Vísir - 22.11.1968, Síða 3
V í SIR . Föstudagur 22. nóvember 1968.
3
Jjað er ótrúlegt hvað hægt er
að tæta eina kind, sagði
Bjamieifur ljósmvndari, þegar
Vísismenn höfðu gengið í gegn-
um Álafossverksmiðjurnar í
fylgd með Pétri Péturssyni, for-
stjóra og Guðjóni Hjartarsyni,
verksmiðjustjóra, í fyrri viku.
Þetta voru sannarlega orð að
sönnu. Ullin hefur lent í ýmsu
áður en hún kemst í hendur
kaupenda.
Fyrsta stigið í meðferð ullar-
innar eftir að hún kemur í verk
smiðjurnar er þvottur. í þvottin
um rýmar ullin um hvorki
meira né minna en 42%. Or
þvotti er uilin sett í þurrkun, en
þaðan ýmist í litum eða beint í
vinnslu. Ullinni er blásið eftir
rörum úr elzta húsi verksmiðj-
unnar, þar sem þvottur, þurrk-
un og litun fer fram, upp 1
spunaverksmiðjuna, sem stend-
ur töluveröan spotta frá hin-
um húsunum.
I spunaverksmiðjunni eru
margar og flóknar vélar, en nú-
tima vinnsla ullar er flóknari en
flestir gera sér grein fyrir. Mikl
ar vélasamstæður taka ullina og
hreinsa hana og jafna. Þaðan
fer hún í kembingarvélar og
spunavélar, sem em mismun-
andi eftir því hvaö framleiða
skal.
Fftir að bandið hefur verið
unnið em ofin úr því teppi, á-
klæði, fataefni, værðarvoðir og
í litlum mæli prjónaðir sokkar.
Hespulopinn og plötulopinn,
þ.e. gamla og nýja tegundin af
Séð yfir spunaverksmiðjuna, sem er yngsti hluti verksmiðjunn ar, byggð 1963.
GENGIÐ UM AÐ ÁLAFOSSI
lopa, er ekki spunninn, nema
hespulopinn smávægilega.
Hann er ekki notaður í vefnað,
heldur gerður upp í hespur og
seldur þannig, bæði neytend-
ur héf og erlfendis, en einnig
hafa aðrir aðiiar keypt lopann
og prjónað úr honum peysur til
útflutnings. Þessi prjónaskapur
hefur farið mjög vaxandi undan
fariö og er að verða að meiri
háttar heimilisiönaði. Á þessu
ári verða fluttar út 10—15 þús.
peysur, sem nær eingöngu eru
prjónaðar af konum, sem varla
myndu stunda aðra atvinnu fyr-
ir utan heimilisstörf en prjóna-
skap eða sambærilegan heimil-
isiðnað.
Þetta er því ekki svo lítið bús-
ílag fyrir konumar og þjóðarbú-
skapinn.
Myndsjáin bregður hér upp
nokkrum myndum úr verksmiðj
unum. Þær segja því miður ekki
nema lítið af sögunni. 'í’il að
gera vel grein fyrir starfsem-.
inni í myndum, þyrfti heilt
myndaalbúm.
Ullin kemur úr þurrkun og þvotti. Afkastagetan er um 250 kg af hreinni uil á klukkustund.
Álafoss hefur nú aftur hafið framleiðslu á saloon-áklæðum
eftir langt hlé á þeirri framleiðslu.
Vinsældir gólfteppanna frá Álafossi grundvallast nokkuð á þessum vefstól. Hann vefur teppi,
sem eru 3,65 metrar á breidd og fækkar sa mskeytum á tilsniðnum teppum.