Vísir - 17.12.1968, Qupperneq 7
V'l'S I R . Þriðjudagur 17. desember 1968.
morgun útlönd í, morgun útlönd í morgun útlönd í morgun
útiönd
Hubert Humphrey
tekur tilboði um
prófessorsembætti
Hubert Humphrey varaforseti
Uandaríkjanna og frambjóðandi
demokrata f forsetakosningunum
hefir þegið tilboð Minnesota-há-
skóla og Macalester College um
prófessorsembætti.
1 frétt frá Minneapolis s.l. föstu-
dag var sagt, að stjórnir beggja
stofnananna hefðu samþykkt til-
boöið. Rektor Macalester College
tók fram, að skólinn teldi þaö mik-
inn heiður, ef Humphrey tæki til-
boöinu. Líklegt var talið, að hann
mundi gera það, og síðari fregnir
hermdu, að hann hefði tekiö á-
kvörðun um að þiggja tilboðið.
Ný tillaga um birgða-
flutninga til hinna
hungrandi í Bíafra
Sambandsstjóm Nígeríu hefir fall-
izt á, að borgaralegir fulltrúar Ein
ingarsamtaka Afríku hafi eftirlit
með flutningi á matvælabirgðum,
lyfjum og öðrum nauðsynjum á
landleiðum inn f Biafra, þar sem
hungurdauði vofir yfir miklum
fjölda manna.
Frá þessu er skýrt í sameigin-
Iegri yfirlýsingu Gowons ofursta,
æðsta manns sambandsstjórnarinn-
ar og Shepherds lávarðs, sem hefir
rætt þessi mál að undanfömu viö
stjómina í Lagos fyrir hönd brezku
stjómarinnar.
1 tilkynningunni eru leiðtogar
uppreisnarmanna í Biafra sakaðir
um að nota neyðarástandið í Biafra
sér til stjórnmálalegs ávinnings.
Útvarpið i Biafra segir, að bar-
izt sé í návígi í bænum Overi, sem
er mikilvæg samböngumiðstöð. Bær
inn hefur verið á valdi sambands-
stjórnarinnar siðan í nóvember.
1 fréttum frá Lagos er ekki
minnzt á bardaga á þessum slóö-
um, en sagt aö flugher sambands-
stjórnarinnar herðf sprengjuárásir.
Alyktun utn
S-Afríku sumþykkt
á Allsherjurþíngi
Tillaga um S-Afríku var f gær
til lokaumræðu á Allsherjarþinginu.
Tillaga þess efnis að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna geri allt, sem
í þess valdi stendur, til þess aö
knýja Suður-Afríku til þess að láta
af hendi yfirráðin yfir Suðvestur-
Afriku var samþykkt í Allsherjar-
þinginu með 96 atkvæöum gegn
tveimur, Suður-Afríku og Portú-
gals. Sextán þjóðir sátu hjá, þeirra
meðal Bretland, Bandaríkin og
Frakkland.
Humphrey
Apollo úttundi
á loft á
luugurdug
i Haldið er áfram f dag og1
í næstu daga viðbúnaði og próf-,
unum fyrir tunglferð bandaríska <
geimfarsins Apollo áttunda, sem J
fyrirhugað er að skjóta á loft <
frá Kennedyhöfða á laugardag-<
inn kemur. í því verða þrír J
geimfarar og gert ráð fyrir að<
það verði komið á braut kring <
um tungiið á aðfangadag og fari J
10 sinnum kringum bað.
Healy likir innrásinni við hern-
aðaraðgerð nýlenduveldis
■ Denis Healy Iandvarnaráðherra
sagði í neðri málstofunni í gær
að löndum Vestur-Evrópu hefði
ekki verið teflt í hættu meö inn-
rásinni í Tékkóslóvakíu.
Líkti hann henni við hernaðarleg-
ar ráðstafanir nýlenduveldis, til
hindrunar sjálfstæði á yfirráða-
svæði þess.
Við atkvæðagreiðslu um tillögu
íhaldsmanna, sem fól í sér gagn-
rýni á stjórnina, sigraði hún með
79 atkvæða mun.
Umræðan var um varnan^álin og
hélt Healy þvi fram, að ekkert land
innan vébanda Norður-Atlantshafs-
bandalagsins hefði stutt það betur
miðað við fjárhagslega getu.
Gomulka.
Batnandi sambúð ríkis
og kirkju í Póllandi
Wyszynski kardináli í Póllandi
er nýlega heim kominn eftir fimm
/daga heimsókn í Páfagarði. Meðan
hann dvaldist þar ræddi hann mörg
um sinnum við Pál páfa.
Franska lögreglan
beitir hörðu
— hefjist óeirðir á ný i háskólanum
Franska stjómin hefir boðað nýj-
ar reglur til þes að hindra óeirðir
við háskólana og að valdi verði
beitt ef þörf krefur til þess að fram
fylgja þeim. Meðal þessara ráðstaf
ána er, að stöðugur lögregluvörður
verður hafður og stúdentum verður
gert að skyldu að bera á sér skír-
Wyszynski.
Heimsóknin er talin hafa borið
þann árangur, að sambúðin milli
ríkis og kirkju í Póllandi muni í
komast i vinsamlegt og traust
horf, en hún hefir oft á síöari tím-
um verið erfið, að ekki sé meira
sagt:
Kardinálinn hefir oft áður orðið
fyrir hörðum árásum frá stjórnar-
völdunum og verið sakaöur um
íhlutun um pólitísk mál. Og stund-
um þrumaöi Wyszynski á stólnum
til andsvara. Svo erfíð var sam-
búðin, aö árum saman var kardinál-
anum neitað um vegabréf til þess
að ferðast til Rómaborgar, og
margir, sem gerst fylgjast með
málum, töldu ógerlegt að bæta
sambúð þeirra Wyszynskis ' og
Gomulka, pólska kommúnistaleið-
togans.
