Vísir - 02.11.1968, Blaðsíða 3
V1SIR . Latfgardagur 2. nóvember 1968.
3
Á 19. kvöldi námskeiðsins
Síðasta hönd lögð á laxréttmn.
I»að er ekki dónaleg skreytingin á svínarifjunum, sem hún
setur á borðið. Pað er brasað og steikt og loks kemur rétturinn úr ofninum aftur.
Tjað er 19. kvöld námskeiðs-
ins og nú fara nemendum-
ir að sjá árangurinn af erfiðinu
og að ekki hefur verið til einsk-
is unnið.
Dúkað borð svignar undan
alls konar krásum, lax, humar,
svínasteik, fiskhringir, ábætis-
réttir og ótal smáréttir eru þar,
aiit fagurlega skreytt, sem sagt
fyrsta flokks veizhiborð. Áður
hafa nemendumir unnið kapp-
samlega viö matreiðslu réttanna
undir handleiðslu Aðalfríðar
Páisdóttur húsmæðrakennara.
Námskeiðið fer fram í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur og er
hið fyrsta af kvöldnámskeiðum
vetrarins. Alls eru námskeiðin
sex og fyrsta innritunardaginn
var strax upppantað á þau öll
og langur biðlisti kvenna, sem
höfðu hug á því að komast á
námskeið, ef vera kynni að ein-
hver félli úr, af hinum 16, sem
komast á hvert námskeið.
Á þessu námskeiði eru nem-
endumir allir ungir að aldri,
en það er ekkert einsdæmi aö
eldri konur leiti sér fróðleiks
á þessum námskeiðum. Kennar-
amir minnast sérstaklega einn-
ar úr Grundarfirðinum, sex
bama móður, sem fór á eitt
námskeiðanna sér til upplyft-
ingar — jafnvel konur á sjö-
tugsaldri hafa lífgað upp á til-
veruna með því að fara á kvöld-
námskeiðið. Þá em ótaldar kon-
umar, sem koma á námskeiðið,
sem er þegar líða tekur á vet-
urinn, en þær gera það margar
í því augnamiöi að vera betur
búnar undir fermingarveizlumar.
....og þær em ekki með nein-
ar vangaveltur,“ segir skóla-
stýra, Katrín Helgadóttir.
Myndsjáin kveður nemend-
uma þar sem þær sitja glaðar
í bragði yfir kaffibollanum eftir
að hafa gætt sér á krásunum,
og það er víst, að engin þeirra
mun hafa séð eftir þeim kvöld-
stundum, sem þær hafa eytt síö-
ustu vikumar í Húsmæðraskól-
anum.