Alþýðublaðið - 16.04.1966, Síða 9
til þess að kveðja það — lá við að það yrði hans síðasta jerð í öðrum skilningi.
MERKJASALA UÓSMÆÐRA
FÉLAGS REYKJAVÍKUR
fiskveiðar brugðust. Þá kom fólk
langt að til þess að fá fugla, og
í slíkum neyðartUfellum voru
stórar klettasyllur oft hreinsaðar.
Þær eru auðar enn þann dag í
dag.
— Það er mjög einkennilegt,
og við getum enga skýringu fund-
ið á því, segir Johan Hentze. —
Voiði menn alla fuglana á einni
syllu, koma þar aldrei framar
fuglar. Stundum sitja fuglarnir
svo þétt, að þeir geta sig varla
hrært, en enginn þeirra ber það
við að fara yfir hina ósýnilegu
línu á þann stað, sem dauðinn
eitt sinn lét greipar sópa. . . .
Það útheimtir bæði kraft og ná-
kpæmni að veiða fuglinn á flugi.
Ljósmæðrafélag Reykjavikur
var stofnað 19. júní 1942 af starf-
andi Ijósmæðrum í bænum. Var
frú Rakel P. Þorleifsson fyrsti
formaður félagsins. Heiðursfé-
lagi var Þuríður Bórðardóttir,
formaður Ljósmæðrafélags ís-
lands.
í lögum félagsins kveður svo
á, að ljósmæður eigi að efla sam-
vinnu sín á milli og verða sem
hæfastar til að gegna köllun sinni,
fæðingarhjálp, hjúkrun og með-
ferð ungbarna svo og að kynna
mæðrum hver nauðsyn er á réttu
mataræði barna og þá fyrst og
fremst hve mikilvæg móðurmjólk-
in er barninu.
Ljósmæðrum er skylt að greiða
veg cinstæðinga og munaðarleys-
ingja, sem til þeirra leita.
í 11. grein stendur: Félagskonur
skulu temja sér prútt umtal um
stéttarsystur sínar hvort sem þær
eru innan eða utan félags.
Á öðrum fundi félagsins var
sarnin áskorun til bæjarstjórnar
að stofna mæðraheimili fyrir ein-
stæðar mæður, áður en þær
fæddu og einnig eftir fæðingu,
þar sem þær gætu dvalið með
börnin.
Okkur, sem stundum fæðingar-
hjálp eru kunnastar aðstæður
þcssara mæðra og manni rennur
til rifja að þurfa að horfa upp
á þvílíkt miskunnarleysi, sem ó-
gift kona á við að búa fyrir það
eitt að hún er móðir. Öll höfum
við konur og karlar látið huggast
við móðurbarm. Það er því synd-
samleg blekking gegn því góða,
sem með manninum býr, að haf-
ast ekki að til hjálpar fyrir móður
með saklaust ómólga barn, sem
er gestur á hinum hrjóstruga
vegi tilverunnar, þar sem það á
alla sína gæfu, sem er einnig
gæfa þjóðfélagsins undir því kom-
in að vel takist til um heilbrigði
barnsins og uppeldi. Þannig hljóð-
aði áskorun til bæjarstjórnar fyr-
ir 23 árum frá báðum Ljósmæðra-
félögunum. Meðmælaskjal f.vlgdi
með undirskriftum góðra manna:
Vilhjálms Þ. Gíslasonar, Vil-
mundar Jónssonar landlæknis,
Magnúsar Péturssonar læknis, sr.
Sigurbjörns Einarssonar, dr. Sím-
onar Jóh. Ágústssonar, sr. Bjarna
Jónssonar.
Mæðraheimili var stofnað 1944,
en því miður var það lagt niður
nokki'um árum seinna og var það
mikill skaði fyrir þá einstæðu og
munaðarlausu.
Árið 1949 fór Ljósmæðrafélag
Reykjavíkur þess á leit að bæjar-
sjóður greiddi hjálparstúlkum,
sem aðstoða sængurkonur og
aðra sjúklinga. Getum við þakk-
að borgaryfirvöldunum framúr-
skarandi stuðning og fjárframlög
við Heimilishjálpina, sem hefur
aukizt með ári hverju.
Til fróðleiks læt ég f.vlgja
skýrslu frá henni.
Ljósmæðrafélagið hefur óvallt
revnt að styrkja góð málefni m.
a. Hallveigarstaði, Barnaspitalann
og hvíldarheimili ljósmæðra hef-
ur félagið rekið í átta ár og geta
allar ljósmæður utan félags sem
innan sótt um veru þar, sem skipt-
ist nlður í 14 daga dvöl gegn mjög
vægu gjaldi. Hafa margar sjúkar
ljósmæður sótt þangað hvíld og
aukna krafta.
Til fjáröflunar hefur félagið
haft bazar og merkjasölu einu
sinni á ári og e’r þar mikið og
Framhalð á 15. siðu
Kassagerð Reykjavíkur H.F.
TILKYNNING TIL
VIÐSKIPTAVINA
Verksmiðja vor verður lokuð vegna sumar-
leyfa frá og með laugardeginum 25. júní
1966, til mánudagsins 25. júlí 1966.
Pantanir sem afgreiðast eiga fyrir sumar-
leyfi, verða að hafa borizt verksmiðjunni
eigi síðar en 15. maí 1966.
Kassagerð Reykjavíkur H.F.
RÁÐSMANN
vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Umsóknarfrestur
til 5. maí næstkomandi.
Launakjör: 19. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar
Áske's Einarssonar bæjarstjóra Hxisavík.
Stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur.
t
RÁÐSKONU
vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Umsóknarfrestur til 5.
maí næstkomandi.
Launakjör: 13. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar
Áskels Einarssonar bæjarstjóra Húsavik.
Stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur.
BÓKARASTAÐA
Opinber stofnun óskar eftir að ráða bókara nú þegar.
. Nokkur vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt
kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir með
upp!/.dr.gum um aldur, menntun og fyrri störf send-
ist afgreiðslu blaðsins fyrir 20. april n.k. merktar
„Frarnlíð—1966“.
í
Keflavík
Þeir sem ætla >að fá á leigu garðland í
sumar geri pantanir sínar á þeim sem fyrst,
til Guðleifs Sigurjónssonar. Fyrri leigjendur
hafa forgangsrétt á stykkjum sínum til 1.
maí.
Leiga greiðist við pöntun.
Fyrirhugað er að starfrækja skólagarða í
Keflavík á sumri komanda, fyrir börn á
aldrinum 9 — 13 ár>a, fáist næg þátttaka.
Umsóknir um þátttöku og upplýsingar gefn-
ar daglega til 1. maí í síma 1552.
Garðyrkjusfcjóri.
Áuglýsingasíminn er 14906
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. apríl 1966 $