Vísir - 06.08.1968, Page 7
VISIR. Þriðjudagur 6. ágúst 1968,
morgun
útlönd í raorgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Deilan við leiðtoga Tékkóslóvakíu lögð á hilluna
vegna einingar kommúnistaflokkanna
Með samkomulaginu í
Bratislava var deilan um
leiðtoga Tékkóslóvakíu
lögð á hilluna vegna ein-
ingar kommúnistaflokk-
anna.
Alexander IXibcek, leiðtogi Komm
únistaflokks Tékkósl6vakiu, flutti
útvarps- og sjónvarpsræðu í fyrra-
kvöid, og gerði þjóðinni grein fyrir
viðræöunum í Cierna og Bratislava.
í ræðunni kvað hann svo aö orði,
að allar vonir bundnar við fundinn
I Bratislava hefðu rætzt, og hann
margendurtók, aö engir leynisamn-
ingar hefðu verið gerðir. Hann full-
vissaöi þjóöina um að sjálfstæði
landsins og sjálfsforræöi heföi ver-
ið tryggt, einnig hefði verið fallizt
á, að umbóta- og frjálsræðisstefn-
unni yrði haldið áfram, samkvæmt
áætlun og ákvörðun leiðtoga Tékkó-
slóvakíu, en markinu með henni
yröi aðeins náö innan vébanda sam-
starfs kommúnistalandanna, en
framtíö Tékkóslóvakíu væri undir
órofa samstarfi við þau komin. —
Hann bað menn gæta stillingar og
hverfa að störfum sínum.
Áður hafði verið birt sameiginleg
yfirlýsing kommúnistalandanna sex
sem þátt tóku í Bratislava-ráðstefn-
Oldrich Czemik, forsætisráðherra Tékkóslóvakíu í miðju) og Dubcek, flokksleiðtoginn, er þeir
buðu Kosygin velkominn til Cierna.
Flokksþing republikana hafið:
Nixon talinn sigurstrang-
legastur í upphafi þings
— LokaatkvæBi um forsetaefnin á morgun
• Flokksþing republikana í Banda
ríkjunum hófst í gær á Miami
Beach, Florida, og sitja það 1330
fulltrúar. Gert er ráð fyrir, að loka
atkvæði um forsetaefni flokksins
í forsetakosningunum í nóvember,
fari fram á morgun (miðvikudag).
Birt hefur verið uppkast að
I stefnuskrá flokksins i forsetakosn-
I ingunum.
Samkvæmt henni er flokkurinn
andvígur auknum viðskiptum viö
kommúnistalöndin þar til sýnt er
og sannað, að þau vilji í allri ein-
lægni frið í heiminum.
1 stefnuskránni segir, að flokkur
Friðafáðstefnan í Addis
Abeba var sett í gær
— Barizt á öllum vigstöðvum Nigeriu
O Friðarráðstefnan í Addis
Abeba var sett í gær áf
Haile Selassie Abesiníukeisara.
I útvarpi frá Biafra segir, að
barizt sé á öllum vígstöðvum,
og segja yfirmenn Biafra-her-
sveitanna, að sambandsstjórnin
í Lagos hafi gefið hershöfðingj-
um sambandshersins fyrirmæli
um, aö heyja sókn hvarvetna, til
þess að standa betur aö vígi að
fá kröfum framgengt á friðar-
ráðstefnunni í Addis Abeba.
í Umuahia, höfuðborg Biafra
hafa sem stendur safnazt sam-
an tugþúsundir manna, sem
hafa flúiö þangað frá bardaga-
svæðunum. Fyrir var mikill
fjöldi flóttamanna, sem ekki
hafði þak yfir höfuðið.
inn sé staðráðinn í að gripa til víð
tækra ráöstafana til þess að hindra
allt ofbeldi í borgum Bandaríkj-
anna.
Um styrjöldina í Víetnam segir
í henni, að markið sé og veröi
j stöðugt að því stefnt, að draga
■ Bandaríkin út úr styrjöldinni, en
; styðja jafnframt Suður-Víetnama
! til þess að taka aukna ábyrgð á
! sig af vörnum landsins og því
meira sem frá líður. Jafnframt er
tekið fram, að þessa afstöðu beri
ekki aö skilja svo, að flokkurinn
muni nokkum tíma fallast á „dul-
búna uppgjöf“ í Víetnam.
1 upphafi ráðstefnunnar var Nix-
on talinn sigurstranglegastur vegna
þess að „flokksvélin" er í gangi í
hans þágu og vegna þess, að hann
hefur flest atkvæði kjörmanna, þ.e.
þeirra sem skuldbundnir eru til
þess að greiða honum atkvæði í
fyrstu Iotu.
En aö því er virðist e'ru margir
þeirrar skoðunar, aö þótt Nixon
gangi með sigur af hólmi á þessum
vettvangi, hafi hann ekki mikla
möguleika til aö fá nægilegt kjós-
endafylgi í forsetakosningunum, en
það hafi Rockefeller hins vegar.
unni, eöa — auk Tékkóslóvakíu og
Sovétríkjanna, Póllands, Ungverja-
lands, Búlgaríu og Austur-Þýzka-
lands.
