Vísir - 20.07.1968, Blaðsíða 7
VÍSIR . Laugardagur 20. júlí 1968.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Rússar vilja fund flokksstjórna kommúnista-
flokka Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu 22.
eða 23. júlí
□ Framkvæmdastjórn sovézka kommúnistaflokks-
ins sendi framkvæmdastjórn tékkneska kommúnista-
flokksins bréf í gær og stakk upp á fundi flokksfor-
ustunnar í báðum löndunum 22. eða 23. júlí og verði
fundurinn haldinn í Moskvu, Kiev eða Llov.
Tass-fréttastofan leggur áherzlu .á mikilvægi þess,
að fundurinn verði haldinn og orðalag bréfsins og tónn
í því er sá, að útilokað er að flokksleiðtogarnir sovézku
vilji fara til Prag eða yfirleitt að fundurinn verði hald-
inn í Tékkóslóvakhi.
Fregnir frá Prag fyrr í gær greindu frá miðstjórnar-
fundinum í forsetahöllinni í Prag á þessa leið:
□ Miöstjóm tékkneska kommún-
istaflokksins kom saman til
fundar í spænska salnum í forseta-
höllinni við forustu Oldrichs Cern-
iks forsætisráðherra. Eitt hundrað
cg tiu menn eiga sæti í miöstjórn-
inni. Á dagskrá var að ræða svarið
við bréfi höfuðleiðtoga kommún-
istalandanna fimm, sem sátu Var-
sjárfundii*n á dögunum um þróun-
ina í Tékkóslóvakíu.
Þegar Cernik hafði sett samkom-
una og flutt stutta ræðu var fundi
frestað f hálfa klukkustund til 'þess
að míöstjórnarmenn gætu ■ athugað
göign þau, sem fyrir lágu.
Þegar fundur hófst að nýju, flutti
Alexander Dubcek — flokksleiðtog-
irm — ræðu, sem boðuð hafði verið,
og tilkynnti útvarpið í Prag, að hún
yröi birt síðar um daginn. AÖ henni
lokinni hófst umræðan.
Cernik sagði í hinni stuttu ræðu
sinni í upphafi fundarins, að borizt
hefðu 1700 skeyti og ályktanir frá
einstaklingum og stofnunum til
stuðnings afstöðu þeirri, sem tek-
in yrði.
Eins og getið var í fyrri fréttum
hertu Rússar taugastríðið gegn
Tékkum í gær með birtingu frétt-
arinnar um „leynilega áætlun“
Bandaríkjanna og hergagnafund í
Súdetalandinu.
Nikolaj Podgornij forseti flutti
ræöu og hét Tékkóslóvakíu víð-
tækri aðstoð til þess að stöðva
starfsemi hinna „and-socialistisku
afla“ í landinu.
Forsetinn endurtók margar þeirra
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að und-
angengnum úrskurði verða lögtök látin fram
fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda
en ábyrgð ríkissjóðs að átta dögum liðnum
frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir trygg-
ingaiðgjöldum af skipshöfnum 3. ársfjórð-
ungs 1968 ásamt skráningargjöldum.
d'--
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
19. júlí 1968.
ÚTBOÐ
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar óskar
eftir tilboðum í málningu utanhúss á stein-
flötum sex fjölbýlishúsa í Breiðholti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu F.B.,
Lágmúla 9, frá kl. 9.00 miðvikudaginn 24.
þ. m. gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 6. ágúst kl. 10 f. h.
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar.
ásakana, sem Dubcek hafði vísað hikað fylgja fram frjálsræöis- og I étríkjanna myndu veita Tékkum og
á bug í útvarpsræðu sinni á fimmtu
dagskvöld, en í þeirri ræðu kvað
hann tékkneska leiðtoga mundu ó-
umbótastefnunni. I Slóvökum alhliöa hjálp til vemdar
Hann tólc fram oftar en einu sinni „landvinningum socialismans.
í ræöu sinni, að kommúnistar Sov-1 Flokksfundir voru haldnir um
gjörvöll SoVétríkin í gær.
Sovézkar hersveitir á Ieið yfir landamæri Tékkóslóvakíu inn í Pólland, hálfum mánu'ði eftir að
lokið var heræfingum Varsjárbandalagsins.
