Vísir - 11.09.1968, Blaðsíða 5
VlSIR . Miðvikudagur 11». september 1968.
s
Blómaskreytingar
og hlutirnir, sem
þarf til þeirra
Olómaskreytingarnar, sem
sýndar voru í Blómahþllinni
í Kópavogi um helgiija, drógu
að sér hundruð kvenna. Blóm og
Þessi skreyting er úr hvítum
crysanthemum, bleikum búkett
rósum og hvítum nellikum og
kostar kr. 435. Undirstaðan er
skál, en blómunum er stundið
niður „mosy“.
konur hafa alltaf verið nátengd
eða hvernig stæði annars á því,
að konur hafa hingað til nær
eingöngu notið þeirra forrétt-
inda að fá blóm til gjafa. Kon
ur hafa einnig mikinn áhuga á
að afla sér þekkingar á blóma-
skreytingum bæði á gjöfum og
einnig til heimilisprýði. Með
ýmsum hjálparmeðulum eru
skreytingar nú orönar mjög auð
veldar og skýrum viö frá því
hér á eftir.
Japanir hafa verið þekktir fyr
ir blómaskreytingar og hefur
engin þjóð komizt í hálfkvisti
viö þá í þeim efnum. Þar í
landi eru hlómaskreytingar list-
grein, sem vandað er til. Aðal-
einkenni japanskra blómaskreyt
inga er einfaldleiki og ættu kon-
ur að hafa það í huga aö of-
hleðsla á aldrei við, ef góður
árangur á að nást.
Jón Björgvinsson í Blómahöll
inni gaf okkur nokkrar leiðbein
ingar varðandi skreytingarnar
og hér eru þær.
Þegar skrevtingar eru útbún-
ar fyrir borð, er fyrst fyrir að
huga að undirstöðunni. Hún get
ur verið öskubakki, falleg skál,
spegill, kaffibakki með brún og
annars allt, sem ykkur dettur í
hug. Einkar fallegt er að nota
kerti ásamt blómunum til skreyt
inga. Einnig má benda á ávexti,
sem geta komið mjög ofesssynti-
lega út. Þá er röðin komin að
því vandamáli hvernig á að festa
blómin. Nú má segja að_ þetta
vandamál sé úr sögunni. Á mark
aönum fæst núna efni, sem kall
ast „oasis" eða „mosy“ og er
selt í pökkum (má líkja því
einna helzt viö harðan svamp).
Þetta efni er bleytt í vatni og
blómunum stungið í það. Efnið
eða köggullinn hefur það mikla
festu og þunga að jafnvel blóm,
strá og önnur skreytimeöul á
háum legg standa í þv£ án þess
að þarfnast frekari stuðnings.
Einn pakki af ,,mosy“ kostar
kr. 18 og á að endast í 2-3
skreytingar. Betra er að stinga
blómunum í þetta efni, þegar
það er blautt. Ef þið ætlið aö
beygja blómin kaupið þið vír,
sem fæst einnig í blómaverzlun-
um. Gott er líka að hafa hann
v við höndina, ef þið hnýtið slauf-
ur á skreytingarnar sjálfar.
Þá er röðin komin að blómun-
um. Þær ykkar, sem hafa eigin
garð, ættu nú að nota tækifær-
ið meðan blómin skarta sínum
fegursta lit og um leið að spara
ykkur þann eyrinn. Þá má benda
á pottaplöntur. Þegar þarf að
klippa þær til eða t.d. skei;a af
hengiplöntu er tilvalið að nota
afraksturinn til skreytinga. Við
minntumst áðan á kerti og á-
vexti, sem tilvalið er með blóm-
um. En það má nota miklu
fleiri hluti og sparið þá ekki £-
myndunaraflið. Grænmeti getur
verið frumlegt til borðskreyt-
inga, slaufur eru ekki óalgeng
skreyting og til að spara ykkur
tímann og ef einhverjar ykkar
eru ekki allt of lagnar við að
binda slaufur þá eru til sjálfbind
andi slaufur, og kostar metrinn
af þeim kr. 10. Þær slaufur eru
t.d. tilvaldar til skreytingar á
pökkum. Þessar sjálfbindandi
Hér sjáum við hvernig hægt
er að gera litla gjöf að stórri.
Kolan sem hægt er að nota t.d.
sem konfektskál er skreytt með
baldursbrá og rauðum nellikum.
Skreytingin kostar 125—150 kr.
slaufur eru á þann veg, að togað
er í einn þráöinn £ borðanum og
slaufan hnýtist' af sjálfu sér.
En höldum áfram, kalviður ei;
skemmtilegur til skreytinga,
trjábörkur, lyng og ekki má.
gleyma grjóti, sem hefur verið
notað með góðum árangri £
Blómahöllinni. Ef tiltaka á eina
reglu viö blómaskreytingu er
hún sú, að láta blómin aldrei
standa £ sömu hæð f skreytingu.
Og hvernig á að láta blómin
endast £ skreytingunni? Setja
þau á kaldan staö yfir nóttina
og sjá um að þau skorti aldrei
vatn. Og £ lokin má bæta þvi
við, að litla gjöf má gera stóra
með skreytingunni, hvort sem
hún er úr blómum eða öðru þvf,
sem hugarflugið býður ykkur.
Borðskreyting á spegli og með kertum.
Söluskattur í Kópavogi
Atvinnurekstur söluskattsgreiðenda annars
ársfjórðungs 1968 verður stöðvaður að liðn-
um átta dögum frá birtingu þessarar auglýs-
ingar, ef ekki eru gerð full skil fyrir þann
tíma.
Sama gíldir um nýálagðar víðbætur sölu-
skatts vegna eldri ára.
1 Bæjarfógetinn í Kópavogi.
TIL SÖLU
Opel Capitan ’62 allur yfirfarinn, góður bíll
ekinn 92 þús. km. Skipti á minni bíl koma
til greina.
Hef kaupendur að Volkswagen ’65—‘68.
Bílasalinn við Vitatorg.
Sími 12500 og 12600.
Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík.
TIL SÖLU
tveggja herbergja íbúð í I. byggingarflokki.
Þeir félagsmenn, sem neyta vilja forkaups-
réttar að íbúðinni, sendi umsóknir sínar í skrif-
stofu félagsins Stórholti 16 fyrir kl. 12 á há-
degi fimmtudaginn 19. september n.k.
Stjómin.
NYKOMIÐ
Amerískar molskinnsbuxur 50% terylene
með brotum sem ekki fara úr við þvott (Kora
tron) einnig vinnuskyrtur, straufríar, amerísk
úrvalsvara frá Amvil.
Ó. L. Laugaveg 71
TIL SOLU
Taunus 12M model ’64 fæst fyrir skuldabréf
2ja—5 ára. Uppl. í síma 12500 og 12600
Bílasalinn við Vitatorg
Miðstöðvarketill
25 til 30 ferm. miðstöðvarketill óskast keypt-
ur. Uppl. eftir kl. 19 í síma 83294.
mmtamm