Vísir - 30.10.1968, Page 7
VÍSIR . Mlðvikudagur 30. október 1968.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
lítlönd í morgun
útlönd
McCARTHY HÉT HUMPHREY
STUÐNINGI í GÆR -
hefði ekki lýst yfir nógu eindregn-
um stuðningi og yfirlýsing hans
komiö of seint fram, en nú er tæp
vika til kjördags.
— er aðe/'ns vctr vika til kjördags
Washington: Eugene Mc-
Carthy öldungadeildarþing
maður frá Minnesota hét
Hubert Humphrey forseta-
efni demokrata stuðningi í
gær — en fremur þótti yf-
irlýsing hans um þetta mál
hálfvelgjuleg. — Samtímis
boðaði hann, að hann yrði
ekki í kjöri sem öldunga-
deildarþingmaður 1970.
McCarthy sagði, að hann teldi
afstöðu Humphreys til Vietnam og
annarra helztu mála iangt frá að
vera eins og hann taldi æskilegt, en
hann hefði þrátt fyrir það ákveðið
að styðja hann, þar sem hann hefði
betri skilning á því en keppinautur
hans Richard Nixon, hvað gera
bæri á vettvangi innanlandsmála,
og líkumar fyrir að draga myndi
úr þenslu á alþjóðavettvangi væru
meiri undir hans stjóm en Nixons.
Nokkuð þótti það óljóst, sem
McCarthy sagði um stjómmálalega
framtíð sína, en hann sagði þó, að
hann myndi draga sig algerlega I
hlé frá stjórnmálum, nema greini
leg breyting yrði á framkomu demó
krataflökksins.
Alla tíð sföan McCarthy beið ósig
ur fyrir Hutnphrey á flokksþing-
inu hefur verið mikið rætt um það
hvort hann myndi snúast til fyigis
við Humphrey, er líði á kosninga-
baráttuna, en hann dró það sem sé
þar til ekki var nema vika til kosn
inga, og er nú eftir að vita að hve
miklu gagni stuðningur hans verö-
ur Humphrey, en líklegt verður að
telja, eftir því sem áður hefur fram
komið, að Humphrey standi betur
að vígi vegna stuðningsins, þrátt
fvrir „há)fveigjuna.“
McCarthy er nú 52 ára. — Get-
gátur hafa verið uppi um, að hann
myndi segja sig úr flokknum, er
þingmennskutímabi! hans er á enda
1970, og stofna sinn eigin flokk,
en í yfirlýsingu sinni gaf j hann í
skyn að hann myndi taka 'ákvarð-
anir, er hann sæi hvernig þróunin
yrði í flokknum.
McCar(thy sagði og í gær, að
hann myndi ekki sækjast eftir að
verða forsetaefni flokksins 1972.
McCarthy var kjörinn þingmaöur
í fulltrúadeildina 1949 og hefur átt
sæti í öldungadeildinni frá 1958,
McCarthy lagði áherzlu á, að
hann hefði ekki gleymt því sem
gerðist á flokksþinginu eða sætt
sig við það, en þá voru algjörlega
felldar tillögur hans um frið í Viet
nam, og ungir stuðningsmenn hans
voru barðir til óbóta í blóðugum
átökum við lögregluna.
Washington: Humphrey varafor-
seti Bandaríkjanna, forsetaefni
demokrata, lýsti í gær ánægju sinni
yfir því, að McCar’thy öldungadeild-
arþingmaður hefur lýst yfir stuðn-
ingi við hann.
En einn af helztu stuðningsmönn
um Humphreys sagöi, að McCarthy
McCarthy.
Sojus þríðji enn á lofti
— Kann að fara oftar kringum
jórðu en mannaB sovézkt geimfar
hefir ábur fariB
Sovézki geimfarinn Beregovoj
hafði í gær farið yfir 50 sinnum
kringum jörðu í Sojusi þriðja or
haldi hann áfram ferðinni og allt
gangi að óskum verður hann búinn
að fara oftar kringum jörðu en
nokkur sovét-geimfari annar, en
Andrejan Nikolajev fór 64 sinnum
Kí ingum iörðu í ágúst 1962.
Beregovoj lætur vel af sér og seg
ir ferðina mjög þægilega. Hann hef-
ir flutt ræðu og svnt þeim sem
sjónvarps njóta „loggbók“ sína.