Þjóðþing S.V. vill „aílýsa
Parísarlundinum
44
— 70.000 manna lið ver Saigon
Þjóðþingið í Suður-Víetnam hef-
ur beðið Nguyen van Thieu forseta
og Johnson forseta, að hætta sam-
komulagsumleitunum í París um
frið, ef kommúnistar haldi áfram
að gera eldflaugaárásir á Saigon
og lauma flúgumönnum inn í borg-
ina.
Þjóðþingið samþykkti einnig að
beina þeim tilmælum til Johnsons
forseta, að hann tilkynnti fulltrú-
um Norður-Víetnam, að samkomu-
lagsumleitanir gætu aðeins staöið
tiltekinn tima, til þess að komm-
únistar gætu ekki notað sér þaö
að rætt væri fram og aftur til lengd
ar um friö, meðan þeir byggju sig
undir frekari hernaðaráögerðir.
Vikuritið NEWSWEEK segir, að
sleginn hafi verið varnarhringur
kringum Saigon borginni til varn-
ar. Er þarna um tvöfaldan varnar-
hring að ræða og hafa bandamenn
þarna 75 bataljónir (um 70.000
manna liö, bandarískt og suður-ví-
etnamskt), en það er nú efst á blaöi
hjá bandarísku yfirherstjórninni að
verja Saigon, en enn búast menn
viö stórárás á borgina.
Aö fyrirskipun Abrams yfirhers-
höfðingja hafa verið reistir 50 varö-
turnar með radar-útbúnaði í út-
jöðrum borgarinnar, í þeim tilgangi
að finna eldflaugastöðvar og til leið
beiningar stórskotaliöinu, sem er
hluti varnarliðsins, en mestur hlut-
inn er stöðugt á ferli á ytra belti,
sem nær 50—60 km út fyrir innri
hringinn.
Öryggisráöstafanir voru mjög
hertar í Saigon og grennd í gær-
kvöldi vegna gruns um, að „þriðja
árásin" á borgina yrði gerð á „degi
smánarinnar", sem er i dag, laugar-
dag 20. júlí — en það er í dag,
sem undirritaöur var fyrir 14 árum
sáttmálinn um skiptingu Víetnatn
í tvö ríki. — Það er aö sjálfsögðu
í Víetnamj sem gremja manna yfir
skiptingunni leiddi til þess, að deg-
inum var valið þetta heiti. •
Verndarsveitir borgarinnar eru
hafðar viðbúnar og auka löigreglu-
vörður er á götunum.
Svo margt barst sem benti til
árásar, aö sýnt var, að hyggilegast
væri, að varnarsveitirnar væru við
öllu búnar, þótt herstjörnin telji
Víetcong ekki geta gért eins harð-
ar og tíöar árásir á borgina og 1
sókninni, sem hófst með nýári '
Buddhista.
Þjóðernishreyfingunni \
Woles eykst hratt fylgi
— Lá við borð, að kratar misstu þar eitt
V
sitt öruggasta virki
□ í aukakosningu, sem fram krata, en i seinustu almennum
fór í námubæ í Wales, kom
í ljós, að þjóðernisstefnunni í
Wales eykst geysihratt fylgi —
og voru úrslitin í kosningunni
mikið áfall fyrir Verkalýðsflokk-
inn — og gætu þau boðað mikla
óvissu á vettvangi stjórnmála á
Bretlandi á næstu árum.
Þjóðernissinnaflokkinn í Wal
þingkosningum sigruðu kratar
þarna meö 21.148 atkvæða mun.
Þetta kjördæmi hefur um hálfr-
ar aldar skeið verið eitt af ör-
uggustu virkjum krata. Ihalds-
flokkurinn migsti einnig fylgi,
fékk 3687 atkvæði en 1966 5182
atkvæði. Frjálslyndir sem ekki
buðu fram 1966, fengu 1257
es skorti aðeins 1874 atkvæði til atkvæöi, en welskir þjöðemis-
að hrifsa kjördæmið úr höndum sinnar, sem fengu 3949 atkvæöi
1966 fengu nú 14.247 atkvæði.