Vísir - 06.08.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 06.08.1968, Blaðsíða 12
V- 12 "Zrfssm V í S IR . Þriðjudagur 6. ágúst 1968. ' ■ * -P w»u juwgjw— ' ANNE LORRAENE: — Undireins og ég hef fundið hús sem mér líkar, sagði hann og horfði fast á hana. — Það ætti ekki aö vera erfitt. Mary, hvað er þetta, sem þú ætlar að segja? Heldurðu, að þú sért ómissandi hérna f sjúkra -húsinu? — Nei, vitanlega ekki, svaraði hún. — Ég veit, að aðrir geta unnið mitt starf, en það er ekki ÞAÐ, sem er aöalatriöið. Heldur hitt að ég get ekki hætt við það, Tony — það er hluti úr sjálfri mér! Ég hélt ekki, að þú ætlaðist til aö ég afsalaði mér ÖLLU. Hann hallaði sér aftur í sætinu og varp öndinni. — Enginn biöur þig um að „afsala þér öllu“, sem þú kallar, sagði hann óþolinmóöur. — En þú skilur, aö mitt starfi verð- ur að sitja fyrir, þegar við erum gift. Það er alltaf starf, hvar sem er, fyrir konu með þá menntun og reynslu, sem þú hefur. En mitt starf er staðbundið. Sjúklingar eru alls staðar, og ég amast ekki við, að þú sinnir lækningum í tómstund um þínum. Það er alls staðar hægt að finna þess konar starf, hvaða sjúkrahús sem er, yrði fegiö að fá þig stund úr degi, ég er viss um það. Ég vil ekki sýna þér yfirgang. — Nei, sagði hún, og varir hennar þrýstust saman. — Þú munt ekki vilja það. En hefurðu gert þér grein fyTir, hverju ég ætti að sleppa, Tony Ég hef ýmsar skyldur hérna, sem mér dytti ekki I hug að hlaupast á burt frá í marga mánuði. Afsakaðu, ef þér finnst ég vera erfið, en þetta er ekki eins einfalt og þú heldur. Hún þagnaði og hann rumdi af gremju. Hann bað strax afsökunar, en hún heyrði að hann var æfur. — Ég hef fyrir iöngu skilið, að i það er erfitt aö fá þig til að fallast ! á nokkuð af því, sem ég sting upp á, sagöi hann biturlega. — Hvað gengur að þér, Mary? Eina stund ina segir þú, aö þú elskir mig og að þú óskir einskis annars en að elska og vera elskuð — en eftir nokkrar mínútur ertu komin aftur þangað, sem þú byrjaðir, og farin að leggja út af þínu starfi. Þú neitar að afsala þér nokkru mín vegna, og þú hugsar aðeins um sjálfa þig — þitt dýrmæta ÉG og bitt dvr- mæta starf. Þaö er svo afar áríð- andi — en kannski ekki eins áríð andi og þú telur þaö vera. Það er Hefi opnað lækningastofu í Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 11684. Viðtöl eftir umtali. Guðmundur Bjarnason læknir. Sérgrein: Barnaskurðlækningar — almennar skurðlækningar. I líklega þess vegna, sem þú talar svo mikiö um það. Þú ert alveg eins og hann faðir minn ... SANNLEIKURINN UM FÖÐUR MARY? Hann þagði og tók höndun- um fyrir andlitið. Henni datt sem snöggvast í hug, að hann væri að gráta. Hún studdi hendinni á handlegginn á honum til aö hugga hr .n. — Ég er kannski lík honum föður þínum, byrjaði hún klaufalega. — Tony, það er svo erfitt aö skýra þetta allt, en ég elska þig af heilum hug. En það er aðeins þetta, að ég elska starfið mitt líka. Mig langar til að halda því áfram, nokkra stund enn. Mér er það svo mikilsvert, góði — skilurðu það ekki? — Ég skil það allt of vel, sagði hann þyrrkingslega. — Mary, hvers vegna varð ég ástfanginn af þér? Ég hefði átt að hafa lært fyrir löngu, að það er ekki hægt að njóta ástar í samvistum við fólk eins og þig eða fööur minn. Hann lét móð ur mina liggja og deyja — einmana og hrædda. Þú gætir hafnað ást- inni, án þess að sakna nokkurs, ef starf þitt krefðist þess. Þetta er sannleikurinn, er það ekki rétt? — Nei, það er ekki rétt andæfði hún. — Þú ert ekki réttlátur við mig núna. Annað fólk giftist og heldur áfram að starfa fvrir því — hvers vegna skyldi ég ekki gera það líka? Faðir -minn giftist, skömmu eftir að hann hafði lokið læknisprófi .... Hún þagnaöi með tárin í augun- um Hann horfði hugsandi á hana. — Já? sagði hann. — Og iðraðist þess, var ekki svo? Hún kinkaði kolli, en gat ekkert sagt. Þegar hann ætlaði út úr bíln um, greip hún í handlegginn á hon- um. — En það yrði öðru vísi hjá okkur, sagöi hún ósjálfrátt. — Mamma revndi aldrei að skilja pabba? Tony leit á hana. — Ertu viss um, að það hafi verið móðir þín, sem ekki skiidi? spuröi hann rauna lega. — Þér hefur kannski aldrei dottiö sá möguleiki í hug, að það hafi verið faðir þinn, sem spillti lífi móður