Alþýðublaðið - 16.04.1966, Síða 11
fcsRitstgóri Örn Eidsson
axs
,Hvefjum til gagns?'
Alfreð Þorsteinsson - alias alf.
birtir þriðja þátt sinn í ófrægingar
herferð sinni gegn KRR og stjórn
þess í Tímanum, hinn 13. þm.
jafnframt skal íitið á þennan þátt
sem svar við hóflegri leiðréttingu
undirritaðs á fyrri firrum Alfs í
skrifum sínum í þessu sambandi,
og birtist í Alþbl. 7. s.m.
Ekki verður sagt, að hinum bless
aða Alf fari aftur í skrifum sínum
í umgengnj sinni við sannleik
ann, um það vottar síðasti „sagna-
þátturinn” ljóslega. Yfirleitt hefir
sannleikurinn svei mér fengið að
jkenna á því hjá Alf, í þessum skrif
um hans um KRR, en varla tuskar
hann sannleikann svo til, sem'raun
ber vitni um, eingöngu í samskipt
unum við það.
Alf hefur mál sitt á því, að und
irritaður hafi tekið þann kostinn
að halda áfram að auglýsa hið ein-
stæða framlag KRR til „Herferðar
innar gegn hungri”. Auðvitað varð
að minnast á þetta mál, sem er
grundvöliurinn að hinni „miklu
krossferð” Alf gegn KRR. En aðra
afgreiðslu af ráðsins hálfu, en raun
varð á, var ekki um að ræða eins
og á stóð, vegna fyrri samþykkta,
sem bundu ráð fullt.. Þetta vissi
Alf mæta vel. En samt tönnlast
hann sí og æ á þessu máli og lætur
líta svo út, sem ;ú stjórn er nú
er í KRR eigi alla sök á því að
ckkert varð úr þessum títtrædda
fjáröflunarleik. Væri Alf nýflutt-
ur í bæinn væri þetta skiljanlegt,
en þar sem hann hefur alið allan
sinn aldur hér um slóðir, og m.a.
verið starfandi í knattspyrnuhreyf
ingunni um árabil, bæði sem leik-
maður og starfsmaður félags síns
og nú formaður knattspyrnudeild
ar þess, er það ljóst að um þekk-
ingarskort er hér ekki að ræða
heldur annaðhvort meðfæddan eða
R.víkurmót í bad-
minton um helgina
Meistaramót Reykjavíkur í bad-
minton hefst kl. 3 í dag í Valshús
inu. Keppendur eru um 40 frá
TBR. og KR þ.á.m. allir beztu bad
mintonleikarar landsins. Úrslita-
leikirnir verða á sama stað á morg
un, en þá hefst keppnin kl. 2.
íslandsmóiið
/ handbolfa
íslandsmótið í handknattleik
heldur áfram að Hálogalandi um
helgina. t kvöld kl. 8,15 leika Vík-
ingur — Ármann og Breiðablik —
Fram í I. deild kvenna, FH —
Þróttur í 2. flokki karla og ÍR —
Víkingur í 2. deild.
Annað kvöld leika í I. deild Val
ur — FH og Haukar — Ármann.
áunninn naglaskap og löngun til
að eiga í deilum, sem vissulega
eru ekki í þessu tilviki að minnsta
kosti neinum til gagns. Alf ætti ;
líka, öðrum fremur að minnast af-
stöðu nýafstaðins aðalfundar KRR,
til þessa máls og annarra slíkra,
þar sem samþykkt var með öllum
atkvæðum gegn aðeins einu endur
nýjum á fyrri stefnu, í þessu sam
bandi.
Eftir öllum gangi málsins, að
því er tekur til afskipta Alfs og
stuðning hans við það, virðist ekk
ert hafa komið fram af hans hálfu
nema skætingsgreinar um KRR,
þar sem öllu er snúið öfugt. Grein
ar gegnsýrðar af þessum sérkenni
lega rembingi, er of oft einkennir
skrif hans. Alf gengur sýnilega1
upp í þeirri mikilmennsku, að orð ,
sín séu sem lög og fyrirmæli, og j
því allt nauðaómerkilegt, sem aðr I
ir hafa til málanna að leggja.
En enginn bætir tommu við hæð
sína með slíku framferði hvorki
andlega né líkamlega. Siklum er
hollt að minna t þess sem sé vit—’
maður séra Hallgrímur Pétursson
sagði: Lítillátur, ljúfur og kátur,
leik þér ei úr máta. Varast spjátur
hæðni, hlátur heimskir menn sig
státa.
Annars er ég á þeirri skoðun nú
orðið, að Alf sé meira en sama
um hag og heill hungraðara íbúa
ausíurálfu og hafi alltaf verið, hitt
sé honum fvrst og fremst hugleik
ið að stilla hungur íþróttasíðu
Tímans, og honum sé, hvað sem
verða má til þess, jafn kærkomið.
Þá talar Alf um það, að KRR
menn skorti hæfileika en ekki dóm
greind, og ber Ólaf Jónsson gjald
sinni sagði Alf að Ólafur hefði
sagt, að KRR menn skorti dóm-
greind, en hefðu þá væntanlega
hæfileika. Hvað á svona bull að
kera KRR fyrir því. í fyrri grein
þýða hjá manni, sem vill láta taka
sig alvarlega, sem andlegan íeið-
togq og forvstumann íbrót.ta. Þnð
er ekki um annað að ræða, en Alf
skorti hvorttveggja, bæði dóm-
greind og hæfileika að minnsta
kosti til hinna þarfari verka.