Hann breýtti um stefnu eftir að
Nýtt hneyksli inn-
an vébanda EBE
Greiddar 50 milljónir franka fyrir útflutning
landbúnaðarafurða, sem aldrei átti sér stað
Van Thieu líkir samsteypu-
stjórn með kommúnistum
v/ð „þjóöar sjáltsmorð4
r//
■ Brussel: Hollenzki þingmaður-
inn J. Vredeling hefur leitt athygli
Evrópunefndarinnar ■ 5 orðrómi um
nýtt fjársvikamál innan vébanda
Efnahagsbandalags Evrópu með ó-
réttlætanlegri útborgun 50 miiljóna
franka fyrir útfluttar landbúnaðar-
afurðir, þar sem sá útflutningur.
átti sér aldrei stað.
í svari sínu til þingmannsins seg-
ir nefndin, að hún hafi ekki opin-
berar upplýsingar um málið, en hún
hafi beðiö frönsku stjórnina um
greinargerð.
Nefndin leiðir athygli að því, að
síðan upp komst um fyrri fjársvik,
hafi hún gert allt sem í hennar
valdi stóð til þess að hindra endur-
tekningar, og sent ráðherranefnd-
inni ýmsar tillögur, sem miða að
bví að koma f veg fyrir misferli
tengt stuðningi við útflutning land-
búnaðarafurða. Það eru ósmáar upp
hæðir, sem fara- um landbúnaðar-
sióð sammarkaðsins, því að á þessu
ári nema útborganir sem svarar til!
t.veggja milliarða dollara og þær |
hækka um að minnsta kosti hálfan
milliarð á næsta ári. |
.Nefndin álítur vafasamt, að
sjððurinn verði fyrir tapi, þar sem
útborganir fara jafnan fram löngu
eftir á, og sé um ný fjár-
svi'kamál að ræða, lendi endanlegt
tap á ríkissjóðum einstakra sam-
markaðslanda, í þessu tilfelli á rík-
issjóði Frakkiands. Lagaleg atriði
tengd þessu eru enn til athugunar.
Átök / Madrid
milli falang-
ista og
lögreglu
Tii snarpra átaka kom í gær milli
lögreglu og falangista. sem gengu
í fylkingu um götur, eftir að hafa
komið saman til þess að minnast
35 ára afmælis flokksins.
Franco átti áður aðalfylgi'sitt i
flokknum, en mikil óánægja er
meðal falangista yfir dvínandi fylgi
flokksins. og er litið svo á, að þessi
átök .*ýni að bilið milli stiórnar-
innar og flokksins fari enn breikk-
andi.
Nguyen van Thieu forseti S-Vi-
etnam líkti því við þjóðarsjálfsmorð
í gær, ef mynduð væri samsteypu
stjórn með þátttöku kommúnista.
Ræðuna flutti hann eftir að hann
hafði setið enn einn viðræðufund-
inn með Ellsworth Bunker, ambassa
■’or Ban'Iar'kianna.
Viðræðurnar hafa snúizt um
stöðvun sprengiárása á Norður-Ví-
etnam og aðrar ráðstafanir sem
miða að friöi.
I ræðu sinni nefndi van Thieu
ekki ambassadorinn eða viðræð-
urnar, en endurtók að hann væri á
móti því að þjóðfrelsishreyfingin
væri viðurkennd og hann lýsti sig
andvígan hugmyndinni um sam-
steypustjórn.
Tiu þúsund Slóvakar hrópuðu:
Rússar, hverfið heim!
Sojus annar hafði lent mjúkri
lendingu. Ekkert hefir veriö gefið
í skyn um að Sojus annar og Sojus
þriðji séu nákvæmlega sömu gerð
ar —en ef. svo er, kann Sojus
þriðji að .verða látinn lenda mjúkri
lendingu, í staö þess að láta hann
lenda í fallhlíf. — Mannað sov-
ézkt geimfar hefir aöeins einu
sinni Ient mjúkri lendingu (í marz
1965) en þaö lenti á afviknum
stað með þá Pavel Beljaev og Al-
exei Leonov.
