Alþýðublaðið - 14.04.1966, Síða 6
GLUGGINN
Jón Finnsson hrl.
Lögfræðiskrifstofa
Sölvhólsgata 4. (Sambandshúsið)
Símar: 23338 og 12343
Eyjólfur K. Sigurjónsson,
I igsiltur endurskoðandi.
Flókagötu 65. — Sími 17903.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málaflutningsskrifstofa
Oðinsgötu 4 — Sími 11043.
Guðjón Sfyrkársson,
hæstaréttarlögmaður.
Málaflutningsskrifstnfa.
Hafnarstræti 22. simi 18354,
SERVIETTU-
PRENTUN
SIMI 32-101.
Bjlirn Sveinbjörnsson
hæstaréttarlögmaður
Lögfræðiskrifstofa.
Sambandshúsinu 3. hæð.
Símar: 12343 og 23338.
Fékk skyggnigáfu
v/ð heilaskurð
í tilkynningu frá London kom
enn fremur fram að Rampa hefur
í fyrri bók „Þriðja augað“ skýrt
frá því að hann hafi fengið
skyggnigáfu við heilaskurð, sem
á honum var framkvæmdur j Tí
bet, en þó sjáist engin merki skurð
arins á höfði hans. . . Bókin Þriðja
augað kom út á ensku árið 1955.
í formála segir rithöfundurinn frá
því að hann sé fæddur í Tíbet
og hafi menntast til að verða
lama, og hann lætur lesandanum
eftir að dæma um hversu miklu
hann trúi af því, sem í bókinni
stendur, en hann heldur því fram
að það sé allt sannleikur. Nokkr
Framhald á 10. síðu.
Æði grípur um sig
líka meðal villidýra
SAMKVÆMT upplýsingum AI
þjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO) hefur alvarlegur far
aldur gripið um sig meðal villi
dýra í Evrópu, Asíu og Róm-
önsku Ameríku. Er þar um að
ræða æði, og hefur slíkur farald
ur ekki komið upp í 100 ár. í
Evrópu er það fyrst og fremst
refurinn sem er smitberi. Af
2660 villtum dýrum, sem náðust
í Evrópu með æði á árinu 1963,
voru ekki færri en 2071 refur.
Það eru einkum átta tegundir
villidýra sem eru næmar fyrir
sjúkdóminum: refurinn, sjakalinn,
úlfurinn, sléttuúlfurinn, skunk-
urinn, mungódýrið, vislan og
leðurblakan. Eina leiðin til að
hafa hemil á faraldrinum er að
fækka villidýrategundum sem
eru næmar fyrir honum. Gagn
stætt þeirri almennu skoðun að
æði sé hitabeltissjúkdómur, upp
lýsir WHO að það komi oft upp
meðal hunda og refa á heim-
skautasvæðunum. Árið 1963 var
t.d. sagt frá hundi á Austur-
Græniandi sem hafði verið bit-
inn af óðu villidýri.
Árið 1963 fengu 726 húsdýr í
Evrópu sjúkdóminn. í Danmörku
kom á sama ári upp æði hjá
8 refum, 3 köttum og 2 dádýr
um nálægt þýzku landamærun-
um. Þetta leiddi til þess að 18.
000 hundar voru bólusettir. Ref
um og greifingjum var útrýmt
með gasi, og heitið var verð-
launum fyrir villidýradráp á um
ræddu svæði.
HELMINGUR YNGRIEN 21 ARS
HVAÐ verður um börnin i
Asíu?
•Helmingur þeirra 1500 milljón
manna sem byggja Asíu er und
ir 21 árs aldri. HVernig bezt
megi fullnægja þörfum þessara
milljóna barna og unglinga, var
rætt *»• ráðstefnu sem nýiega var
haldin í Bangkok.