Þá ræðir Alf enn einu sinni um
fundarsetuna, sem honum er svo
hugleiktö og segir að seta á 800
fundum þurfi ekki að vitna um mik
störf. Þetta getur verið rétt, eins
og t.d. að 1000 laðagreinar um
málefni, svo sem íþróttir, þurfa
ekki að hafa gert þeim neitt gagn,
frekar ógagn, hafi einhver and-
legur umskiptingur haldið um
pennan. Hinsvegar leikur enginn
vafi á því, að seta 800 funda myndi
í slíku tilfelli þjóna íþróttunum
betur en 1000 blaðagreinar.
Að svo mæltu læt ég útrætt um
þetta mál.
Slíkt pex sem þetta er svo sem
ekki frjótt né uppbyggilegt, hins-
vegar má um það deila, hvort
hvaða subbu eða soðfanti sem er,
eigi mótmælalaust að haldast það
Framhald á 15. síðu.
Árangur íslenzka landsliðsins
í körfuknattleik á Norðurlanda-
mótinu um páskana var með á
gætum. Að ná 3. sæti væri okk
ur eigi mögulegt í nokkurri ann
arri flokkaíþrótt. Umsagnir
danskra blaða svo og finnskra
um frammistöðu íslands, eru
mjög jákvæðar. Eru íslending
ar taldir annað bezta lið keppn
innar hvað tækni og leikað-
ferðir snertir. Kom þetta vel
fram í leik íslands og Svíþjóð
ar. en þar réði eingöngu hæðar
mismunur úrslitum. Tveir risa
vaxnir leikmenn Svía skoruðu
64 stig af 85 sem skoruð voru.
Framkvæmd keppninnar og
allur aðbúnaður hjá Dönum var
eins og bezt er á kosið. Bjuggu
keppendur í nýrri íþróttahöll
í Herlev sem ber byggingarlist
Dana gott vitni. Kostnaður við
bygginguna var 5 millj. danskar
krónur. Er þar ekki verið að sóa
fjármununum í harðviðarklæðn
ingu á stóra veggi slegna kop
arnöglum, eins og hér, heldur
kappkostað að hafa allt fullkom
ið og stílhreint, en án nokkurs
íburðar. Þess ber og að gæta
að í þessari byggingu og inni-
falið í þessu kostnaðarverði,
eru tveir stórir veitingasalir og
8 herbergi ætluð til skrifstofu
halds.
Svo við snúum okkur aftur
að frammistöðu ísl. liðsins, þá
ber fyrst að nefna Kolbein Páls
son, sem átti glæsilega leiki, og
skoraði alls 50 stig í 3 leikjum.
Eigi verður þáttur Þorsteins
Hallgrímss. minni hann skor
aði 52 stig í fjórum leikjum.
Þorsteinn var þó ekki jafn góð-
ur nú sem í Helsinki 1964, en
þá skoraði hann 77 stig í 3 leikj
um. Sá sem mest kom á óvart,
var Einar Matthíasson. Hann
skoraði 39 stig og lék oft glæsi
Iega.
Danir halda því fram, að ísl. ; I
liðið hafi lært mikið á Banda- 1
ríkjaförinni. Hafa þeir nú í ;
hyggju að senda danska lands- !
liðið í svipaða ferð. Danir hafa ;
að mínu áliti tekið mestum 1
framförum frá síðasta Polar j ;
Cup. Hittnin hefgur lagast og S
knattmeðferð einnig. 3t'
Eins og áður er komið fram, !
var ákveðið, að næsta Polar j
Cup-keppni verði á íslandi 1968 j
i >■
< 1
Bíður því ísl. körfuknattleiks ; r
manna erfitt verkefni, því geysi [-
mikil vinna liggur í undirbún j
ingi slíkrar keppni. 4, f
a 1
Heppnist Polar Cupurinn vel j ?
á íslandi 1968, verður það á- 1
ir íslenzkan körfuknattleik og ;
skapar þessari glæsilegu íþrótta !
grein ugglaust fjölmarga áhang j
endur — G. M. * 1
HWWiiWWWWWMWWWMiWiWWW fAUWWWVAWWViWiWWWWWWWi
Islandsmótið í körfu■
knattleik um helgina
íslandsmótið í Körfuknattleik
heldur áfram um helgina. í kvöld
kl. 8 verður leikið í Valshúsinu
og þá fer fram úrslitakeppni í 2.
flokki karla. Fyrst leika Skalla-
grímur og sigurvegari Reykjavíkur
riðilsins, en strax á eftir Skarp-
héðinn og Akureyri. Þriðji leikur
kvöldsins er í 2. deild milli Skalla
gríms og Snæfells. Loks leika í
2. flokki Skallagrímur og Skarp
héðinn.
Annaðkvöld kl. 8,15 heldur
keppnin áfram í Valshúsinu. Fyrsti
leikur kvöldsins er í 2. flokki
kvenna, þá leika Snæfell, Stykkis
hólmur og KR til úrslita. Að þeim
leik loknum heldur keppnin áfram
í 2. flokki karla, fyrst leika sigur-
vegarar Reykjavíkurriðils og loks
Skallagrímur og Akureyri.
Á mánudagskvöld kl. 8,15 fara
fram tveir leikir í I. deild að Há-
logalandi, fyrst leika KR og KFR
og síðan Ármann og ÍR.
Skiðamót menntai
skólans háð «
í Hamragili :
[öí
Skíðamót Menntaskólans í Reykja
vik verður haldið við skiðaskálft:
ÍR í Hamragili á sunnudag l?«í
apríl kl. 3 síðdegis ,eða strax eftií -
Steinþórsmótið. Sí.
Keppt verður í svigi karla, nafnft
kall verður kl. 2.
Ferðir verða frá Menntaskólan-
um kl. 10 f.h. og kl. 1 e.h.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. apríl 1966