Alþýðublaðið - 16.04.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 15. apríl 1966 - 46. árg. — 85. tbl. — VERÐ 5 KR,
Reykjavík, — EG .
Stjómarfrumvarp til laga um
breytingu á löguin um framleiðslu
ráð Iandbúnaffarins var lagt fram
á Alþingi í gær. Ein helzta breyt
ingin sem frumvarpiff gerir ráð
fyrir er sú, aff hætt verði aff miða
verðlagsgrundvöllinn við launaúr
tak llagutofunnar þar sem þaff
hefur haft mikil álirif, ef aflast
vel við' sjávarsíffuna, effa ef ein
hverjar stéttir taka upp ákvæðis
vinnutaxta. Hafa slíkar breyting
ar til þessa oft haft mikil áhrif
til hækkunar á verfflagsgrundvöll
inn. Hefur þaff Iengi verið eitt
af stefnumálum A^þýðuflokksins
aff fá fram breytingar á þessu atr
iffi. Frumvarpiff gerir ráff fyrir
ýmsum öffrum breytingum og
fylgja því m. a. tillögur Sæmund
a,r Ólafl.lsonar fulltrúa neytenda
í sex manna nefnd og greinargerff
ir hans um takmörkun útflutnings
uppbóta í áföngum næstu 7 ár.
Frumvarp þetta er að mestu
leyti samhljóða tillögum sjö
mannanefndar sem landbúnaðar-
ráðherra skipaði í fj'rra þegar
ASÍ gerði sex manna nefndina ó
starfhæfa. í sjö manna nefndinni
áttu þessir sæti: Ólafur Björns
son prófessor, formaður, Vilhjálm
ur Hjálmarsson alþigismaður,
Gunnar Guðbjartsson bóndi. Ein
ar Ólafsson bóndi. Sæmundur Ó1
afsson framkvæmdastjóri. Ottó Sc
hopka viðskiptafræðingur og
Hannibal Valdimarsson, alþingis
maður. Hannibai á þó ekki neina
aðild að þeim tillögum. sem frum
varpið er byggt á, en hann vill
hins vegar svipta neytendur öllum
rétti og aðstöðu til að liafa áhrif
Framh á 14. síðu.
Bóluefni gegn
geislavirkni?
Sólin
PRJÓNASTOFAN Sólin eftir Hálldór Kiljan Laxness verður
frumsýnt ú miðvikudaginn kemur í Þjóðleikhúsinu. Myndin er
tekin á biaðamannafundi í gær: Frá vinstri: Baldvin Halldórs-
son, leikstjóri, Guðlaugur Rósinkranz, Þjóðleikhússtjóri og
halldór Kiljan Laxness. Sjá nánar á blaðsiöu 3. (Mynd: J. V.)
Atlantic City, New Jersey j
15. apríl (Ntb-Reuter)
Tveir Bandarískir vísindamenn
skýrðu frá því í dag, að þeir hefðu
framleitt lyf, sem ef til vill mundi
gera kleift að bólusetja fólk gegn
áhrifum geislavirks úrfalls fré
kjarnorkusprengjum. Vísindamönn
unum hefur tekizt að gera mýs að
miklu leyti ónæmar fyrir sumum
skaðlegum áhrifum geislunar með
svipuðum hætti og fólk er bólur
sett gegn sjúkdómum.
Samtimis tilkynnti bandaríska
Framhald á 14. síffu.
Taka 9000 tonna farþegaskip á leigu
Reykjavík, ÓTJ.
Karlakór Reykjavíkur hefur tek-
ið á leigu 9000 tonna rxissneskt
farþegaskip fyrir næstu utanlands
ferð sína, sem farin verður 27.
'september næstkomandi og stend
ur i rúma þrjátíu daga. í þessari
ferð mun kórinn skoða austan-
vert Miðjarðarhaf og þar sem skip
ið tekur 421 farþega voru umfram
miðar seldir þeim sem ha.fa vildu.
Og þeir sem liafa vildu voru langt
um fleiri en komist gátu svo að
uppselt er fyrir löngu.
Ferðaskrifstofan Landsýn hafði
veg og vanda af undirbúningi og
LjóSabók me5 tómum greinarmerkjum
Stokkhólmt 15. 4. (NTB-Reuter)
Einn frumlegasti og kunnasti
listamaðurinn af yngri kyn-
slóðinni í Svíþjóð, Carl Fred
erik Rauterswald hefur gefið
út 95 blaðsíðna bók, sem hefur
eingöngu að geyma tákn eins
og upphrópunarmerki, spurn-
ingarmerki, tilvísunarmerki, tví
punkta, kommur, semikommur
o.s.frv. í stað bókstafa og orða
Bókin sem er gefin út hjá
Bonniers og kostar tæpar 25
krónur sænskar, er sérstaklega
vel til fallin til tækifærisgjafa
að sögn höfundarins. Menn eiga
sjálfir að fylla út þann texta
sem talinn er hæfa. Titill bók-
arinnar er „Prix Nobel“.
Rauterswald sem er 31 árs
að aldri er mikils mc(;inn lista
maður í Svíþjóð og prófessor
við listaakademíuna í Stokk-
hólmi. Hann er óhræddur við
að reyna nýjar leiðir. Hann
var í hópi þeirra fyrstu sem
settu „happening“ þ.e. eins kon
ar óundirbúið leikrit á svið í
Svíþjóð. í dag auglýsti hann
að ritsafn hans væri komið út
en aðeins í einu eintaki og
það eintak væri ekki bók held
ur stór trékubbur sem líktist
bók og er eintakið tii sýnis í
bókaverzlun í Stokkhólmi. Fyr
ir nokkrum árum setti prófess
orinn eftirfarandi auglýsingu
í bandaríska stórblaðið „New
York Herald Tribune:“ Carl
Frederik Rauterswald:
Lokað vegna sumarleyfa 1963
—1972.
samningaumleitunum og naut þar
góðrar aðstoðar rússneska verzl-
unarfulltrúans, konsúlsins og f leiri
góðra manna. T.S. Baltika heitir
skipið sem verður fyrir valinu
og það hefur ekki flutt ótignari
persónu en sjálfan Krústjov i tvær
eða þrjár ferðir. Það var að sjálf
sögðu meðan Krúsi var tigin per
sóna. í stórum dráttum er ferðaá-
ætlunin svona: Reykjavík, Alsír,
Egyptaland, Líbanon, Tyrkland,
Rússland, Búigaría, Grikkland, og
Ítalía.
Heimsóttir verða sögufrægir
staðir í þessum löndum og valdir
viðkomustaðir sem veitt geta ferða
fólkinu sem mesta ánægju. Þetta
er ekki eingöngu skemmtiferð hjá
Karlakórnum heldur einnig tón-
leikaferð og þá líklega ein sú stór-
fenglegasta sem nokkru sinni hef-
ur verið farin af íslenzkum lista-
mönnum. Ekki er fullgengið frá
samningum um söngstaði, nema
hvað þeir munu örugglega koma.
fram í Rússlandi.
Ferðaskrifstofan Landsýn er nú
sem óðast að undirbúa ferðir fyrir
Framhald á 14. síðn.
Nýtt frumvarp um verðlagningu landbúnaöarafurda:
Ákvæðisvinna og aflahlujfur
hafa nú ekki áhrif á verðið