Vísir - 13.09.1968, Blaðsíða 7
'F 1SIR . Föstudagur 13. september 1968.
7
morgun
útlönd
morgun
útlönd í raorgun
útlönd í rnorgun
útlönd:
Longo ómyrkur i máfí um
réttindi kommúnistoflokka
Hann vill hernámsliðið burt frá Tékkóslóvakiu og
að lancfið endurheimti þegar fullt sjálfstæði
Longo Ieiðtogi ítalskra kommún-
istaflokka sagði i gær, að flytja
yröi hemámsliðið burt frá Tékkó-
slóvakíu og láta landiö fá fullt
sjálfstæði þegar í stað. Hann var-
aði við þeirri hættu, að kalda stríð-
ið blossaði upp á nýjan leik.
í viðtali sem birt var f gær hélt
hann fast fram rétti sérhvers
kommúnistaflokks til ákvörðunar
um þá stefnu, sem hann vill fylgja.
Longo er aðalritari Kommúnista-
fiokks Ítalíu fjölmennasta komm-
Heldur útlegð
en ófrelsi
í fréttum frá Austurríki í gær var
sagt, að á förum þaðan sem inn-
flytjendur til Ástralíu væri fyrsti
hópur flóttafólks, um 160 manns,
og væru í hópnum menntamenn,
háskólakennarar og vísindamenn,
og menn ýmissa annarra stétta.
Fimmtíu manna hópur er farinn til
Kanada.
Hópar þeir, sem hér um ræðir,
eru fyrstu stóru hópamir, sem
farið hafa frá Austurríki. Menn
hafa lagt eyrun við hvatn-
ingum leiðtoganna heima, að koma
heim, en trú flestra á framtíðina
er glötuð vegna hemámsins og
vilja heldur útlegð en ófrelsi.
únistaflokksins í hinum vestræna
heimi.
Hann kvaðst líta svo á, aö hinn
áformaði alþjöðafundur kommún-!
neinu gagni á núlíðandi tíma
vegna þess, sem gerzt h?*fði ■'
Tékkóslóvakíu. Hann sagði ítalska
kommúnista hafa stutt hugmynd-
ina um slíka ráðstefnu sem grund-
völl til þess að brúa þau bii klofn-
ings, sem brúa þyrfti.
Viðtalið var birt í kommúnista
ista í nóvember gæti ekki orðið aö | vikuritinu Rina Scita.
Viðskipti EBE við ýmis
lönd rædd í haust
Bríissel í gær: Efnahagsbandalag-
ið mun nú með haustinu hefja við-
ræður viö lönd, sem óska efna-
hags- eða viðskiptalegs samkomu-
lags við bandalagið.
í lok þessa mánaðar muni við-
ræður hefjast við Júgóslavíu um
> hagræðingu á viðskiptum milli
i hennar og bandalagsins. Talið er,
aö bandalagið sé að verulegu
leyti hlynnt því, aö verða við ósk
Matvælaflutningar
til Biafra að
næturlagi
Fréttir frá Genf í gær hermdu,
að fimm flutningaflugvélar Alþjóða
Rauða krossins hefðu flutt 42 lest-
ir af matvælum til Biafra í fyrri-
nótt og 9 flugvélar 72 lestir nótt-
ina þar áður.
Ein flugvéianna varð að snúa
aftur til Fernando Po og var ekki
vitað meö vissu hvort það var
vegna hernaðaraðgerða eða bilunar.
Fréttin um færri flugferöir kom
eftir að frétzt hafði, að hersveitir
sambandsstjórnar ættu ófarna að
eins fárra kílómetra vegarlengd til
Uli-Ihiala flugbrautarinnar, en þaö
en það er önnur þeirra flugbrauta
sem Rauöi krossinn hefir afnot af.
Hin er undir vatni eftir óhemju
rigningar.
um Júgóslavíu.
í október munu hefjast viðræður
við Möltu, og í nóvember verða
teknar upp á ný viöræður við
Kongó og Túnis.
Hins vegar liggur ekkert fyrir
um viðræöur við Austurríki og
kennir bar ítalskra áhrifa, sem eiga
rætur að rekja il deilunnar um
Suður-Týról.
Ennfremur verða framhaldsvið-
ræður um auka-aðildir Afríkulanda.
Ráðherranefndin kemur saman í
seinasta lagi 15. des.
Þessi mynd af þeim Oldrich Cernik (til vinstri) og Alexander
Kusnetzov, aðstoðarutanríkisráðherra, Sovétríkjanna var tekin er
Cernik bauð hann velkominn til Prag fyrir nokkrum dögum til við-
ræðna.
Eftirlit með biöðum, útvarpi
og sjónvarpi lögleitt
ALGEIRSBORG: Borgarastyrjöldin
í Nígeríu er ekki á dagskrá á „topp
fundi“ Einingarsamtaka Afríku,
sem hefst í dag í Algeirsborg, en
fulltrúar 39 landa hiýöa á, er Haile
I Selassie Eþjópíukeisari gerir grein
! fyrir tilraunum til málamiðlunar,
| en hann er æðsti maður nefndar-
samtakanna, sem að þessu unnu án
j árangurs. Nefndin hefur þvertekið
j fyrir að borgarastyrjöldin veröi
! rædd á ráðstefnunni. Fjögur lönd
j Einingarsamtakanna hafa viður-
I kennt Biafra: Tanzania, Zambia,
j Gabon og Fílabeinsströndin.
