Vísir - 30.10.1968, Blaðsíða 8
8
V1 SIR . Miðvikudagur 30. október 1968.
VISIR
Otgefandi ReyKjaprent ö.t
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoóarritstjórl: Axe) Tborsteinson
Fréttastjór): Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóbannesson
Augiysingastióri • Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: MJalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099
Afgreiftsla: Aðalstræti 8. Simi 11660
Ritstjórn: 1 nugavegi 178. Simi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 125.00 á mánuði innanlands
1 lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Visis — Edda hJ.
Sjónarmið borgaranna
þótt ísland sé ekki fjölmennt land, er löngu liðin sú
tíð, að allir þekktu alla. Flestir menn eru aðeins mál-
kunnugir tiltölulega þröngum hópi ættingja, vina og
starfsfélaga.
Engum kemur þessi þróun verr en stjórnmálamönn-
unum. Þeir eiga alltaf á hættu að einangrast inni á
skrifstofum sínum, ef þeir tala aðeins við aðstoðar-
menn sína og aðra stjómmálamenn. Minni hætta var
á þessu í gamla daga, þegar allir þekktu alla. En nú
er fjölmennið og skriffinnskan orðin svo mikil, að
stjórnmálamönnum er hætt við að slitna úr tengslum
við almenning í landinu.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri skilur, hvar skórinn
kreppir að í þessu efni. Hann hefur nú efnt til hverfa-
funda meö borgurum Reykjavíkur. Fundir voru haldn-
ir í tveimur hverfum um síðustu helgi, og alls verða
fundimir sex. Þar skýrir borgarstjóri frá gangi borg-
armála og sérmála viðkomandi hverfis. Síðan geta
menn komið á framfæri fyrirspurnum og áþendingum.
Fyrstu tveir hverfafundirnir sýndu, að þeirra var
full þörf. Mikil aðsókn var að þeim báðum og um-
ræður voru fjörlegar. Fjöldi fyrirspuma og ábend-
inga kom fram. Hin mestu hitamál voru rædd af skyn-
semi og rósemi. Léttur og vinsamlegur andi ríkti á
fundunum.
Mikið fé rennur úr vasa borgara Reykjavíkur til
sameiginlegra þarfa borgarinnar. Þótt mikið sé fram-
kvæmt á vegum borgarinnar, verður að* sjálfsögðu
alltaf að velja milli framkvæmda, hefja sumar strax
en fresta öðmm. Borgaryfirvöld vilja í valinu fara
eftir óskum fólksins í borginni, því að það kostar
þessar framkvæmdir. Og hvemig eiga borgaryfirvöld
á annan hátt að geta komizt að því, hver sé vilji fólks-
ins, nema spyrja það sjálft?
Það hlýtur að vera Geir Hallgrímssyni ómetanleg-
ur styrkur í vandasömu starfi að fara á þennan hátt
út á meðal fólksins og nlusta á fyrirspumir þess og
ábendingar. Vissulega viðurkenna nærri allir, að borg-
inni sé mjög vel stjórnað. En lengi getur gott batnað.
Þessi tengsl borgarstjóra og borgara em rétta leiðin
til þess.
Þetta era einkafundir borgarstjóra. Æskilegt væri,
að borgin sjálf tæki að sér þessa fundi og að það yrði
gert að föstum þætti í starfi borgarstjóra að ræða
á þennan hátt við borgarana að minnsta kosti einu
sinni á ári. Það á að líta á svona fundi sem nauðsyn-
legan lið í rekstri borgarinnar.
Hér hefur verið farið út á braut, sem koma skal í
stjórnmálum á íslandi. Stjómmálamennirnir eiga að
koma til fólksins og forvitnast um óskir þess og
áhugamál. Nú er stundum talað um, að stjómmála-
menn séu ekki í tengslum við almenning. Það em
einmitt þessi tengsli, sem í lýðræðisríki ríður mest á
að efla og treysta.
