Vísir - 20.07.1968, Side 1

Vísir - 20.07.1968, Side 1
VISIR 58. árg. - Laugardagur 29. iúlí 1968. - 159. tbl. Ráðherrarnir ræddu stúdentaóeirðirnar Norrænu menningarmálanefndinni falið að ræða málið i september ■ I gær lauk í Reykjavík fundi menntamálaráðherra Norðurlandanna, sem haldinn var í Alþingishúsinu. Að fund inum Ioknum ræddu ráðherr- arnir við fréttamenn, og Gylfi Þ. Gíslason skýrði stuttlega frá helztu umræðuefnum fundarins. ■ Margt kom þar til tals, ^g eítt af því sem vekur senni iega mesta athygli íslendinga, var stofnun norrænnar eld- fjallarannsóknastofnunar á ís landi. Þetta sagði ráðherrann, að væri samnorrænt áhuga- mál, og starfar fimm manna nefnd frá öllum Norðurlönd- unum að undirbúningi þess. Ennfremur var ákveðið að halda áfram samnorrænum sum- m->- 10. síða ÞORSK VCIBA RNA R NOSDAN'■ LANDS STÖD VAST ÍDAC Markaðurinn orðinn fullur — Löndunarbann á Húsavik — Atvinnuleysi að skapast i metveiðinni $ Vandræðaástand vofir nú yfir í atvinnumálum norðanlands, þar sem frystihúsin verða að hætta að taka á móti smáfiski af bátunum. Frystigeymslur \ húsanna eru víðast hvar orðnar fullar og búið er að verka upp í sölusamninga fyrir allt þetta ár. Heilfryst- ing á smáfiskinum verður stöðvuð frá og með degin- um í dag. • Togveiðibátar hafa sem kunn- ugt er aflað mjög vel nyrðra og er mikill hluti aflans smáfisk- ur, sem heilfrystur er fyrir Rúss- landsmarkað. Samkvæmt upplýs ingum, sem Visir fékk í gær hjá Eyjólfi ísfeid Eyjólfssyni hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er rammasamningur fyrir þess- ar pakkningar/ um 5000 tonn á þessu ári og er nú þegar búið að verka upp í þá samninga. Sagði Eyjólfur, að litlar líkur væru á að hægt yrði að semja um meiri sölu á þessari vöru til Rússlands og annar markaður væri ekki fyrir hendi. Frystigeymslur fullar Hraðfrystihús Fiskiðjusamlagsins á Húsavík hefur orðið að setja á löndunarbann í nokkra daga öðru hverju til þess að anna aflanum, sem á land berst. Sagöi Bjö.rn Ól- afsson. forstjóri Samlagsins, við Vísi i gær, að allar frystigeymslur frystihússins væru að fyllast og sömu sögu væri að segja á Dalvík, Hrísey og fleiri stöðum norðan- lands. — Allur flotinn verður í landi í dag (föstudag), á morgun og hinn daginn, sagði Björn. — Við getum ekki tekið á móti meiru, en það er hastarlegt, að menn skuli þurfa að ganga iðiulausír á götunum í blíð- skanarveðri og nægur fiskur úti ! fyrir. ALGJ0R METLAXVEIÐI FYRIR AUSTAN FJALL Laxveiðibændur telja aðalhrotuna jbó eftir, bar sem meginhluti veiðanna til þessa hafa verið 12-14 punda hrygnur ■ Gegndarlaus laxveiði hefur verið í stórám fyrir austan fjall að undanförnu, og muna menn þar ekki aðra eins veiði. 1 s.l. viku lögðu nokkrir netabændur á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár um 6 tonn af laxi inn til Kaupfélags Árnesinga, en það er langmesta magn, sem þar hefur verið lagt inn á elnni viku frá upphafi. — Að því er Gunnar Guðmundsson tjáði blaðinu, en hann vigtar laxinn inn hjá K.Á., telja bændur að mesta hrotan sé enn jftir og er því-allt útlit fyrir að algjört metsiímar verði í laxveiðum í sumar. í gærdag höfðu rúmlega 3 J/2 tonn af laxi borizt til kaupfé- lagsins, en búast mátti við tölu- verðu magni til viðbótar, þó vafasamt sé að eins mikið verði lagt þar inn og í siðustu viku. Kaupfélaginu hafa alls borizt rúm 14 tonn af laxi í sumar, en allt fyrrasumar bárust því milli 20 og 25 tonn. Netabændur telja að mesta hrotan sé enn eftir, en þeir marka það á þvi að hingað til hefur áberandi mikill hluti veiö- arinnar verið 10—14 punda hrygnur, en smálaxinn og stærri hængar, sem verið hafa verulegur hluti veiðarinnar til þessa, hafa mjög lítið veiðzt. Smálaxinn er greinilega tölu- vert seinna nú á ferðinni en venja er. Þá telja bændur að veiðin al- mennt sé jafnan mest eftir 20. júlí og fram til mánaðamóta. m->- 10. sfða 1 Við undruðumst að stúlkan frá Brasilíu skyldi vinna — sagði Helen Knútsdóttir, sem tók jbátt i Miss Universe keppninni □ Hún er nýkomin heim til lslands eftir að hafa tekið þátt í fegurðarsamkeppninni Miss Universe, sem fram fór í Miami í Bandaríkjunum ný- lega. Við hittum þessa glað- lyndu. 18 ára fegurðardís, Helen Knútsdóttur, að heiin- ili foreldra hennar og lögðum nokkrar spurningar fyrir hána á mcðan rigningin buldi á gluggum þægilegrar setu-' stofunnar, og unnið var við að mála önnur herbergi íbúð- arinnar, því einhvers staðar segir, að vel verði að hlúa að fögrum konum. 10. síða Sagði Björn, að aflinn hefði veriö mjög góður að undanförnu. Tekið hefði verið á móti 53 tonnum á þriöjudaginn, 91 tonni á miöviku- dag og 45 tonnum á fimmtudaginn. Frystihúsið á Húsavík er hætt að taka á móti ýsu, þar eð hún er mjög erfið í vinnslu, feit og geym- ist illa. Er ýsan varla hæf til flök- unar. Mikil sókn hefur verið í fisk- gengdina úti fyrir Norðurlandi. Auk togveiðibátanna frá Norðurlands- höfnum er mikill fjöldi hand- færabáta á miðunum nyrðra frá höfnum suð-vestan lands og eins frá Austfjöröum. — Afli hefur einn- ig verið mjög góður úti fyrir Aust- fjörðum í sumar og hafa trillur frá nærliggjandi höfnum fengið þar góð an afla. — Auk þess stunda margir 10. síöa IS«il

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.