Vísir - 11.09.1968, Blaðsíða 10
V1S x R . Miövikudagur 11. september 1968.
10
Bjargað eftir 14 tíma
hrakaiaga
■ Við vorum á leið út í
Þverál og rétt komnJr
þangað, þegar ógurlegur
hnykkur kom á bátinn. Ég veit
ekki af hverju hann stafaði.
Líklega höfum við rekizt á
trjádrumb, rótarhnyðju eða
annað rekald. — Óstöðvandi
leki kom að bátniim. Hann
fyllti á skammri stund. Við
blésum strax upp gúmbátinn
til þess að hafa hann tilbúinn.
Þannig sagöi Indriði Hjalta-
son formaöur á Farsæli frá
Skagaströnd frá upphafi 14 tíma
hrakninga í sjógangi og myrkri
aðfaranótt mánudagsins, þegar
Vlsir náði tali af honum í morg-
un.
Indriði fór í róður á Farsæli
um fimm tonna trillu frá Skaga
strönd klukkan fimm á mánu-
dag með honum var einn há-
seti, fimmtán ára piltur, Vigfús
SKIPAFRÉTTIR
Elvan. Báturinn sökk undan
þeim klukkan um hálf ellefu um
kvöldið og hrakti þá sföan um
úti fyrir Skaga í fulla þrettán
til fjórtán tíma.
Það var NA gjóla og gúmbát-
urinn fylltist strax af sjó. Við
reyndum að damla honum upp
undir land, en í honum voru lít-
il árablöð. — Við urðum strax
holdvotir af ágjöfunum. Þar að
auki byrjaði að :igna.'
Við sáum eltt skip djúpt út
frá okkUr og reyndum að gera
því viðvart með rakettum og öll
um tiltækum ráðum, en bað sá
okkur enginn um borð. Lengst
af sáum ”ið til lands, meðan
nóttin var túnglskinsbjört. En
síðan færðust skýjabólstrar yfir
og við töpuðum landsýn, þegar
á nóttina Ieið.
Um morguninn fengum við
svo aftur landsýn og þá vorum
við út af Skalla. Það bjárgaöi
okkur, að aðfall var og bar okk-
ur því að landi. Við reyndum
að dóla upp undir og vorum
komnir upp undir Ós við Kálfs-
hamarsvík, þegar til okkar sást
og við vorum sóttir á hraðbát.
Hlýjasfi sepfemberdag
ur svo árum skipfi í gær
— næst hlýjasti dagur sumarsins
8-15% —
3>))) -- I siöu
væri erlent hráefni. Tillaga frá
veröiagsstjóra var samþykkt, þar
sem ákveðið var, að að þvl er smá-
söluverð varðar, tækju hinar nýju
álagningarreglur ekki gildi, fyrr en
verzlanimar fengju vörur ' hækk-
uðu heildsöluverði vegna bráða-
birgðalaganna. Hlaut tillagan 5 at-
kvæði fulltrúa launþega og odda-
manns gegn 4 atkvæðum atvinnu-
rekenda.
Samþykkt var með 5 atkvæðum
atvinnurekenda og oddamanns gegn
4 atkvæðum launþega, að nýju regl-
urnar giltu aðeins jafn lengi og
hráðabirgðalögin.
Sem dæmi um álagpingu á ýmsar
vörur má nefna sykur. Þar verður
heildsöluálagningin 6,5% I stað 7
og smásöluálagning 22% í stað 24.
Svipað gildir um aðrar vörur. Hækk
un á verði verður mest á lágtolla-
vörum, svo sem matvörum, eða allt
að 15 af hundraði, en minna á vör-
um, sem bera háa tolla.
M.s. Blikur
I fer austur um land I hring-
ferð 16. þ.m. Vörumóttaka
briðjudag, miðvikudag og
'immtudag til Hornafjarðar,
Breiödalsvíkur, Stöðvarfjarðar,
Fáskrúðsfjarðar, Reyöarfjaröar,
"skifjarðar, Norðfjarðar, Mjóa-
‘jarðar, Seyöisfjarðar, Borgar-
'jarðar, Vopnafjarðar, Bakka-
'jarðar, Þórshafnar, Raufarhafn-
ar, Kópaskers, Húsavíkur, Akur-
evrir, Siglufjarðar, Norðurfjarð-
ar, ísafjarðar, Bolungavíkur,
Súgandafjarðar, Flateyrar, Þing-
eyrar, Bíldudals, Tálknafjarðar
og Patreksfjarðar.
