Vísir - 17.12.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 17.12.1968, Blaðsíða 4
Gary Grant kveður kvikmyndirnar • Gary Grant, kvennagullið • mikla af hvíta tjaldinu, ku hafa 2 ákveðið aö draga sig í hlé úr • kvikmyndaheiminum. 1 staðinn j mun hann hafa hug á þv£ að • snúa sér að fegrunarbransanum. J Hinn sextugi Gary Grant, sem • nýlega skildi við fjórðu konu ■ sína (við feikna athygli), veröur 2 forstjóri eins stærsta ameríska • fyrirtækisins í fegrunarlyfjafram- 2 leiðslunni, Rayette-Farberg. Gary Grant lék síöasta hlutverk sitt 1966. Það var 68. kvikmynd hans. Hann hefur verið einhver fremsta Hollywood-stjaman og hefur hagnazt vel á kvitanynda- leiknum. Lauslega er gizkað á, að hann hafi unnið sér inn 150 millj- ónir dollara í hlutverkum sínum, enda er hann álitinn einhver auð- ugasti kvikmyndaleikari, sem uppi er. YAEL DAYAN sá Á KVÖLINA Jólin nálgast , Jólaundirbúningurinn stendur nú sem hæst, og virðist sem hann sé engu umfangsminni en áður fyrr að ytri glæsileik, sem betur fer. Samdrátturinn mun því vonandi verða á öðrum svið- um en í jólagleðinni. Á jólatrjám hefur nú verið kveikt, m. a. trjám, sem send hafa verið frá vinabæjum á Norðurlöndum og til helztu bæja hér á Iandi. Er þetta táknrænn vottur um einlægan vilja til nánara nor- ræns samstarfs. Dæmigert fyrir undirbúning íslenzks jólahalds er útkoma hins mikla fjölda bóka, enda eru bækor enn vinsælar með þjóö- Innl, sem bezt sést ,á því að þær eru keyptar ekki síður en áður. Að minnsta kosti láta bók salar vel af jólasölunni um þess ar mundir og segja hana ekki minni en undanfarin ár. Það kryddar ekki lítiö upp á, þegar mitt í asa jólaundirbún- ingsins berast fréttir um dular- full ljósfyrirbrigði noröur á Þþrs höfn. Auðvitað fæst ekki néin skýring á þessum ljósfyrirbrigö- um, þó hætt sé við að skýring- In sé svo einföld og nærtæk að allur spenningur færi af. Afvega leiddur loftbelgur af einhverju tagi er til dæmis ekki nærrl eins spennandi og dularfullt ljósfyrir brigði. Bara ef Þórshafnarbúar hefðu gætt þess að láta sér sýnast þessi dularfullu ljós- fyrirbrigði vera eins og undir- skálar á hvolfi, þá fyrst hefði farið að ..omast hreyfing á frétt irnar þvi bannig voru Iýsingarn- ar á fljúgandi diskunum, sem stundum flýgur fyrir utan úr hinum stóra heimi. Um fljúg- andi diska hafa meira að segja verið skrifaðar margar bækur, þó skýringar hljóti ætíð að verða af skornum skammti. Það léttir allan jólaundirbún- inginn úti um landið, að vegir eru eins og á sumardegi, að þvi er fréttir herma, enda hefur vart komið frost, og jafnvel haldast hlýindin víðast hvar, eins og á vordegi. Sums staðar hafa hlýindin verið slík, að blóm hafa sprungið út nú i desember. Það skyggja á öll umsvif jóla- undirbúningsins hin miklu mannahvörf, sem orðið hafa nú og að undanfömu. Fólk hverfur heiman að frá sér og sést ekki meir, og Ieitarflokkar reyna að grafast fyrir um hið horfna fólk án þess að þeir i rauninni viti hvar á að bera niður. Það er reynt að gera sé >-grein fyr- ir hvað veldur slíkum hvörfum fjölda fólks nú í