TEL AVIV: Skotið var í gær á tyær
bifreiðir ísraelskra varðflokka frá
stöðvum austan Jórdan. Enginn
: hinna ísraelsku hermanna særðist
I eða beið bana.
Sovétstjórnin neitar Tékkum
um bætur vegna efnahags-
tjóns af völdum hernámsins
Moskvu í gær: Haldið er áfram
áróðri í Moskvu gegn „pólitískum
fjandmönnum" í Prag, en ekki
nefnt einu orði > blöðum, að hreyf-
ing væri komin á sovézka skrið-
dreka, stórskotalið og annaö lið úr
miðhverfum Prag til stöðva viö út-
iaðra borgarinm,..
Öll blöðin birta hina opinberu
tilkynningu Tass-fréttastofunnar
frá i fyrradag, að sovétstjórnin
neiti að greiða það efnahagslega
tjón, sem Tékkó-Slóvakar bíða
vegna dvalar hernámsliðsins í
landinu. Hamraö er á því, að gagn-
byltingjrmenn beri ábyrgðina og
þeir- eigi að greiða kostnaöinn.
Á þetta er iitið svo sem sovét-
stjórnin sé enn að þjarma að leið-
togum Tékkóslóvakíu, að þagga
niðri í þeim, sem gagnrýna Sovét-
ríkin vegna hernámsins. gagnbylt-
ingarmönnunum, sem sovétleið-
togar svo nefna.
Þjóðþing Tékkóslóvakíu kemur
saman til i’undar í dag til þess að
ræða írumvarp til laga um að inn-
leiða aftur eftjrlit með blöðum, út-
varpi og sjónvarpi, en ríkisstjómin
sai þvkkti frumvarpið í gær á fundi
sínum.
Samkvæmt frumvarpinu er lagt
bann við flutningi á öllu, sem get-
,ur orðið til tjóns þjóðarhagsmunum
; á sviði innan og utanríkismála.
Smirkovsky forseti þjóðþingsins
og Kusnetzov varautanríkisráð-
herra Sovétríkjanna hafa rætt þessi
Varasjóður til
landvarna 30 millj-
arðar pundu
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
hefur samþykkt að leggja til hlið-
ar upphæð, sem svarar til 30 millj-
arða punda til landvarna og eru
engin dæmi til, að slíkt hafi verið
gert. Lög um þetta voru afgreidd
til öldungadeildarinnar.
Efling Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins er nú mjög aukið áhuga-
mál og fara fram viðræður um
þau mái milli ýmissa ríkisstjórna
Norður-Atlantshafsbandalagsins,
til undirbúnings frekari viðræðum
á ráðherrafundum bandalagsins.
I gær var tilkynnt í Washington,
að Dean Rusk hefði rætt við sér
legan fulltrúa Bonnstjórnar og
kom þeim saman um nauðsyn þess,
að efla varnir bandalagsins.
Auk þess hafa þeir Rusk og
Nixon hvatt til þess að varnir
Norður-Atlantshafsbandalagsins
verði efldar.
mál á fundum í Prag. Einnig hafa
Cernik og Kusnetzov ræðzt við.
Orðrómur er á kreiki um þaö í
Prag, að Hajek utanrikisráðherra sé
í þann veginn að fara frá, en engin
staðfesting fékkst á því, hvort þetta
heföi viö rök að styöjast eða ekki.
Prag-fréttaritari brezka útvarps-
ins símar og segir það almennt á-
lit, að á því einu leiki vafi að ætlan
mann, hvenær Hajek fari frá, þar
sem sovétstjórnin óski þess.
Fréttirnar um skiptingu heims
i áhrifasvæði fjarstæða
Dean Rusk utanríkisráðherra
Bandaríkjanna lýsti það fjarstæðu
í gærkvöldi, að nokkurt samkomu-
lag, belnt eöa óbeint, hefði verið
gert um það við Sovétríkin, að
Dean Rusk.
skipta heiminum í áhrifasvæði
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Ennfremur neitaði hann, aö
Bandaríkjastjórn hefði átt þátt í
neinu, sem hefði getað geflð til-
efni til hernáms í Tékkóslóvakíu.
Að undanförnu hefur mikið ver
ið rætt um þetta — að Bandaríkin
og Sovétríkin hafi komið sér saman
um að skipta heiminum milli sín I
áhrifasvæði.
Það hefir hins vegar aldrei kom-
ið neitt fram til sönnunar því að
um þetta hafi veriö rætt rriilli rik-
isstjórna þessara ianda og enn sið
ur að um þetta sé neitt beint eða
óbeint samkomulag, en hitt er svo
annaö mál, að þessi tvö stórveldi;
eru mestu ráðandi hvort á sínu á-
áhrifasvæði, en Kína er þriðja veld
ið og seilist til áhrifa í Afríku og
víðar sem Sovétríkin, og loks eru ‘
rikin sem vilja ekki bindast neinum
stórveldum, en eru þó upp á þau
komin, svo sem Júgóslavía, Pakist-
an, Indland og Egyptaland. I öllum
þessum löndum er hernám Tékkó-
slóvakíu óvinsælt og raunverulega
fordæmt, þótt opinberlega sé fram
koma þessara ríkja (nema Júgóslav-
íu) loðin og hefir það komið fram f
Öryggisráði (Indland, Pakistan).