• Hlýjasti septemberdagur svo ár
um skiptir var I Reykjavík I gær
og jafnframt næsthlýjasti dagur
sumarsins. Mæidist hitinn 18.5 stig
I Reykjavík en á Þingvölium varð
hann hæstur yfir landið og mældist
þar 20 stig. Samkvæmt upplýsing-
um Veðurstofunnar stafar hlýviðrið
af austanátt, sem berst hingað alla
leið frá Bretiandseyjum og megin
iandi Evrópu. Veldur þetta hlýja
FÉLAGSLÍF
Ferðafélag íslands ráögerir ferðir
um næstu helgi.
Á föstudagskvöld: Ferð á Kraka-
tind og I Hvanngil.
Á laugardagsmorgun: Haustlita-
ferð I Veiðivötn.
Á laugardag kl. 2 Þórsmerkur-
ferð. 1
Á laugardag klf 2 Landmanna-
laugar.
Upplýsingar I skrifstofu félagsins
simar 11798 og 19533.
ÓSKAST Á LELGU
3ja herbergja íbúð óskast 1.—15.
október. Upplýsingar í slma 33025.
loft þoku á Austfjörðum, en hlýind
um hér sunnanlands.
• Á þessari öld hefur einu sinni
áður mæizt meiri hiti í september.
Var það árið 1939 en þá komst hit-
inn upp I 20.1 stig þann 23. sept.
17.3 stiga hiti mældist I Reykjavík
I september árin 1934 og 1936.
Hæstur hiti í Reykjavík á þessu
sumri mældist f júlí 18.6 stig eöa
0.1 stigi hærra en I gær.
í morgun var 14 stiga hiti í
Reykjavík kl. 9 og er búizt viö
nókkuö svipuðu veöri hér í dag og
í gær.
París: Það hefir komiö mjög ó-
vænt að mennta- og listaráðherra
Frakklands André Malraux hefir
vikið frá starfi leikstjóranum og
leikaranum Jean Louis Barrault viö
Odeon-leikhúsið. sem er þjóðnýtt.
Hann hefir veriö leikhússtjóri þar
I 9 ár. Þegar stúdentar lögðu undir
sig leikhúsiö I óeirðunum 17. maí,
með mikium gauragangi, er sagt aö
Barfault hafi hrópað: „Jean Louis
Barrault er ekki lengur leikhús-
stjóri i þessu leikhúsi — Barrault
er dauður".
1 uppsagnarbréfinu segir, að
honum hafi verið vikið frá vegna
vmissa ummæla hans.
Annar bilðinn fannsf
þar sem hinum
hafði verið stolið
Lögreglan vinnur að rannsókn
tveggja bílþjófnaða, sem framdir
voru I fyrrinótt I Kópavogi og
Reykjavík og virðast I, tengslum
hvor viö annan. Var öðrum bílnum
stolið af Álfhólsvegi I Kópavogi ein
hvern tíma um nóttina, en hann
fannst svo vestur á Ægisgranda.
Hins vegar var hinum bílnum stol-
ið áf Vesturgötu um nóttina, en
hann fannst svo um morguninn I
Kópavogi á Álfhólsvegi I nágrenni
| þess staðar. sem fyrri bílnum hafði
! verið stolið af. Hefur vaknað sá
! grunur, að þama hafi veriö á ferð-
inni einn og sami þjófurinn, sem
hefur ekki viljað nota sama öku-
tækið báðar leiðir fram og til baka
I Kópavog.
Björn Jónsson _
m—> t. síöu
hugleitt alla stöðu Alþýöubanda
lagsins og þar á meðal síðustu
atburði. Ljóst er að Alþýðu-
bandalagið stendur nú á algjör-
um tímamótum. Þarna er hins
vegar ekki um einkamál mitt að
ræða og hlýt ég þvf aö hafa
samráð við samstarfsmenn mína
Jm land allt og stuðningsmenn
I kjördæmi mínu áöur en ég gef
yfirlýsingu um það. Það sama
gildir um, hvort ég muni sækja
landsfund Alþýðubandalagsins
nú I haust cða ekki.
Teljið þér að þessir síðustu
atburðir geti orðið undanfari
stofnunar nýs stjórnmálaflokks?
— Ég tel það fullkomlega
hugsanlegt.
