröu árásir 11. þ. m.
á mikilvægar olíu- og birgða-
stöðvar á leiðum í Vietnam
suður á bóginn. Eldur logaöi á
25 stööum eftir árásirnar. Olíu-
stöðvarnar sem eru 27 km. norð
austur af Mu Gia skarði voru
meðal skotmarkanna.
London: Talsvert tjón varð
af veöri og vatnavöxtum á
Bretlandi í ofviðrinu 11. þ. m.
og hermenn voru kvaddir til að-
stoðar fólki, sem sums staðar,
hafðist við á efri hæðum húsa
og þökum. Hundruð húsdýra
hafa drukknað.
Washington: Clark Clifford
landvarnaráðherra Bandaríki-
anna, tilkynnti 12. þ. m., að
hann færi til Saigon til ráö-
stefnu um hernaðinn í Suöur-
Vietnam. Clifford mun
fund Johnsons og van Thieu
forseta S.V., en fundur þeirra
verður í Honolulu 20. þ. m. að
þvi að áformað er.
I