Alþýðublaðið - 09.01.1966, Blaðsíða 1
Sunnudag'ir 9. janúar 1966 - 46. árg. 6. tbl. — VERÐ 5 KR,
Vilja bætta sam
búð við austrið
Reykjavík. — EG.
• — Á ráðlierrafundum Evrópu-
ráðsins og Atlantshafsbandalags-
ins, sem ég sat í desember, fannst
mér mest áberandi, hve mikill vilji
virtist vera fyrir hendi til að bæta
sambúð og efia samstarf við þjóð-
irnar í Austur-Evrópu. Á þessa
leið mælti Eipil Jónsson, utan-
ríkisráðherra í erindi, sem hann
fluttj í gær á sameiginlegum
fundi Varðbergs og Samtaka um
vestræna samvinnu.
Fundurinn, sem haldinn var í
>jóðleikhúskjallaranum, var mjög
fjölmennur. Þegar Emil hafði lok-
ið máli sinu voru bornar fram
ýmsar fyrirspurnir.
. I erindi sínu drap Emil á nokk-
ur þeirra mála, sem hæst hefði
borið á þessum fundum. Hann
sftgði, að ýmislegt benti til þess
að Austur-Evrópuríkin væru nú
fúsari til samstarfs við lönd í V.-
Evrópu en áður hefði verið. Bæði
á ráðherrafundi Nato og ráðherra
fundi Evrópuráðsins hefði verið
rikjandi mjög eindreginn vilji til
að bæta sambúð og efla hvers kyns
samstarf við þjóðirnar í Austur-
Evrópu.
U k
■0>
ía r
í gær var alhvít
jörð, þegar borgar-
búar komu á fætur
og margur átti
brösum við bílana
sína. Börnin höfðu þó eng
ar áhyggjur af snjónum,
heldur þvert á móti fögn
uðu honum ákaft og léku
sér óspart e'ins og' mynd
ini þér til íhliðar sýnir
glög-gt. (Mynd: JV.)
RÍkisstjórnin
staðfestir
samkomul.
Blaðinu barst í gær svohljóð-
andi frétt frá sjávarútvegs-
málaráðuneytinu:
„Ríkisstjórnin hefur kynnt sér til-
lögur og greinargerð yfirnefndar
Verðlagsráðs . sjávarútvegsins á
liugsanlegum breytingum út-
flutningsgjalds á sjávarafurðum
í .sambandi við ákvörðun fiskverðs
á árinu 1966. Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að beita sér fyrir því við
Alþingi, að þær breytingar verði
gerðar á lagaákvæðum um út-
flutningsgjald, að það miðist við
ákveðna upphæð á riiagneiningu,
er sé yfirleitt hin sama fyrir all-
ar afurðir, og ennfremur, að
framlag Fiskveiðast.ióðs, er greitt
hefur verið af útflutningsgjaldi
Framhald á 14. siðu.
Handritastofnun og ís-
lenzkudeild 1 sama húsi
Reykjavfk, EG
INNAN fárra mánaða verður byrjað á nýbyggingu á lóð Há-
skóla íslands nús þetta verður um 600 fermetrar að stærS,
fjórar hæðir og: verður Handritastofnun íslands þar til húsa. Einn
ig er ráðgert, að öll kennsla í ísleiwku flytjist úr Háskólabygg
ingunni í þetta nýja hús, að þvi er Ármann Snævarr háskóla-
rektor greindi frá á fundi með blaðamöimum nú fyrir helgina.
Háskólarektor lét svo ummælt
á blaðamannafundinum, að hann
fagnaði mjög þeim aukna skiln-
ingi, sem nú ríkti á störfum og
mikilvægi Háskólans. Rektor
minnti á, að sennilega væri það
einsdæmi hvernig Háskóli ís
lands hefði verið byggður upp,
en Happdrætti Háskólans hefur
til þessa staðið straum af öllum
byggingaframkvæmdum skólans.