þinnar? Hefurðu nokk- urn tíma hugsað málið frá hennar sjónarmiði? Móðir þín var ung og kát og elskaði lífiö — og föður þinn. Hana langaði til að gera lífið bjartara og gleðilegra fyrir hann — hún vissi, að hann mundi aidrei komast á hæsta tindinn, og svo .... — Hvað veizt þú um föður minn? spurði hún æst. Hann hló lágt. — Faöir minn I þekkti föður þinn einu sinni, sagöi hann. — ’lann sagði mér frá því kvöldið eftir að við hittum þig hérna. Hann sagði, að flestir lækn ar á föður þíns aidri vissu, að hann hefði haft margar hugmvndir en litla hæfileika. Faðir þinn vissi, að hann var misheppnaður, og þess vegna faldi hann sig á bak við móður þína og kenndi henni um, að honum varð ekki ágengt. í raun réttri var það móður þinni að þakka þetta litla, sem honum vannst á sem sveitalækni. Hún hjálpaði honum og stappaöi í hann stálinu, þegar hann var aö byrja. Mary hriöskalf og gat varla kom ið upp nokkru orði. — Þetta er ósatt! sagði hún lágt. — Sannleikurinr. er oft sár, sagði Tony hægt. — Mary, segðu ekki meira núna, góða. Nú skaltu sofa á þessu, og svo segirðu mér, hvaö þú afræður. Ég elska þig alltaf, hvort sem þú kemur rheö mér til Devon eða ekki. Mér þykir slæmt, að ég hef sært þig, en ég þoli ekki, aö þú spillir ævi þinni, vegna þess að þú hefur gert þér i rangar hugmyndir um föður þinn. | Þú getur elskað hann áfram, ekki af þvi að þú vorkennir honum, j heldur af þvf, að hann elskar þig. Láttu þér þykja vænt um ástríkið, sem hann hefur sýnt þér, þó að það hafi komið fram í rangri mynd. Hann brosti og tók um höndina á henni. — Farðu nú inn og farðu að sofa. Hugsaðu ekkert um okk- ur — ég veit, að þetta fer allt vel. Á morgun muntu skilja, að ekk- ert skiptir máli nema þetta eina, að við slskum hvort annað. Góða nótt, elskan mín! Hún stóð við bílinn og horfði á hann eins og í leiöslu. Hún þráði að fá aö hugsa í einrúmi, en um leið þráði hún að vera hjá Tony. Það var líkast og hann skildi, að hún væri á báðum áttum, og hann sneri frá og gekk í áttina að deild inni með eins-manns herbergjun- um. Hún horfði á eftir honum, sár | og leiö. Svo gekk hún upp í lækna I bústaðinn. I ALLIR ÞURFA HJÁLPARHÖND. Mary sat á rúmstokknum og starði út í bláinn. Henni fannst sem hún væri í afturbata eftir þung veikindi. En ætti hún ekki að vera glöð og sæl núna? Það var aö. vísu rétt, að Tony haföi eyðilagt fyrir I henni hugsjónir, sem henni höfðu I verið helgar iengi, meö því sem hann sagði um fööur hennar, en var þetta ástæðan til þess, aö hún var svona bág núna? Hún hafði sagt Tony, aö hún elskaði hann og vildi giftast honum. Tony elskaði Ambáttimar munu færa þér mat og drykk, stríðsmaður... á meðan sendi ég eftir maka þínum. Við skiljum ekki. Qes-at. Við höldum engri konu hér sem sam- svarar þessari lýsingu. Nema hvað viðkemur rófunni. Hver gæti samsvarað þeirri lýsingu? HVER? Ha Dóttir yðar! JAR-ZA - sú undarlega. Einmitt - færið mér Jörsu strax. hana og hún elskaöi hann — gat hún þá verið i nokkrum vafa? Hvað ást hennar snerti, var ekki um neitt „ef“ að ræða. Hún var innilega ástfangin af Tony, og hún vissi, að líf hennar vrði fátæklegt án hans. Hvers vegna gat hún ekki fært fórnina, sem hann baö um? Hann haföi sagt, aö alls staðar væri nög aö starfa fyrir lækna, og það var rétt. Ef henni þótti jafn- vænt um starf sitt og hún sjálf sagði, hlaut henni að vera ljúft að gegna því, hvar sem þess var þörf. Hvað var það, sem aftraði henni? Hún stóð upp og gekk eiröarlaus um herbergið. Var eins mikil þörí á henni í Devon og hérna? Starf hennar hjá Carey var áríðandi, og hún dugði vel í því. Ef hún giftist Tony og færi að vinna part úr degi, - hvernig yrði það? Nokkurra klukkutíma vinna á næsta spítala — ef og þegar hún iosnaði frá heim ilisstörfunum. Og ef þau eignuðust barn — hvernig færi þá um starfið hennar? HagstæSusíu verö. Greiðsluskilmálar. Verndið verlcefni íslenzkra handa. FJÖLIÐJANHF. Sími 21195 Ægisgötu T Rvk. Maðurinn sem annars aldrei ies augfýsingar auglýsingar víSlsT lesa allir QGREIDDIR f REIKNINGAR ‘I LÁTIÐ OXKUR INNHEIMTA.. Oad sparar vður t'rma og óbægmdi INNHEIMT USKRIFST OFAN Tjarnargötu 10 — lll hæd — Vonarstrætismegin — Sím/13175 (31'mur) B53CV.1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.