Alþýðublaðið - 14.04.1966, Síða 2
eimsfréttir
^....sidasflidna nótf
PARÍS: — De Gaulle forseti skýrði stjórn sinni svo frá
í gær, að hann teldi ekki ástæðu til að fresta fiutningi bandaríski-a
iierstöðva frá Frakklandi. Forsætisráðherra Frakka, Georges
Poinpidou, sagði á þingi, að sá dagur kæmi þegar Bandaríkjamenn
teldu de Gaulle forseta „framsýnan leiðtoga elztu og tryggustu
'bandalagsþjóðar sinnar.”
SAIGON: — Víetcongmenn réðust á tvær lögreglustöðvar
■I Saigon í gærkvöld, örfáum klukkustundum eftir að þeir gerðu
fikýndiárás í borginni, felldu átta menn og eyðilögðu eða löskuðu
iO flugvélar. Leiðtogar búddatrúarmanna hafa ákveðið að láta
al andstöðu sinni gegn stjórnarráðstefnu þeiri’i, sem stjórnin hefur
■fioðað til í Sagon og senda þangað fulltrúa, en þeir hóta stórfelldum
tnótmælaaðgcr’ðum ef ekki verður gengið að kröfum þeirra um
kosningar innan fjögurra til sex mánaða
DURBAN: — Gríska olíuflutningaskipið „Manuela” lagðist
að bryggju í Durban í kvöld eftir að hafa beðið þrjá kílómetra
■frá höfninni í 36 tíma. Ekki hefur verið frá því skýrt hvort skipið
■losi farm sinn, 15,000 lestir af hráolíu, sem upphaflega átti að
flytja til Rhodesíu. Góðar heimildir herma, að „Ioanna V”, sem
enn í Beira í Mozambique, muni dæla olíu sinni inn í nýja
olíugeyma en ekki í olíuleiðsluna til Umtali í Rhodesíu.
BERLÍ.r,í: — Austur-Þjóðverji, sem ákærður hefur verið fyrir
•njósnir í þágu Bandaríkjamanna og Vestur-Þjóðverja í A-Þýzka-
landi og Ungverjalandi, Erich Lorbeer, sextugur skólakennari,
sagði fyrir rétti í Austur-Berlín í gær, að hann hefði reynt að
afla sér vitnesl ju um varnarviðbúnað kommúnistaríkja á sviði
sýklahernaðar. Tveir Þjóðverjar hafa verið leiddir fyrir rétt í Au,-
■llerlín fyrir njcsnir auk Lorbeers.
KAUPMANNAHÖFN: — Danska stjórnin samþykkti í gær
-frumvarp um nýja reglugerð um húsaleigu. Frumvarpið byggist
íi jsamkomulagi f jöurra stærslu þingflokkanna, og er á þá lund að
feiga verði smám saman hækkuð í gömlum húsum samtímis því
eem vextir af byggingarlánum verða settir í lag.
'»• NEW YORK: — Pan American Airwais tilkynnti í gær að
■félagið hefði pantað 25 Boeing-747 farþegaþotur að verðmæti 525
'-tnilljónir doilara. Þetta eru mestu fiugvélakaup í sögu félagsins.
<IIver flugvél tekur 490 farþega og verða þoturnar afhentar frá
-beptember 1969 til maíloka 1970.
HÖFÐABORG: — Nýjasta og stærsta flugvélaskip Frakka,
,,Fock”, sigldi fram hjá Góðravonarhöfða í dag. Ekki er vitað um
ókvörðunarstað skipsins. Menn velta því fyrir sér hvort ferð skips-
éns standi í sambandi við olíubannið á Rhodesíu, en því er neitað.
LEOPOI.ÐYILLE: ,— Kongóskir stjórnarhermenn hafa náð
'fiænum Opala, 290 km. suðvestur af Stanleyville, á sitt vald. Bær-
inn var síðasta vígi uppreisnarmanna.
MOSKVTJ: — Rússar hafa sakað bandarísku leyniþjónust-
fCna um tilraun til að ræna fyrsta sendiráðsritara sovézka sendi-
ítráðsins í Tokio. Asakanir þessar eru bornar til baka í Washington.
NÝJU DELHI: — Kínversku drottnararnir í Tíbet hafa hafið
•tiaráttu fyrir útrýmingu „síðustu leifa trúarlífs meðal Tíbetbúa,”
<eð sögn Dalai Lama í gær.
PARÍS: — Hinn heimsþekkti rithöfundur Duhamel lézt í
4gær, 82 ára.
