Alþýðublaðið - 14.04.1966, Side 5
í HAMBORG starfar hjúskapar
miðlun, sem er mjög nýstárleg
og þess verð, að íslenzkir blaða-
lesendur, einkum ólofaðir, fái af
henni noklcur kynni. Stofnun
þessi heitir Altmann og er sú
stærsta sinnar tegundar í heim
inum. Vikulega leita á náðir
AÐEINS 15 prósent af viðskipta
vinum vill láta birta myndir af
sér, en XE 403,133 hefur ekk-
ert á móti |>ví.
—Hver þráir eins og ég
ást og umhyggju og skilniugsrikt
hjarta? Ég er 25 ára, grönn,
brúnhærð, lagleg og tilbúin að
gefa hjarta mitt hinum rétta.
Ég hef lengi verið XD 600.881.
Xietta segir uRga stúlkan, en
Altmann lætur liana ekki af
hendi við livern sem er Raf-
eindaheilinn tekur ákvörðunina.
' hennar upp undir hálf milljón
manna og kvenna í þeirri von
að ráfeindaheilinn finni handa
þeim hinn eina rétta ektamaka,
en kjarni þessarar stofnunar cr
merkilegur rafeindaheili, sem
leiðir saman ólofaða menn !og
konur, sem þess óska, allt eftir
settum reglum.
En guðinn Amor lætur ekki
setja sig ókeypis á gatakort. Það
kostar allt upp í 13000 krónur
að láta leysa hjúskaparvandann
á tæknilegan máta.
Undirstaðan fyrir árangri raf-
eindaheilans er spurningalisti
með 130 spurningum, sem svara
verður eftir beztu samvizku. Listi
þessi er útbúinn af félagsfræð-
ingum, s'álfræðingum og lækn-
um, og menn sleppa ekki með
venjulegar spurningar um aldur,
útlit, heilsu o.s. frv., vétin vill
einnig fá vitneskju um, hvort
viðkomandi' hefur gaman af daðri
svo dæmi sé nefnt.
STRÁNGT EFTIRLIT.
Sem stendur eru nú á skrá
hjá Altmann um 17000 viðskipta
vinir, sem bíða þess að ganga í
það heilaga. Vikulega 'á þeir
send um það bil 2500 makatil-
boð, en án nafna, heimilisfangs
eða myndar.
Þess í stað fá þeir kort sem
segir, að viðkomandi muni hæfa
vel fyrir t. d. E X 403 133, en
hvað snertir aldur, stöðu, skaps
muni og táihugamál, þá verða
menn að treysta hæfni rafeinda
heilans.
Óski viðskiptavinurinn hins veg
ar nánari upplýsinga um E X
403,133, verður hann að senda
sitt eigið skýrslukort með beztu
kveðju frá X D 600,881.
Þess er stranglega gætt, að
enginn fari á bak við Altmann
svona í upphafi. Gjaldmælirinni
fer nefnilega stígandi eftir því,
sem kynnin verða nánari, allt
frá tilboði um bréfaskipti og
upp í persónuleg kynni!
ÚTILOKUNARAÐFERÐIN.
Þegar rafeindaheilinn, sem
gerir hver.ium viðskiptavini níu
tilboð í einu, byrjar að vinna,
gáir hann fyrst og fremst að því,
hvort maður og kona séu úr
samskonar umhverfi, hvort ald-
ur, hæð, áhugamál og skapgerð
falli saman.
■
UNGA STÚLKAN getur valið á milli þessara 10 manna, og sá fremsti á myndinni hæfir henni
bezt, segir rafeindaheilinn.
Það eru 40 atriði, sem að
þessu snúa, en bjalla gefur þeg
ar í 3tað stöðvunarmerki, ef
strangtrúaður katólikki t. d.
lendir á guðleysingja, ef kona,
sem er 189 cm á hæð er við
hæfi maiuis, sem er 160 cm
á hæð, eða ef 16 ára stúlka
kemst í snertingu við fimmtug
an karlmann.