Mikill mannfjöldi, á aö gizka
10.000, safnaðist saman í gær-
kvöldi fyrir utan Þjóðleikhúsið í
Bratislava, Slóvakíu, þar sem
helztu þjóðarleiðtogar voru við-
stáddir viðhafnarsýningu í tilefni
viðurkenningar Slóvakíu sem
sjálfstæðs sambandsríkis, en leið-
togarnir komu til undirritunar
laga þeirra, sem bióðþingið í Prag
samþykktí i fyrradag um sam-
bandsríki
Eins og í Prag í fyrradag á
hálfrar aldar afmæli lýðveldisins,
var hrópað: Rússar, hverfið heim.
Nokkrar handtöku áttu sér
stað.
Kunnugt var í gær, að 85 ungl-
ingar voru handteknir í Prag í
| fyrradag, en sleppt aftur að lokn-
um yfirheyrslum.
Abrams á fundi
Johnsons
Abrams hershöfðingi, yfirmaður
bandarísku hersveitanna í Suður-
Víetnam, kom í gær til Washington
og ræddi við Johnson loiseta hem-
aðarhorfurnar I Víetnam-styrjöld-
inni.
Opinber talsmaður í Washington
lagði áherzlu á það, að hershöfð-
inn heföi ekki komið vegna
þéss,' að neitt samkomulag hefði
náðst, sem miöaöi að friði.
• Líklegt er, að minnisvarðinn
um Kennedy forseta, sem reist-
ur var hjá Runnymede á Thames-
bökkum, verði endurreist og
verkið faliö sama listamanni og
gerði hann, en hann fannst klof-
inn eftir endilöngu um sl. helgi,
eins og fyrr hefur veriö getið, og
ekki vitað hvort um skemmdarverk
var að ræða.
• Tilkynnt var í London, að það
hafi ekkj við neitt að styöjast að
hið volduga P&O skipafélag hygð-
ist kaupa bandaríska farþegaskip-
ið UNITED STATES, sem er 59.000
lesta skip.
• Fjórir indónesískir kommún-
istaforsprakkar og einn fyrrverandi
hershöfðingi hafa verið teknir af
lífi, aö því er fréttir frá Jakarta
herma. Bundið var fyrir augu
þeirra áður en þeir voru skotnir.
• Lemnitzer, yfirmaður herafla
Norður-Atlantshafsbandalagsins í
Vestur-Evrópu, hefur varað við af-
leiðingum þess, að jafnvægi í álf-
unni hefir raskazt, vegna innrásar-
innar í Tékkóslóvakíu og fram-
halds hernáms þar. Hann kvað sum
lönd hafa vilja draga úr framlagi
sínu til bandalagsins, og kvað hann
það hættulega þróun, því að ef
máttur Norður-Atlantshafsbanda-
lagsins minnkaði gæti það reynzt
hið sama og að bjóða heim of-
béldi. Hann kvaðst vona, að á
fundinum í haust næðist samkomu'
lag um að efla bandalagið.
• Holyoke forsætisráðherra Nýja
Sjálands sagði í gær í Saigon í'
lok heimsóknar til Suður-Víetnam,
að bandaríska ríkisstjómin hefði
lagt fram sanngjörnustu tillögum-
ar til þessa í því skyni aö binda
endi á styrjöldina, en þess sæjust
enn ekki merki, að á þær yrði
fallizt í Hanoi.
• Arthur Goldberg, áður aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna sagði í fyrra-
dag, að sér virtist sem um það
bil væri náö ákveðnu marki á
viðræöufundunum í París um Víet- ^
nam, og þáttaskil framundan, sem
bentu til að samkomulag mundi
nást innan tíðar.
• De Gaulle Frakklandsforseti
hefur Iokið Tyrklandsheimsókn
! sinni. Undirritaður verður sáttmáli
um tæknilegt samstarf. Ekkert hef-
ur veriö minnzt á franska efnahags
aðstoð, né að Tyrkland breytti af-
stööu sinni til Norður-Atlantshafs-
bandalagsins, sem það er aðili að,
og halli sér aö stéfnu de Gaulles.
| Blaðið The Stár i Hongkong
birtir' frétt um, að sprungið
hafi kínversk eldflaug og margir
menn beðið bana.
Eldflaugin var af þeirri gerð, sem
skjóta má meginlanda milli.
Þetta á að hafa gerzt í mánuöin-
um sem leið og hefur öllum áætl-
unum Kinverja á sviði eldflauga
framleiðslu seinkað vegna þess
hversu til tókst. Eldflaugin sprakk,
er átti að skjóta henni á loft.