Vísir - 22.11.1968, Blaðsíða 16
VISIR
rusiuudgur novemDer xuoo.
Dregið
kvöld
i
t dag er hver síðastur að eignast
miða í Landshappdrætti Sjálfstæðis
fiokksins, þvi að dregið verður í
kvöld um hinar glæsiiegu Merced-
es Benz-bifreiðar. Enginn hefur
möguleika "oma að eiga miða og
skyldu menn minnast þess á
morgun. Skrifstofa happdrættisins
í Sjálfstæðishúsinu verður opin til
miðnættis og geta menn gert skil
á heimsendum miðum alveg fram
til þess tíma. Einnig verða miðar
seldir í happdrættisbifreiðunum í
Ai ' ‘ - ' ’ •
,Sé ástandið svipað og var 1963, verða
kjörin að vera í samræmi við það'
sagði forsætisráðherra i vantraustsumræðunum
• Vantraust stjórnarandstæðinga var felld með 32:28 á AI-
þingi um miðnættið. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra
sagði í umræðunum, að áföli þau, er sjávarútvegurinn hefði
orðið fyrir að undanförnu, væru þrisvar til fjórum sinnum
meiri en rýrnun þjóðartekna að meðaltali. Gengisbreytingar-
leiðin hefði verið valih, því að ríkisstjórnin teldi, að næg at-
vinna skipti mestu, og-væri þessi leið Wkiegust-ttl-^að halda
uppi atvinnu af þeim íeiðum, er til greina komu. Stjórnar-
andstæðingar klifuðu á því, að ástandið í efnahagsmálum
væri ekki verra en verTS hefði fyrir einum fimm árum. Væri
það rétt, þá gætu lífskjör fólks ekki verið betri en svo, að
samræmi væri á milli kjara og þjóðartekna.
Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra, kvað stjórnarand
stöðuna, en ekki ríkisstjórnina,
hafa brugðizt lýðræðislegum
skyldum sínum, og ætti and-
staðan vantraustið skilið. Eng-
inn hefði heyrt stjómarandstæð
inga segjast vilja fara uppbóta-
leiðina eða niðurfærsluieiðina.
Þeir heföu ekki bent á nein úr-
ræði. Mismunur stjómar og and
stöðu væri sá, að stjórnin hefði
þorað að taka afstöðu og bregð-
ast við vandanum.
Ólafur Jóhannesson, formað-
ur Framsóknarflokksins, sagði
að auðvitað yrði sama reynsla
af þessari gengislækkun og varð
af gengislækkuninni £ fyrra.
Hún mundi renna út í sandinn,
verðbólga fylgja og siðan enn
ein gengislækkun, ef ekki yrði
breytt um stjórnarstefnu. Örð-
ugleikarnir stöfuðu ekki af afla
bresti og verðlækkunum útflutn
ingsafurða. Þeir væru sök stjóm
arinnar, Hún hefði látið undir
10. síða
Leitað í skipum að
týndu stúlkunni
• Enn bólar ekkert á týndu
stúlkunni, SiHríði Jónsdóttur úr
Hafnarfirði. Hefur ekkert spurzt af
ferðum hennar og maðurinn, sem
lögreglan hefur leitað síðustu daga,
hefur ekki heldur gefiö sig fram.
Lögreglan vinnur af kappi að
því að upplýsa þetta dularfulla
hvarf og hefur meðal annars graf-
izt fyrir um allar skipaferðir úr
Hafnarfirði, Reykjavík, Keflavik,
Þorlákshöfn og Akranesi, ef ske
kynni, að stúlkan hefði ráðið sig
til vinnu á eitthvert skipið, sem
látið hefur úr þessum höfnum
þessa daga. Skipafélögin hafa falið
skipstjórum skipa þessara að láta
fara fram leit um borð I þeim,
hvar sem þau eru stödd. Sú leit
hefur heldur engan árangur borið.
Vegatjónið á Aust-
fjörðum 1.5 millj.
Unnið af kappi við að laga vegina fyrir veturinn
ATTA jarðýtur af öllum stærö-
um, ámoksturstæki og fjöldi
bíla er nú f notkun vegna við-
-erðar á vegum, sem skemmd-
nst f rigninm'num á Austfjörð-
■>m. Vesaviðgerðirnar hafa stað-
ð f fuila viku og er nú víðast
^"■ðið jeppafært, en búizt er við
'ð taki alltaf viku í viðbót að
' oma vequnum í sæmilegt horf.
Eymundur Runólfsson, verkfræð
ingur, sem sendur var austur á veg
um Vegagerðarinnar til þess að
kanna skemmdimar, sagði í viðtali
við Vísi í morgun, að ógerlegt væri
að gizka með neinni vissu á hversu
mikilli fjárhæð tjónið á vegnunm
næmi. Sér hefði dottiö í hug iy2
milljón, sú upphæö næði þó einung
is til vegaskemmdanna. Miklar
skemmdir urðu einnig á mannvirkj
um bænda.