SjónvarpsmáSið
rætt á Alþingí
Ragnar Arnalds (K) ræddi mest
um hugsanlega einokun Banda
ríkjamanna í íslenzkri dagblaða
útgáfu og á fræðslumálum hér á
landi. Hann kvað viðleitni Gylfa
Þ. Gíslasonar menntamálaráðherra
til að finna lausn á þessu vanda
máli alls góðs maklega en það
væri samt ekki nóg, spurði hann
síðan hvað ríkisstjórnin hygðist
gera í þessu máli.
Guðlaugur Gíslason (S) ræddi
iftíreögu málsins og minntiBt á
■stúdenttiundirskiuftiríiar 600 og
14600 undirskriftir sjónvarpsnot
enda. Hann minnti á þá Vaðreynd
að Keflavíkursjónvarpið hefði nú
starfað í 15 ár og ekki hefðu
heyrzt háværar raddir um að því
væri lokáð. Guðlaugur kvaðst telja
hættulegt að Alþingi færi inn á
þá braut að fyrirskipa landsfólk
inu livað það mætti horfa á og
hvað ekki.
Listi frjalsiyndrð
á Seltjarnarnesi
MtMtMMtmttHHWIWHMHt
//
rr
Michelangelo
fær stórsjó
Genúa 13. 4. (NTB-AFP.)
ítalska lúxusskipið „Mich
elangelo” tilkynnti í dag að
þrjá menn hefði skolað út
byrðis og 10 hefðu meiðst
þagar risastór alda gekk yf
ir skipið er það var statt
um 400 sjómílur frá Azoreyj
um.
Michelangelo sem er 43000
lestir og flaggskip ítalska
kaupskipaflotans, lenti í gíf
urlegum stormi og sigldi inn
í 30 metra háan ölduhrygg,
sem reið yfir skipið með
feiknaafli. Skipstjórinn sagði
að líkast hefði verið því að
járnbrautal’lest hefðl ekið
á skipið á ofsahraða. Tals
verðar skemmdir urðu á skip
inu.
Á skipinu eru 755 farþeg
ar og 720 manna áhöfn. Það
frá Genúa 6. apríi áleiðis
is til New York.
tttttttwtwttttttttttttttttw
Reykjavík, — EG.
Nokkrar umræður urðu á Al-
þingi í gær um takniörkun Kefla
víkursjónvarpsins við Keflavíkur
flugvöll, en framsóknarmenn og
kommúnistar liafa flutt þingsálykt
unartillögu þess efnis. Umræðum
unt tilöguna var frestað um kvöld
matarleytið í gær og verður henni
vísað til nefndar.
Gils Guðmundsson (K) mælti
fyrir þingsályktunartillögu fram-
sóknarmanna og kommúnista um
takmörkun KcfLavíkurcjónvarps
ins. Gils fór nokkrum orðum um
mikilvægi sjónvarps almennt og
kvað ástandið hér dæmalaust og
vansæmandi í þessum efnum.
Hann kvað sjónvarpsreksturinn í
Keflavík vera stórkostlegt þjóð
félagslegt vandamál og rakti sögu
og gang málsins, og sagði að ann
aðhvort yrði að takmarka siónvarn
ið nú eða að það yrð; ekki gert
um ófyrirsjáanlega framtíð. Gils
kvað sjónvarpið draga miög úr
allri menningarsókn og yfirleitt
stofna allri íslenzkri menningu í
háska.
Evsteinn Jónsson (F) kvað ción
varnið mikið vandamál, sem levsa
vrði og kvaðst hann vonast til
hæet vrði að takmarka siónvarn
’ð við Keflavíkurflugvöll strax og
Menzka siónvarnið tæki til starfa
h’ot.ta mál yrði að levsa burtséð
Crá öllum flokkS'ténarmið’im
saeði Evsteinn, og lét bess getið
hetta „ofboðsleea ástand" hefði
=kan,'i« vandamál á fiestum íslenzk
”m heimilum. sem siónvamið næði
*il. Það væri fyrst deilt um hvort
kauna skvldi '’jónvarn s'ðan á
hvað skvldi horfa eða hvnrt skvldi
hlusta á fsl. útvarnið. fSagði hann
"ð hessi „látlausa viðiireign" á
húsundum heimila hlvti að skana
mikla óvild í garð Bandaríktanna
m Bvsteinn kvaðst vilia iðka góða
samhúð og samvinmi við Banda
"'kin í hvívetna. TTm undirskríft
ir 14 blí'Tind SÍónvarnDtinlomÍQ
sagði formaður Franv’óknarflokks
ins að bær væru á „miaskilningi
hvgeðar" og sá misskilningur
hlvti að leiðréttast síðar.