Njósnaraspor um
alla EVRÓPU
í erlendum blöðum kemur
fram, að þaO sem hetfir veriO
aö gerast f Vestur-Pýzkalandi
að undanfömu, kunni aO leiða
til þess, að „spor finnist eftir
njósnara Sovétríkjanna um alla
álfuna“, en f fregnum í gær
kom fram, að þeir dr. Kiesing-
er kanslari Vestur-Þýzkalands
og Willy Brandt vara-kanslari
og utanrikisráðherra, hafi tekið
sér fyrir hendur að gera gang-
skör að þvi að komast að raun
um að hverju leyti vestur-þýzka
gagnnjósnakerfið hafi bilað.
En hvað er þá það, sem gerzt
hefur f Vestur-Þýzkalandi og
veldur að ekki er um annað
meira rætt nú á meginlandinu
en þessi njósnamál og að þess er
krafizt af æ meiri þunga í blöð-
um, að engu verði leynt varð-
andi þessi mál?
f fyrsta lagi var það sjálfs-
morðafaraldurinn sem fregnir
hafa verið að berast um að und-
anförnu. jramin voru að
minnsta kosti 5 eða 6 „grun-
samleg sj£lfsmorö“ (þ. e., að
þeir sem voru viðriðnir njósnir
hafj fundið „jörðina brenna und
i fótum sér“ og bugazt og
valið sjálfsmorðsleiðina. En
raunar er ekki viðurkennt af
opinberri hálfu, að nema einn
af þessum mönnum hafi verið
grunaður um njósnir.
Menn þeir sem styttu sér
aldur voru úr hemum (einn
fyrrv. liðsforingi) og starfsfólk
úr landvarnaráðuneytinu sumt.
Og svo vom fréttimar um,
að 6 menn sem grunaðir voru
um, að hafa stundað njósnir
væru flúnir til Austur-Þýzka-
lands. Þessir 6 menn em allir
Vestur-Þjóðverjar — og í einni
frétt að minnsta kosti eru þeir
kallaðir kjamorku-sérfræðingar.
Komið hafa fram getgátur
um, að brezki njósnarinn heims-
frægi Kim Philby, hafi skipu-
lagt njósnimar — svo afburða
góð þótti skipulagningin, en
hún var samt ekki nógu góð, þvi
að vestur-þýzku leynilögregl-
unni tókst að finna smugur, sem
leiddu hana á slóð njósnaranna.
Harold „Kim“ Fhilby hvarf
sem kunnugt er 1963 og var þá
í Austurlöndum nær, en það var
ekki fyrr en fyrir einu ári', aö
það sanna(5ist, að í fullan aldar-
fjórðung hafði hann sem starfs-
maður brezku leyniþjónustunn-
ar einnig starfað fyrir Rússa, og
skipulagt njósnir í Evrópu,
Austurlöndum nær og Banda-
ríkjunum.
En það er engan veginn ein-
ungis I Vestur-Þýzkalandi, sem
menn stytta sér aldur og hverfa
um þessar mundir. Ööru nær!
Fyrir skömmu skaut sig til
bana fyrrverandi flughersmála-
ráðherra^ítaliu, Renato Sand-
alli. — í Brussel var til-
kynnt í höfuðvígstöðvum
Norður-Atlantshafsbandalags-
ins að vikið hefði verið frá og
handtekinn tyrkneskur starfs-
maður alþjóða foringjaráösins
fyrir alvarlegt ' öryggisbrot.
Hann heitir Nahit Imre og er
nú í fangelsi í Tyrklandi. Hann
verður ákæröur fyrir njósnir.
Belgíska lögreglan segir, að
Aðalfundur Tónlistar-
félags Garðahrepps
Aðalfundur Tónlistarfélags
Garðahrepps var haldinn þriöju-
daginn 24. september s.l.
Á þessum fundi rlktj mikill
einhugur og áhugi fyrir starf-
semi félagsins. Formaður félags-
ins Helgi K. Hjálmsson, fram-
kvæmdastjóri, var einróma end-
urkjörinn. ^ðrir í stjóm voru
kjömir: Varaformaður: Ámi
Jónsson, söngvari. Féhirðir:
Hilmar Pálsson, deildarstjóri.
