Vísir - 30.10.1968, Qupperneq 3
VISIR . Miðvikudagur 30. október 1968.
3
Þaö er ys og þys við hafnargeröina, en þarna vinna um 150 manns. Grjótgarðurinn sést til hægri. Til vinstri sjást kerin þar sem þau eru geymd fljótandi,
áöur en þeim er sökkt viö grjótgarðinn. Minni grjótgaröurinn til vinstri er notaður til aö koma kerjunum á flot.
i
8/
fjgpjsÍa'rÍMfcTÍ ift&jSjgjlf: gpf: ggpjp : • ■ jb
íiliilSSiiy Él&iiraMfe
Höfn fyrir
60 þús. tonna skip
T Tm miðjan maí næstkomandi
mun fyrsta skipið leggjast
við bryggju í höfninni nýju í
Straumsvfk. Skipið mun losa 5
—6 þús. tonn af áloxíði, sem
verður notað við prufukeyrslu
verksmiðjunnar þá um sumarið,
þar til verksmiðjan tekur til
fullra starfa i september. Ekki
er annaö sjáanlegt, en að ekkert
verði því að vanbúnaði að skip
ið geti lagzt að, svo framarlega,
sem það verður ekki stærra en
20 þús. tonn. Um haustið eða
áður en verksmiðjan verður kom
in í full afköst verður hægt að
taka á móti 30 þús tonna skipi,
en það skip mun koma ,með hrá-
efni í 6 mánaða vinnslu verk-
smiðjunnar. Seinna þegar af-
köst verksmiöjunnar hafa verið
aukin, er áætlunin að 50—60
þús. tonna skip geti losað farm
sinn í höfninni.
Framkvæmdir allar Við höfn-
ina voru töluvert á eftir áætlun
lengi vel en upp á síðkastið hef
ur mikið unnizt á, að því er Dan-
iel Gestsson, yfirverkfræðingur
hjá Hafnarmálastofnun ríkisins,
tjáði blaðinu. í>að er Hafnar-
málastofnunin, sem sér um um-
sjón við hafnargerðina fyrir
hönd Hafnarfjarðarkaupstaðar,
sem verður eigandi hennar. All-
ar frumáætlanir voru unnsr
þar, en danska verkfræðifyrir-
tækið Christian & Nielsen, sem
er stærsta verkfræðifyrirtæki á
Norðurlöndum, sá um að útfæra
Kraninn vinnur að dýpkun hafnarinnar. Efnið, sem grafiö er
upp af sjávarbotni er notað til uppfyllingar milli kerjanna og
grjótgarðsins.
Fyllt.í kerin. Þeim er sökkt meö því aö hleypt er í þau sjó, en síðan eru þau fyllt með grús.
Höfnin verður fyrst í staö 10 metrar á dýpt en seinna veröUB
hún dýpkuð í 12 metra.
hugmyndirnar. Verkið var boð-
ið út og hlaut fyrirtækjasam-
steypan Hochtief-Vélfækni verk
ið. Það bauð í verkið fyrir 160
millj. kr. en með öllum kostnaði
meðtöldum vaxtakostnaði er
gert ráð fyrir að höfnin muni
kosta nokkuð yfir 200 millj. kr.
Gerð griótgarðsins hefur ver
ið lokið, en nú er unnið við að
sökkva kerjum við garðinn,
dýpka höfnina og fvlla upp milli
garðsins og kerjanna. 20 ker
hafa verið steypt og hefur 7
þeirra verið sökkt við bryggju-
hausipn. Kerin hafa að nokkru
leyti verið steypt með skriðmót-
um, sem hefur sparað mikla
vinnu við uppslátt.
Það eru ýmsar hugmyndir um
áframhaldandi hafnarfram-
kvæmdir þarna í Straumsvfk, en
ekki er gott að spá um hvað úr
því verður. Það er talað um ol-
íuhreinsunarhöfn, höfn fyrir
sjóefnavinnsluverksmiðju suður
á Reykjanesskaga, fyrir vítisóta-
verksmiðju o.fl. Ef svo fer má
Reykjavikurhöfn fara að vara
sig. •
1 fmW
\
I