Listi frjálslyndra kjósenda í Sel
tjarnarneshreppi við sveitarstjórn
arkosningarnar í maí hefur verið
ákveðinn. Listinn nýtur stuðnings
Alþýðuflokksfélags Seltjarnarness,
Framsóknarfélags Seltjarnarness
og Alþýðubandalagsfélags Sel-
tjarnarness. Umboðsmaður er Jón
Grétar Sigurðs on, lögfræðingur
Melbraut 3. Listinn er þannig skip
aður:
Jóhannes SölvaKon, viðskipta-
fræðingur, Lindarbraut 2,
Sveihbjörn Jónsson, framkvæmda
stjóri. Vallarbraut 16.
Sigurður Jónasson múrari, Lind
arbraut 6 ,
Óskar Halldórsson cand. mag. Mið
braut 10.
Auður Guðmundsdóttir liúsfreyja
Bergi,
Gunnlaugur Árnason, verkstjórl
Melabraut 40
Sigurður Jónsson kaupmaður Mela
braut 57.
Njáll Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri Miðbraut 11
Ásgeir Sigurgeirsson kennari,
Melabraut 47 ,
Konráð Gíslason Kompásasmiður
Þórsmörk.
Til sýslunefndar: Konráð Gísla
'son, kompásasmiðu|r, Þórsmörk.
Til vara: Ágúst Jónsson, kaupmað
ur Melabraut 12.
Eldhús eftir máll
Rvík, — ÓTJ.
-■ •fyrirtækið Málningarvörur sf. er
- -cétt í þann mund aö hefja inn
--élutning á Ideal-mass eldhúsinn
-céttingum frá Þýzkalandi og með
éheim kemur sú stórkostlega hag
—cæðing að fólk gretur fengig inn
■ céttingar eftir máli, rétt eins og
—z>4>að Iætur sauma á sig föt eftir
- —tnáli,
Innréttingarnar eru úr harð
-afdasti, mjög stílhreinar og fall
;%gar og vandaðar að gerð. Ef fólk
’vantai' eldhúsinnréjltingu, tekur
■íl'að mál af herberginu og fer með
' 5|>að tij fyrirtækisins. Þar- gétur:
• -Á|jað valið sér skápátegundir og i
borðtegundir og liti og sagt til
um hvernig það vill hafa skipulag
ið. Fyrirtækið gerir svo rissmynd
af uppsetningunni og bendir á
ýmsa möguleika sem leikmaðurinn
sér ekki. Þegar samkomulag næs.t
um teikninguna er hægt að reikna
nákvæmlega út hvað mikið inn
réttingin kemur til með að kosta
Teikningin er svo send út ásamt
pöntun og kemur „eldhúsið" þá
von bráðar vandlega innpakkað
tii kaupenda. Þá er allt tilbúið,
festingar og göt ,á sínum stað og
einföld teikning fylgir með. Svo
að • ef kaupandinn hefur svona
Framhald á 10. síðu.
Dýrkun á Johnson forseta
vandamál á Nýju Guineu
Port Moresby ,13. apríl
(NTB-Reuter) — Furðuleg
dýrkun á Johnson forseta á New
Hanover-eyju á Nýju Guineu hefur
valdið áströlskum yfirvöldum mikl
um erfiðleikum, og hefur nú verið
ákveðiðmð senda herflokk til eyj-
unnar i því skyni að binda enda
á Johnson-dýrkunina ef mögúlegt
er, að þvi er tilkynnt var í Port
Moresby í dag
Eyjarskeggjar hafa meðal ann-
ars neitað að borga skatta. í stað-
inn. leggja þeir peningana í sjóð,
sem nota á til að kaupa Johnson
forsetæ# .og skipa hann konung
eyjunuar. í fyrra gengu þeir ,syo
langt að þeir sendu trúboða nokki’
um fyrstu afborgun af kaupverð-
inu.
Talið er, að 2 þús. af 7 þús. íbú-
um New Hanover taki þátt í þess-
ari undarlegu tilbeiðslu á Banda-
ríkjaforseta. Fyrirbærið er tveggja
ára gamalt og á sennilega rót sína
að rekja til heimsóknar banda-
rískia vísindamanna er fóru mjög
Framhald á 15. síðu.
WMWVWWWWWMWMWWWWWWWWWWWVW
Stjórnmálanámskeið FUJ
Stjórnmálanámskeið verður haldið í Alþýðuhúsinu x
kvöld (fimmtudaginn 14. april) kl. 8,30 stundvíslega. Fram-
sögumenn verða: Hilmar llallvarðsson og Ólafur Þorsteins
son. Leiðbeinandi er Björgvin Guðmundsson, deildarstjóri.
HWWWWWWWWWWWWWVWWWWWWWWWWWWWIIWWl
2 14. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLA0I0