'Hana sat mikill fjöldí full-
trúa ýmissa stofnana hvaðanæva
úr' heiminum (Sameinuðu Þjóð
irnar og sex af sérstofrunum
þedkúa, Rauði kros/sinn, skáta-
hreyfingin, líknarstofnanir o.s.
frv.) ásamt fulltrúum 24 Asíu-
landa Meðal umræðuefna voru
mannfjölgunarvandamálin, tak-
mörkiin barneigna, næringar-
lefniaskartur, smábarnagæzla og
meimtun barna og unglinga.
Frumkvæði að ráðstefnunni
táttu Efnahagsnefnd Sameinuðu
þjóðanna fyrir Asíu (ECAFE) og
Barnahjálptn (UNIOEiF). í um-
ræðurtum •kom það m.a fram,
að rannsókn hefði leitt < ljós,
að sá hluti íbúa hvers lands sem
tæki jákvæða afstöðu til tak-
mörkunar barneigna næmi frá
65 af hundraði í Tyrklandi upp
í 90 af hundraði á Taiwan (For
mósu). í flestum Asiuíöndum
tvöfaldast íbúatalan nú á 25
árum. Fulltrúi Bamahjálparinn-
ar sagði, að stofnunin mundi
taka til athugunar spurninguna
um hjálp við lönd, sem hafa
þörf á takmörkun barne’gna á
ráðstefnu í Addis Abeba í mai.
Enda þótt menntun miði á-
fram í Asíu, eru enn mörg vanda
mál óleyst. Ungt fólk, sem orð
ið er of gamalt til að setjast
á skólabekk, verður að fá tæki
færi til að læra að lesa. í öllum
löndum Asíu er þörf i meiri
kennslubókaútgáfu. Stuðla verð
ur að aukinni sérmenntun.
Fulltrúi írans skýrði frá því,
að um 10.000 stúdentar væru nú
starfandi í kénnsluhópum sem
settir hafa verið á laggimar til
að vinna bug á ólæsi úti á
landsbyggðinni. Hefur þesd starf
semi mieðal annars lettt * til
þess, að á síðustu tveimur ár-
um hafa verið reistir fleiri skól-
ar en á undangengmim 50 -ár-
um, sagði hann.
□ Nýrri 300 lesta skonnortu
var nýlega gefið nafn í Hull. Hún
fékk nafnið „Sir Winston Churc-
hilT', og við nafgiftina var notuð
flaska af eftirlætis kampavininu
hans Churchill. Tilgangurinn með
byggingu skonnortunnar, er að
vera skólaskip og tekur hún 36
drengi.
Viljurn rtíðoi mann
til að annast innkaup og stjórn verzlunar
úti á landi.
Starfinu fylgir gott húsnæði, leigufrítt.
Vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða
og upplýsinga til.
Starfsmannahalds SÍS.
Hjúkrunarkonu
vantar nú þegar að Sjúkrahúsinu á Húsavík.
Ennfremur yfirhjúkrunarkonu frá 1. júli n.k.
Upplýsingar gefa yfirhjúkrunarkonan og
s j úkrahúslæknir.
Yfirkjörstjórn
við borgarstjómarkosningar í Reykjavík,
er fram eiga að fara 22. maí 1966, skipa:
Torfi Hjartarson, tollstjóri, oddviti
Einar B. Guðmund'sson, hæstaréttar-
lögmaður, varaoddviti
Þorvaldur Þórarinsson, hæstaréttar-
lögmaður, ritari.
Framboðslistum ber að skila til oddvita yf-
irkjörstjórnar eigi síðar en miðvikudaginn
20. apríl n.k.
Reykjavík. 12. apríl 1966.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
13. landsþing
Slysavarnafélags íslands
verður sett í slysavarnahúsinu f Reykjavík fimmtudag-
inn 28 þ.m. og hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni
kl. 2 e.h.
Féiagsdeildir sem ekki hafa þegar sent kjörbréf
fulltrúa slnna eru beðnar að gera það sem fýrst.
Félagsstjómin.
STÚLKA
vön vélritun óskast til starfa á skrifstofu
vorri
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7.
£ 14. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
\