Vísir - 17.08.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 17.08.1968, Blaðsíða 4
JL iiHwpw 1 ... David Niven í fullu fjöri i mynd- inni „Casino Royale“ þar sem hann lék á móti Peter Sellers og hefur myndin farið sigurför um allan heim. Enski kvikmyndaleikarinn Dav- id Niven var fyrir skömmu lagður inn á sjúkrahús, en hann hefur a ðundanfömu þjáðst mjög af botnlangabólgu. Hann mun verða frá vinnu um nokkurt skeið en er ekki talinn vera i neinni hættu. Hann leikur nú í sinni 83. kvik- mynd er nefnist „The Brain". Franski söngvarinn Charles Aznavour sem giftur er einni sænskri „blondinu" keypti á dögunum hótel í nágrenni Cann- es og var kaupverðið „aðeins" 7 milljónir islenzkar. Hótelið sem heitir Montana er ekki nálægt neinni baðströnd en er engu að síður mjög vinsælt hótel. Sú breyt ing verður þó á rekstri hótelsins að í framtíðinni mun enginn þurfa að greiða neitt gjald sem þar gistir. 55 NÚ ER ÉG LOKSINS BÚIN AÐ FINNA ÞANN RETTA“ -<*> Brigitte Bardot kynbomban heimsfræga sem fyrir skömmu skildi við eiginmann sinn Giinter Sachs og byrjaði að vera meö ítalska kvikmyndaleikaranum Gigi Rizzi, segist nú vera búin að finna þann rétta. Þau voru fyrir skömmu í Sviss en eru nú komin til Italíu, þar sem Rizzi ferðast meö hana og kynnir hana fyrir kunningjum sínum. Þau virð ast vera mjög ástfangin ef marka má þessa mynd, þar sem þau eru stödd á baðströnd á Ítalíu og vonandi að umsögn Brigitte sé nú rétt. Alltaf hefur hún verið með pálmann í höndunum en hent honum fljótlega frá íér aftur. HÚN Á VON Á SÉR I FIMMTA ítalska kvikmyndaleikkonan Sophia Loren á nú von á barni í byrjun janúar næsta árs. Hún hefur alltaf misst fóstrin og er nú sögð ætla að reyna í síöasta skipti að eignast barn. Hún er gift kvikmyndaframleiðandanum Carlo Ponti, en hann er allmörg- um árum eldri en hún. Hjónaband þeirra hefur alla tíð þótt mjög gott og þó virðist barnsleysið eðli lega eitthvað angra þau. Þau hjón in búa nú á hóteli í Geneve og er Sophia sögð fara mjög varlega um, enda sennilega full ástæöa til Bæði hafa þau tekið sér algjöra hvíld frá kvikmyndunum og ætla að eyða tímanum í hinu tæra fjallalofti i Sviss. li .. iWStifcS/W v.-’v Landbúnaðarsýningin Það er virkilega skemmtilegt að koma f heimsókn á hina mlklu og glæsilegu iandbúnaðar sýningu i Laugardalshöllinni. Fjölbreytnin er svo mikil og mikill glæslbragur á mörgu þvi, sem sýnt er. Borgarbúinn sem ekkl fer á slíka sýningu til þess að kynna sér beint ný'ustu bú- skapartækni með augum sér- fræðingslns, hefur ánægiu af mörgu þvf sem fyrir augu ber, og kynnlng á framleiðsluvörum nær vafalaust tilgangi sínum. Athyglisvert er, hve margt fólk safnaðist saman til að skoða hina glæsilegu sýningu á búpeningi. Unga fólkið sýnir hin um ýmsu dýrum óskiptan áhuga þó ekki sé um sjaidgæf dýr að ræða, en barna gefst tóm tll að skoða dýrin í nálægð. Ekki er nokkur vafi á því að dýra- sýningin er sá hluti hinnar mlklu sýningar, sem dregur að sér hvaö mest af hinum mikla fjölda sýningargesta. Inni i sýningarhöllinni ber margt fróðlegt fyrir augu, m. a er lönaði alls konar úr islenzkri sinni, því þó margt og mikið sé ritað um veiðl- og fiskiræktar- mál, þá eru þau mál svo ræki- lega undirstrikuö með því að sýna þennan lax sem einn þeirra sem skilað hefur sér aftur til sá timi eftir að renna upp, að hin alþjóðlega vetrartízka krefj- ist helzt allra íslenzkra sauða- gæra á uppsprengdu verði til að ylja stássmeyjum sem tolla vilja í tízkunni. Eins og öllum er JjfÍ0Ut0iGöÚl ull veltt verðug athygli. Enn- fremur virðist 14 punda Iaxinn úr laxaeldisstööinni eiga marga aðdáendur meðal sýninga.^esta Laxinn gekk aftur upp í stöð- ina eftir tvö ár í sió, en honum hafði verið sleppt sem niður- gönguseiði. Veiðimálastofnunin vekur með þessu verðugan á- huga á hinni merku starfsemi upþcldisstöðvanna, aö augu margra munu opnast fyrir gagn semi fiskiræktar í landinu. Einn ig á þessu sviði mun mikil fram- tíð vera fólgin. Mörg konan sást staldra við og gefa gaum gráum pelsum, sem til sýnis voru, en pelsar þessir voru unnir úr íslenzk- um sauðargærum. Kannski á kunnugt þá er tízkan óútreikn- anleg og duttlungum háð, en íslenzkar sauðargærur glæsi- vara, svo ekki væri það ólík- legt, að þær ættu eftir að verða eftirsóttar á hinum svokallaða heimsmarkaði. Islenzk útflutn- ingsverzlun er enn í deiglunni og margt er því ólært, en lík- legt er að miklar framfarir eigi eftir aö verða í framtíöinni einn ig á þvi sviði. Þá mun vegur íslenzkrar sauðkindar vafalaust vaxa vegna sinnar ullar og gæru. Annars vekur það nokkra at- hygli hins almenna áhorfanda, að Sambandið sýnir þarna meö nokkrum glæsibrag, en tók ekki þátt í nýafstaðinni sýnineu ís- lendingar og hafið, þó hafa sam- vinnufélögln haslaö sér nokkurn völl á sviði sjávarútvegsins. Ekki skal getum að þvf leltt hvaö veldur. í helld er þessi sýnlng með miklum glæsibrag og vafalaust sú umfangsmesta sem hér hefur verið haldin, og líklegt er að hún verði bændum tii gagns, og okkur hinum tii fróðleiks og ánægju. Hafi aðstandendur sýningar- innar þökk fyrir glæsilegt fram- tak. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.