Rakti rektor síðan í stuttu máli
byggingarsögu Háskólans. Hús
Atvinnudeildar á Háskólalóðinni
var byggt á árunum 1936—37
fyrir fé frá Happdrættinu. Ríkið
endurgreiddi Háskólanum svo
>ooooooooooooooooooooooooooooooo<
í FYIiSTA tolublað'i Sunnudagsblaðsins á þessu ári þirt
ist grein um Sir Winston Churchill eftir brezka rithöfimd
inn Goronwy Rees, sniásögurnar Laxm stöðumælasyndarans
eftir OUe Caríe og Símtal eftir Berton Roueché. Þá er í blað
inu þátturinn Sitthvað fyrir börnin og ýmislegt fleira efni.
Blaðinu fylgir eixmig efnisyfirlit síðasta árs, X. árgangs
Sunnudagsblaðsins.
>ooooooooooooooooooooooooooooooo<
síðan byggingarkostnað hússins.
Háskólahúsið sjálft var byggt á
árunum 1936—1940, og gengið
var frá lóðinni kririgum húsið
1949—1952. Árið 1948 var íþrótta-
hús Háskólans byggt. Það var svo
stækkað á árunum } 1958—1960.
1958 var keypt ln’ísnæði fyrir
Náltúrugripasafp og býrjað var á
húsi Raunvísindastofrjunar 1963,
en það hús var byggt: að nokkru
fyrir framlag frá íslenzku ríkis-
stjórninni og afmælisgjöf Banda
ríkjastjórnar til Háskólans.
Einn fjórði hluti af telcjum
Happdrættis Háskólans rennur
til ríkisins, og hefur ríkið látið
það framlag ganga í byggingar-
sjóð atvinnudeildar. Minntist
rektor í þessu sambandi sérstak-
lega á hinn mikla þátt prófessors
Alexanders Jóhannessonar í
byggingarsögu Háskólans.
Þá skýrði Ármann Snævarr frá
því að á næstu mánuðum yrði haf-
izt handa um byggingu nýs húss
á lóð Háskólans, þar sem Hand-
ritastofnun íslands mundi verða
til lnisa og er húsið væri full-
reist mundi öll íslenzkukennsla £
Háskólanum flytjast þangað, sem
og starfsemi orðabókar Háskól-
ans og skrifstofur prófessora við
íslenzkudeildina. Hús þetta verð-
ur 600 fermetrar að stærð og
mun Handritastofnunin fá umráö
yfir 1/3 þess, en íslenzkudeildin
og önnur starfsemi fá 2/3 hluta
iiússins. Mundi þetta létta mjög
á Háskólabyggihgunni sagði
rektor, en þar eru þrengsli þegar
orðin mikið vandamál. Þá gat
rektor þess að lokum að bygg-
ingarnefnd væri nú að undirbúa.
byggingu húss fyrir læknadeild,
en mjög væri orðið aðkallandi aff
hefjast sem fyrst lianda um bygg-
ingu þess. S
iilljónatjón í
Mozambique í
fellibyi í
A-Afríku
BEIRA, 8. janúar. (ntb-reuter).
Milljónatjón hefur orðið í portú
gölsku nýlendunni Mozambique á
austurströnd Afríku af völdum
fellibylsins „Claude,” sem geysaði
þar fyrir þremur dögum. Gífurleg
ar rigningar hafa verið í landinu
síðustu daga.
Þúsundir kofa í bæjum og þorp
um Afríkumanna hafa skolazt á
burt í flóðum, sem fylgdu í kjöl-
far hinnar gífurlegu úrkomu. í
mörgum héruðum hefur uppsker-
an eyðilagzt. Samgöngur við S.-
Afríku hafa rofnað.
Á þremur dögum hefur úrkom-
an verið sem svarar 2/3 af heild-
arúrkomu nieðalárs í héruðunum
umhverfis höfuðborg Mozambiqu-
es, Loranco Marques.
Lengra inni í landi, sérstaklega
í suðurhlutum Rhodesíu, í Bechu-
analandi, Basutolandi, og sumpart
einnig í Zambíu eru á hinn bóg-
inn gífurlegir þurrkar. Frá Lond-
on berast fréttir um að í undirbún-
ingi sé víðtæk aðstoð við þurrka-
svæðin. Hveiti verður sent bæði
frá Ástralíu og Kanada.
Lögð er áherzla á, að Rhodesía
fái sinn skerf þrátt fyrir refsiað-
gerðir Breta gegn nýlendunni.