Hafið þið undirbúið fund með
Iýðræðissinnum innan Alþýðu-
bandalagsins?
— Ég hef fregnað að þeim til-
mælum hafi verið beint til mín,
Hannibals Valdimarssonar og
fleiri, að við stæðum fyrir slík-
um fundi. Ég te' sjálfsagt, að
þeir 1 Alþýðubandalaginu, sem
ekki eru I Sósíalistaflokknum og
ekki þurfa að hlfta þar flokks-
legum aga, ræði 'málin, sagði
Björn að lokum.
Útför
ÞORBJÖRNS GEORGS GUNNARSSONAR (GÍÓS)
veröur gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12: þ. m.
M. 10.30 f. h.
Fyrir hönd fjarstaddra ættingj
Brandur Brynjólfsson.
Þvottavél til sölu
til sölu, mjög vel meö farin Hoover Matic-þvottavél.
Upplýsingar í síma 83728.
Rakari dæntdur —
-> 16. slðu.
kaup okkar. Lögð voru fram I mál-
inu ýtarleg sönnunargögn fyrir þvl,
að hárskerastofur, sem hafa venju-
legt og óaðfinnanlegt rekstrarform,
gefa svo Iftið í aðra hönd, að næst-
um mun vera einsdæmi nú á dög-
um. Skv. framlögðum rekstrarreikn-
ingum kom I ljós að árslaun rakara
voru eigi hærri en kr. 128.967.00
og þó er innifalið I þessum launum
eigendanna vextir af ei?:n framlags
fé, sem I þessu tilfelli var talið
nema tæplega 53 þúsund krónum á
hvorn.
Skv. þessu skulu ákvarðanir
verðlagsnefndar vera rökstuddar, ef
á reynir. Ákvarðanir, sem brjóta I
bág við fyrrnefnt lagaákvæði. eins
og við rakarar teljum að hér hafi
átt sér stað, ættu að vera að engu
hafandi.“
Grikkland —
Ib slöu
stuðla að þvf hjá alþjóðastofnun-
um, ríkisstjórn og Alþingi að mál-
staður lýðrcjðis I Grikklandi sé
I heiðri hafður.
Hreyfingin er óháð stjórnmála-
flokkum, en að henni standa með-
al annars unghreyfingar allra fjög-
urra stjómmálaflokkanna, öll stjóm
málafélög stúdenta, Alþýöusam-
bandið og Stúdentafélag Háskólans.
Auk þess ritstjórar og blaðamenn
frá öllum dagblöðunum, og fleiri.
Aðild er öllum heimil, sem berjast
vilja fyrir stefnu sa 'takanna.
Sigurður A. Magnússon, ritstjóri,
er aðalhvatamaður um stofnunina,
en hann er þaulkunnugur málum
Grikkja. Svipaðar hreyfingar munu
starfa I öllum rfkjum Vestur-Evr-
ópu, nema Spáni og Portúgal.
Sænska hreyfingin er öflugust, og
mun hin fslenzka leita fordæma
þangað.
I ráði er að bjóða hingað ein-
hverjum af forystumönnum lýð-
ræöissinna f Grikklandi. Kemur þá
helzt til greina hinn þekkti Andreas
Papandreou. sonur fyrrum forsætis-
ráðherra. Hann er nú landflótta.
Má vera, að hann haldi hér fyrir-
lestra.
BORGIN
BELLA
„Hvað segirðu?! Sagðist hann
ekkert vera hissa á því, — að það
væri mánudagur??!“
VEÐRIÐ
I DAG
Austan gola.
Skýjað að mestu.
Hiti 13—16 stig.
Knattspyrnuhorn íslands. Fram
^og Valur keppa í kvöld kl. ly^.
Komið þótt síöar sé. Mestuf
spenningurinn síðast.
TILKYNNINGAR
Hvaö ungur nemur — gamall
temur. Foreldrar, sýnið bömum
yðar fagurt fordæmi í umgengni.
Kvenfélagskonur Laugarnessókn-
ar. Muniö saumafundinn f kirkju
kjallaranum fimmtudaginn 12.
sept. kl. 8.30.
Bókasafn Sálarrannsóknafé-
lags sl ndr og afgreiðsla tfma-
ritsins Morguns. Garðastræti 8.
símí 18130 er opin á miðvikudags
kvöldum kl. 5.30 tíl 7 e.h. Skrit
stofa félagsins er opin á sama
tfma.