Ritari: Inga Dóra Gústafsdóttir,
frú. Meðstjómandi: Viktor A0-
alsteinsson, flugstjóri.
Kim Philby.
komið hafi verið að honum
þar sem hann var að taka ljós-
mynda-kopfur af NATO-skjöl-
um, auðkennd „cosmic", en
þannig em auökennd þau skjöl
er bezt ber að gæta og með
mestri leynd, þar sem þau fjalla
um geimvamir. Austur-þýzkir
nj jsnarar f V.Þ. munu hafa orð-
ið til þess að koma upp um
Imre. Og var þaö sama dag-
inn og Ltldke sjóliðsforingi
fannst skotinn til bana f skógi
nálægt Trier. Orskurðað var að
hann heföi framið sjálfsmorð.
Hann hafði aðgang að skjölum
varðandi himingeiminn meðan
hann var starfsmaður f her-
stjómarstöð NATO (Shape), en
þar hætti hann störfum fyrir
nokkm. *
Það er talið, að Imre hafi ver-
ið að ljósmynda skjöl um.
breytta stöðu herafla NATO
vegna innrásarinnar.
Og ein mikilvægasta spum-
ingin er þessi: Hve vfötækar
og hve mikilvægar upplýsingar
fengu Rússar frá Liidke og
Imre?
Skipulagsnefndin mun vera
sammála um, að flytja verði
kjamorkuvopnabirgöimar tlL
en um það taka landvamaráð-
herrar bandalagsins ákvörðun
14. nóvember.
Ráðherrafundurinn er haldinn
mánuði fyrr en venjulega vegna
þessara mála.
Lemnitzer hershöfðingi yfir-
hershöfðingi Norður-Atlants-,
hafsbandalagsins ræddi í gær
vamir þessar með tilliti til inn-
rásarinnar f Tékkóslóvakíu á ■
þessa leið, samkvæmt skeyti frá
FB f gærmorgun:
Stofnaði elliheimilið af
eigin rammleik
IB Haldið var upp á aldar-
fjórðungsafmæli Elliheimllis-
ins í Skjaldarvík um síðustu
helgi að Skjaldarvík. Heiðurs
gestur hófsins var ~Stefán
Jónsson, sem stofnaði elli-
heimilið og rak það í fjölda
ára. Árið 1965 afhenti Stefán
Akureyrarbæ elliheimilið til
eignar sömuleiðis stórbú,
lendur vélar og áhöld en
þessi margra milljón króna
gjöf er sú stærsta, sem bæn-
um hefur hlotnazt.
. 75 vistmenn eru nú til dvalar
f Skjaldarvík og hafa farið fram
miklar endurbætur á elliheim-
ilinu á árinu. Talið er nauðsyn-
legt að auka húsnæði þar
í framtíðinni þannig, að heimilið
rúmi 130 manns.
Stefán Jónsson, klæðskera-
meistari var þekktur á Akureyri
fyrir vinnusemi og sögðu bæj-
arbúar, að hann starfaði daga
og nætur við iðn sína og safn-
aöi í sjóð.
Snemma ársins 1941 var haf-
izt handa um að byggja nýjar
byggingar á Skjaldarvíkurlandi
þar sem fyrir var aöeins torf-
bær. Var Stefán þar að verki og
breytti þama á fáeinum misser-
um litlu koti f höfuðból.
Lék mörgum forvitni á að
vita hvað vekti fyrir Stefáni
með þessum framkvæmdum en
það var ekki fyrr en seint og
síðar meir, aö það fréttist meö
fullri vissu, að þarna væri elli-
heimili í byggingu. Fannst mörg
um djarft teflt á þeim tímum,
að einn maður.skyldi ráðast í
slíkt fyrirtæki. Vígsludagur
elliheimilisins var ákveðinn 29.
okt. 1943 á afmælisdegi móður
Stefáns en vegna veðurs varð
að fresta honum um tvo daga,
40 vistmenn áttu hælj á elli-
heimilinu fyrstu árin og gegndi
Stefán forstöðumannastarfinu
flest árin fram til ársins 1965.