Ef gatarenningarnir fara alla
leiðina án stöðvunarmerkisins,
eru plúsar og mínusar taldir,
því að hið fullkomna ,,par“, sem
passar algjörlega saman á all-
an hátt, finnst aðeins einu sinni
af hverjum 350.
TÁNINGAIIJÓNABÖND.
'Helmingur þeirra viðskipta-
vina, sem fá hjúskapartilboð frá
rafeindaheilanum, giftast ein-
hverju „tilboðinu".
Sumir fá 50 mismunandi, áður
en þeir hitta á það ré.ta, en
aðrir slá til í fyrsta sinn? Unga
fólkið er óþolinmóðara og gift-
ir sig fljótt, en þeir eldri eru
gætnari.
'Það kann að vekja undrun
sumra, að meira en 1000 fáninga
stúikur — með samþykki for-
eldra sinna — hafa snúið sér
iil Altmann-stofnunarinnar í leit
að maka.
Forstjórinn segir hins vegar:
Foreldrarnir eru auðvitað hrædd
ir um, að stúlkurnar. lendi í slag
togi með allskonar mönnum og
verði kannski ófrískar Þess
vegna er það betra, að við finn
um einhvern, sem hæfh’ þeim
og þær með góðri samyizku geta
gifzt, ef illa fer!
ÚTFLUTNINGUR KVENNA.
Eftir síðari heimsstyrjöldina
•hefur tala kvenna í Þýzkalandi
umfram karlmenn verið um það
bil 280,000, og því hefur Alt-
manri átt í nokkrum erfcðleikum
með að mata rafeindaheilann
sinn með jafn mörgum karl- og
kvenkortum. Þess vegna hefur
verið gripið til þess ráðs, að
fLytja út vel gefnar og dugleg-
ar konur til handa útlendum karl
mönnum. Eitt þúsund kvenna
hefur verið sent til Svíþjóðar,
þar sem konur eru allmiklu
færri, einnig hafa karlmenn í
Sviss, Ástralíu og Kanada náð
sér í kvonfang frá Þýzkalandi
fyrir milligöngu þessarar nýtízku
legu hjúskapatverksmiðju í Ham
þorg.
Fyrirtækið er 10 ára gamalt,
en ekki er nema eitt ár síðan
það tók sjálfvirknina í þjónustu
sína. Nú er unnið þar með vél-
um, sem kosta um 4 mílljónir
króna, einnig vinna þar 110
manns auk liins fræga rafeihda
heila sem kostar hvorki meira
né minna en 408 milljónir króna,
en hann er leigður út tvisvar í
viku: ,j*'
ÁSTIN.
Um starfsemina almennt seg-
ir forstjórinn m.a.: Við leggjumí
höfuðáherzlu á sömu undirstöðu;
hneigðir hjá væntanlegum hjón-
um Við trúum á hinn gamla
málshátt, að hvað elski sér líkt.
Rafeindaheilinn gerir aldrei til-
lögu um að stúlka, sem er af
æðstu stigum í þjóðfélaginu gift!'
ist karlmanni af lægstu stigum.'
Hámarks ,,hlaup“ á milii stétta
eru þrjú stig upp eða niður.
Það eru þrjár ástæður fyr-
ir velgengni okkar:
1) Eftir því, sem sjálfvirknin
eykst hittast menn og konur
minna en áður á vinnustöðum.
2) 17 milljónir flóttamanna-
hafa flúið hingað að1 austan,
vinnuafl er sótt út fyrir landa-
mærin. Við lifum í framandi
umhverfi, og þótt við kynnumst
nýju fólki, er erfitt að kynnast
því nægilega náið.
3) Hvernig geta menn almennt
vitað, með hverjum skal eyða
ævinni. Við krefjumst mikils
hvert af öðru og við höfum ara
grúa tækifæra til að nota hin-
ar auknu tómstundir. Við þurf
um á hjálp að halda til að finna
félaga, sem hæfir okkur og get
ur tekið þátt í hinum margvís-
legu áhugamálum okkar.
Þá er aðeins einni spurnin'gu
ósvarað:
Hvað þá um sjálfa ástina?
Framhald á 10. síðu.
- 14. apríl 1966
ALÞÝÐUBLAÐIÐ