Verst er vegurinn farinn í Skrið- ;
dal, Breiðdal og í sunnanverðum
Reyðarfirði. — í Skriðdal þurrkað-
ist vegurinn út á löngum kafla þar
sem lækir flóðu yfir hann og grófu
sér farvegi.
Yfir Breiðdalsheiöi en ennþá ó- i
fært öllum bílum. Þar féll berg-'
skriða á veginn, hrundi bókstaflega
stykki úr fj llinu og huldi veginn á
smákafla. Tvær brýr löskuðust,
á Norðfjarðará og Stuðlá í Reyð-
arfirði. , i
Eymundur sagði að ætlunin væri j
að gera sem mest við vegina meðan j
veður leyfði, en þó væri óvíst hvort j
hægt væri að koma þeim öllum í
samt lag í haust.
Engin alvarleg meiðsli urðu á börnunum, sem lentu í árekstrinum hjá brúnni yfir Úlfarsá rétt fyrir
hádegi í gær. Eins og sagt var frá í Vísi í gær, voni bömin 19 á leið í skólaheimsókn upp í Borg-
arfjörð, þegar rútan, sem flutti þau, r«kst á vörubil á ÍJlfarsárbrú (Korpu). AIls hlutu 9 böm skurði
og skrámur, en nokkrar skemmdir urðu á bílnum. Þegar Vísir fór í prentun í gær, var hins vegan-
talið, að aðeins 6 böm hefðu slasazt.
1 Brunabótamat hækkað um 16% |
— Tilboð i endurtryggingar Húsatrygging-
anna i rannsókn
• Borgarráð samþykkti í
Ífyrradag að hækka brunabóta
mat fasteigna í Reykjavík um
16% til samræmis við verð-
lagshækkanir, sem orðið hafa
að undanfömu. Þetta er að
p sjálfsögðu til hagsbóta fyrir
H húsaeigendur, þar sem eign-
| ir þeirra til tryggingar verða
K nú hærra metnar en áður.
Eins og kunnugt er buðu
’ Húsatryggingar Reykjavíkur
endurtryggingar sínar út. Fimm
ia tilboð bárust, þar af tvö frá
í,; erlendum aðilum. Innlendu til-
| boðin sem bárust voru frá Sjó-
vátryggingarfélagi íslands,
Brunabótafélagi íslands og
Tryggingu hf.
Nokkurn tíma mun taka að
kanna hvaða tilboð er hagstæð
ast að þvf er Sigfinnur Sigurös
son, borgarverkfræöingur tjáði
blaðinu í gær. Ýmis atriði
þarf að taka með í reikninginn
og ekki eins auðvelt að gera það
upp, hvaða tilboð er hagstæðast
eins og menn kynnu að halda.
Vonazt er þó til að hægt verði
að taka ákveðnu tilboði i næstu
viku.
Það er Reykjavíkurborg, sem
rekur Húsatryggingar Reykja-
'2
víkur. Þetta fyrirkomulag hófst |
árið 1954, en fyrir þann tíma ö
samdi borgin við ýmis trygg- j§
ingafélög um að annast þessar «
tryggingar. |
Samanlögð tryggingarupphæö |
á næsta ári veröur um 32,5 millj r
arðar króna og verður saman-
Iögö upphæð iðgjalda um 32.5
milljónir króna.
Síðastliðið ár var erfiðasta ár @
ið hjá Húsatryggingunum þegar |
tjónabætur námu um 16 milljón r
um króna. j?
Brunabótafélag íslands hefur §
annazt endurtryggingar fyrir ;S
Húsatryggingar undanfarin 5 >
ár, en áður annaðist Islenzk ;
endurtrygging endurtrygging- 1
arnar frá 1954. ^
Vestmannaeyjakaup-
staður 50
’f ■ Vesímannaeyjar
I hlutu kaupstaðarrétt-
1|i indi hinn 22. nóvember
1918, og eiga því fimmt-
ugsafmæli í dag. Marg-
víslegar ástæður lágu til
þess, að ekki þótti unnt
að efna til hátíðarhalds
svo seint á árinu, og hef-
ur þeim því verið frest-
að til sumarsins.
Bæjarstjórn mun halda veg-
ára í dag
legan hátíðarfund hinn 14.
febrúar næstkomandi, á þeim
degi sem fyrsti bæjarstjómar-
fundurinn var haldinn fyrir 50
árum.
Á sumri komanda veröur svo
fagnaður og sýningar. Nokkuð
hefur nú þegar verið unnið að
undirbúningi þess. Á næstunni
mun undirbúningsnefndin leita
til einstaklinga, félaga og félags
samtaka um þátttöku í hátíðar-
höldunum, og er það von henn-
ar og ósk, að zrugðizt verð; vel
við málaleitan hennar, enda ein
dreginn vilji fyrirc hendi um, að
vandað sé til alls undirbúnings
og sem flestir leggi hönd á
plóginn.