vetur, þótt fátt sé um svör við þeirri spurnlngu. Það er svo margt som erfltt er að gera sér grein fyrir á stund- um. Þrándur í Götu. x juiauiiuumuit gccw juiaovuuu komið vel aö hafa aðstoðarmann, sem annaðist flugpóstinn, en þeirra erinda er hann þó ekki hjá Nilla og gæsinni hans. Hann er bara að afhenda Nilla pakk- ann með jólagjöfinríi hans. En þaö er líka eins gott, aö jólasveinninn haldi sér við jörö- ina og blandi sér ekkert í flug- umferðina. Hann gerir vist nóg af sér samt, eöa sjáið þið bara, hvað honum verður á núna! Gott! Fyrst þið hafið séð það, þá kross- ið við rétta svarið. er spennandi saga frá Israel á vorum dögum. — Það er áhrifarík mynd, sem Yael Dayan bregður upp. Hlún seg- ir sögu Dam'els, aðalpersón- unnar og fóiksins umhverfis hann; Yorams, sem egypzk jarðsprengja varð að bana í Sinai-hernaðinum; Nechama, „konu“ drengjanna í fallhlíf- arsveitinni; Nílíar hinnar ögr- andi, sem dansaði inn og út úr Iífi Daníels í Tel Aviv. INGOLFSPRENT H/F Jólagetraunin : á 1968 Verður hún næsta drottning Svífyjóðar? ••••••••••••••••••••••••«••••••••••••••••••••••••• Jólasveinninn og Nilli Holgeirsson Hinn 22ja ára gamli Svíaprins, Carl Gustaf, hefur undanfarið verið mjög oröaöur við 19 ára gamla stúlku, Titti Wachtmeister, sem sænskt vikublað, „Húsfreyj- an“, hefur nýlega birt frétt um, að hinn ungi prins hafi ákveöið að kvænast stúlkunni. Þetta hefur vakið feikna at- hygli og hefur enn ekki verið bor- ið til baka. Það er ekki að undra þótt þetta vikublað hafi orðið fyrst til þess að birta þessa frétt, því Titti Wachtmeister starfaði við tízkuritstjóm þess til skamms tíma, áður en hún hélt til París- ar, en þar starfar hún nú við kvennablaðið „EÍlef. í frétt sænska kvennablaðsins er þess getið, að móðir prinsins og foreldrar stúlkunnar séu sam- þykk ráðahagnum, sem geti þó ekki orðið að veruleika fyrst um sinn. Foreldrar Titti eru af borg- aralegum ættum og ríkisarfi get ur ekki gengið að eiga slíka stúlku fyrirhafnarlaust. En það er haft fyrir satt, aö gerð hafi veriö tveggja ára áætl- un til þess að draumurinn um hjónabandið geti orðiö að veru- leika. Ætlunin mun vera sú, aö Karl Gústaf ljúki námi sínu og undirbúningi un'dir að erfa ríkið eftir afa sinn, en hann lýkur háskólanámi ekki fyrr en 25 ára gamall í fyrsta lagi. Þá er líka ætlunin að láta til skarar skriða. Málið yrði mun einfaldara, ef prinsinn væri konurtgur, því sam- kvæmt sænskum lögum þarf kon- ungur ekki að leita álits eins eða neins, áður en hann kvænist. Kunningsskapur ríkisarfans og Titti hefur staðið í eitt og hálft ár, en þau kynntust á dansleik. 7. þraut □ 1. Minnkar hann ekki ljósin □ 3. Notar hann ekki öryggis- fyrir umferðina á móti? beltl við biðskýli strætis- □ 2. Virðir hann ekki stöðvun- vagna? arskylduna við gatnamót- in? Þið hafið auðvitað ekki gleymt, Laugavegi. Hana fær sá, sem^j hvað er í húfi. Ljómandi falleg hreppir vinninginn, en dregiðaj kappakstursbraut, sem þið getið verður úr réttu lausnunum. 2) skoðað í verzluninni Sport á •- 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.