I yfirlýsingunni var sagt, aö sér-
hverju kommúnistaríki skyldi heim-
ilt að fara sínar eigin leiðir í fram-
kvæmd socialismans, án íhlutunar
annarra, og virða beri þjóöleg sér-
kenni og aðstæður í hverju landi.
Lögð var áherzla á einingu og sam-
starf, að því er varðaöi hermál og
landvamamál, og rætt var um
hversu efla mætti alþjóölegt sam-
starf, kommúnista.
Nokkurs uggs gætti bæði í Brat-
islava og Prag eftir að yfirlýsingin
var birt og gaus þá upp kvittur
um Ieynisamninga, en að því er
virðist hefur Dubcek og öðrum leiö-
togum tekizt að uppræta að mestu
þann ótta. Einkum virðast menn
hafa boriö kvíöboga fyrir, aö ein-
hverjar hömlur yrðu lagðar á skoö-
ana- og prentfrelsi, en leiðtogarnir
neita því með öllu. í fréttum vest-
rænna fréttaritara segir, að öllum
verði Ijóst innan tíðar, hver þróun-
in verði í þessum efnum.
1 hinni sameiginlegu tilkynningu
var sagt, aö eining væri um að efla
Varsjárbandalagiö, og að stofna
bæri til efnahagsráðstefnu eins
fljótt og gerlegt væri til þess aö
treysta efnahagslegt samstarf
þeirra, innan vébanda Comecon,
hins austur-evrópska sammarkaðs.
Rockefeller.
þar sem hann sé í hinum frjáls-
lyndari armi flokksins, og hafi
möguleika til að sigra hvorn sem
væri Humphrey eða McCarthy, þar
sem hann muni draga aö sér ó-
ánægða menn í flokki demokrata
og sennilega einnig mikinn fjölda
þeirra, sem enn eru í vafa og ef
til vill taka ekki ákvörðun um
hvaða flokki þeir greiða atkvæði,
fyrr en líður nær kosningum og
ef til vill ekki fyrr en á seinustu
stundu.
f framhaldsfréttum frá Miami
Beach f gær var sagt, aö mikið
væri um fundahöld fvrir luktum
dyrum og fast lagt að þeim kjör-
mönnum, sem ekki hafa skuldbund
ið sig til stuðningL viö ákveöin
forsetaefni, að taka afstöðu, og
eina af þessum fréttum, sem var
fremur óljós, mátti skilja svo, aö
staða Nixons værj aftur farin að
veikjast. ^>->-13. síða.
Yfirlýsingin var undirrituð i
speglasalnum í Bratislava og skrif-
uðu undir hana: Leonid Brezhnev
fyrir Kommúnistaflokk Sovétríkj-
anna, Janos Kadar fyrir Kommún-
istaflokk Ungverjalands, Walter
Ulbricht fyrir hönd Kommúnista-
flokks Austur-Þýzkalands, Todor
Zhivkov fyrir hönd Kommúnista
flokks Búlgaríu og Alexander Dub-
cek fyrir hönd Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu. Mikið var um bros
og faðmlög, segir f einni frétt.
1 NTB-frétt segir, aö yfirlýsing
in beri með sér, aö Tékkar hafi orð-
iö að lofa að halda áfram barátt-
unni gegn borgaralegri hugsjóna-
stefnu og gegn and-socialistiskum
öflum.
Skoðun margra stjórnmálafrétta-
ritara er, að ágreiningurinn um
stefnuna í Tékkóslóvakíu hefði ver-
ið lagður á hiliuna vegna kommún-
istiskrar einingar.
Pravda birti hina sameiginlegu
yfirlýsingu f heild á forsföu og
yfirleitt virðist henni vel tekið f
kommúnistalöndunum.
Mikil andúð var látin i ljós á
Walter Ulbricht, leiðtoga Austur-
Þýzkalands af mannsöfnuöi í Brat-
islava, en hann hefur allra komm-
únistiskra leiötoga haröast gagn-
rýnt tékkóslóvaska leiðtoga.
Sú skoöun hefur komiö fram meö
al vestrænna diplomata og stjórn-
málafréttaritara, að hið raunveru-
lega samkomulag hafi náðst í Ci-
erna, en fundurinn í Bratislava hafi
verið boðaður til þess að staðfesta
það.
AHt sovézkt herliö er sagt fariö
frá Tékkóslóvakíu.
MviinsBigarcithöfn
í Hiroshima
í frétt frá Hiroshima í morgun
segir, að klukkum kirkna og must-
era hafi verið hringt til þess að
minnast þeirra, sem létu lífiö í
kjarnorkuárásinni á borgina fyrir
23 árum.
Borgarstjórinn afhjúpaði minn-
ingartöflu, sem á eru nöfn þeirra,
sem á s.l. ári létu lífið vegna eftir-
áhrifa af kjarnorkuárásinni. Á töfl-
unni eru 212 nöfn. Borgarstjórinn
kvaö þaö bæn allra borgarbúa, að
þjóöir heimsins legðu algert bann
við notkun kjarnorku- og vetnis-
sprengja.
Richard Nixon ■
talinn sigurstranglegastur fram-
bjóðenda f upphafi þings.