Fréttaeftirlit
og handtökur
Brasilíu
i
Ströng fréttaskeytaskoðun er I
Brasilíu og í fyrsta skipti síðan
1964 er strangt eftirlit meö skeyta-
sendingum erlendra fréttastofnana.
Er nær engu hleypt í gegn nema
sem hagstætt er forsetanum, sem
— eins og kunnugt er af fyrri frétt
um — hefir tekið sér vald til þess
að stjóma með tilskipunum.
Ferðamenn, sem komið hafa til
nágrannalandanna segja mikið um
handtökur, og eru meðal þeirra
sem handteknir hafa verið þing-
menn og opinberir starfsmenn.
teini sem sýni aö þeir hafi rétt til
umferðar um háskólalóðina.
í aukakosningu í París sigraði
frambjóðandi kommúnista fram-
bjóðanda Gaulleista með 500 at-
kvæöa meirihluta.
I kvördæmi þessu var endursks-
ið vegna þess að óregla var talin
hafa verið á, er síðast var kosiö og
meirihlutinn var naumur um 100 at-
kvæöi.
Fylgi Wilsons enn
hrnðminnkandi
Ef gengið væri til almennra þing
kosninga á Bretlandi nú myndi 1-
haldsfiokkurinn sigra — fá 55 af
hundraöi atkvæða, jafnaðarmenn
29,5, frjálslyndir 11 og aðrir flokk
ar 4,5 af hundraöi.
Þessi eru úrslit skoðanakönnunar
sem Lundúnablaðið Daily Tele-
graph hefir látið fram fara.
Þaö hallar þvi enn á ógæfuhlið
fyrir Wilson og þótt hann og aðrir
leiðtogar jafnaðarmanna geti bent
á sumt sem bendir til þess að í
rétta átt stefnj með greiðslujöfn-
uð og vari við bölsýni, hefir það
ekki fengið hljómgrunn hjá þjóð-
inni.
Hongkong: Sleppt hefir verið úr
haldi 22 mönnum, sem setið hafa
í fangelsi síöan í óeirðunum í fyrra,
er brezkum yfirvöldum var sýndur
mótþrói af stuðningsmönnum Mao
tse Tung. í blaði er styður kontm-
únista segir, að þetta muni ekki
leiða til þess, að brezka frétta-
manninum Anthony Grey verði
sleppt úr haldi í Peking. Honum
verði ekkj sleppt fyrr en allir hinir
handteknu séu aftur frjálsir. —
Anthony Grey var fréttamaður
Reuter-fréttastofunnar og voru
engar sakir á hann bornar, en hann
var kyrrsettur, hafður í stofufang-
elsi við smánarlegan aðbúnað, allt
frá því er hann var handtekinn í
júlí 1967.
Saígon: Bandaríkjamenn hafa
sleppt úr haldi 7 norður-víetnömsk-
um sjóliðum, sem teknir voru hönd
um fyrir meira en ári á Tonkinflóa.
Moskva: Blaðið Pravda sakaði í
gær Michael Stewart utanrikisráð-
herra Bretlands um að hafa rægt
Sovétríkin í Indlandsferðinni, þótt
„friðarstefna Sovétrikjanna sé al-
mennt kunn", eins og blaðið orðar
það.
Prag: Tékkneska fréttastofan
skýrir frá því, að fréttaritara New
York Times, Ted Schukz, sem er
af pólsku foreldri, hafi verið vísað
úr landi. Blaðið birti um þetta til-
kynningu frá utanrikisráðuneytinu.
London: Tjón Breta af lokun
Suezskurðar nemur 5 milljónum
punda á mánuði.
Paris: Ky varaforseti Suður-
Víetnam gagnrýndi i gær
Clark Clifford landvamaráðherra
fyrir ummæli hans er voru á þá leið
að Bandaríkin og Norður-Víetnam
myndu fljótt geta náö samkomu-
lagi, ef ekki væri um að kenna
stirfni Suður-Víetnam. — Tals-
maður Ky kvað hann og hafa sagt,
að Ky teldi Clifford hafa sagt það,
sem skakkt var, og á skökkum
tíma. — Ky kvað stjóm Suður-Víet-
nam hafa lagt á sig mikið erfiði
sameiginlega til þess að vinna að
friði og vel vissi hann, að það væri
mikill harmieikur ef enn yrði barizt
heilt ár í Víetnam.
Heimsókn Mnnescu
til A-þýzknlnnds
lokið
Heimsókn Manescu utanriklsrá&-
herra Rúmeníu til Austur-Þýzka-
lands lauk um seinustu helgi.
í sameiginlegri tilkynningu var
boðað, aö Rúmenía og Austur-
Þýzkaland myndu taka sér fmm-
kvæði í hendur um að kvödd yrði
saman ráðstefna um öryggi Evrópu,
vegna þess að Norður-Atlantshafs-
bandalagið hefði vfðbúnað til þess
að efla sig hemaöarlega.
Ekki var tekið fram sérstaklega,
að þetta yrði ráðstefna sósíahst-
iskra ríkja oiauöffhtngB, m irioi er
sk*n swo.
i