Alþýðublaðið - 20.04.1966, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 20.04.1966, Blaðsíða 11
fc=RitsÝiórTÖm Eidsson ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. apríl 1966 R.víkurmeistarar i badminton Reykjavíkurmót í badminton fór fram um síð -stu helgi. Úrslit urffu þau, aff Jón Árnason, TBR sigraffi í einliffsleik karla, vann Óskar Guffmunds jon, KR, 6—15, 15—12 og 15 — 11. Myndin er af Jóni t.h. og Óskari. Úrslit í öffrum flokkum: Einliffa 'eikur kvenna, Lovísa Sigurffardóttir, TBR, tvíliffa- leikur karla, Jón Árnason, TBR og Óskar Guðmunds on, KR, tvíliðaleikur kvenna, Hulda Guffmunds- dóttir, og Lovísa Sigurffardóttir, TBR og tvennpar'-.eppni, Lcvisa Sigurffardóttir og Jón Árnasón, TBR. KR íslandsmeistari í körfuknattleik ★ KR—KFR 108:85. Þrautleiðinlegur leikur sem ekkert átti skylt við körfuknatt- leik. Upphófst þegar í byrjun mik ill darraðardans sem sífellt jókst er dró á leikinn. Pústrur og hrind- ingar voru á hávegum hafðar og virtust leikmenn oft hugsa meira um að hrinda mótherja heldur en ieika knettinum. Eini maðurinn í fyrri hálfleik sem lék körfu- knattleik var Guttormur í KR. I Lék hann afbragðsvel og skoraði 19 stig. Var það reyndar munur l sá er var á liðunum í hálfleik en þá stóðu leikar 54:35 KR í hag. í síðari hálfleik lék hvorugt lið- anna vörn. Beittu KR-ingar þá, sem í fyrri hálfleik, svæðispressu. Var hún illa framkvæmd. Enda fóru svo leikar í síðari hálfleik að KR vann með aðeins 4 stigum, 54:50. Urðu lokatölur því 108:85 QTAnAK l í OI r\tJS-\l\ iDFiin m 1 M + £*= 3 iLmít*r KR ÍR Á. KFR ÍKF. 7 7 0 14 604:402 7 5 2 10 507:423 8 5 3 10 526:550 7162 543:616 7 0 7 0 352:533 5 stigahæstu leikmenn: Einar Bollason, KR 188 st. Einar Matthíass. KFR 157 st. Birgir Birgis, Á. 151 st. Þórir Magnússon, KFR 150 st. Hólmst. Sig. ÍR 7 130 st. j sem er einhver mesti f jöldi stiga skoraður í einum leik hér á landi. KR: Tóku aldrei almennilega á. Var leikur þeirra án „íslands- meistarayfirbragðs.” ! Stigahæstir: Kristinn 24, Gutt- ormur 21, Kolbeinn 21. Beztur: Guttormur. KFR : Einleikur einstakra leik- manna liðsins eyðileggur allt spil. Keyrði um þverbak í seinni hálf- leik, því að Ólafur Thorlacius varð að yfirgefa leikvöllinn í lok fyrri hálfleiks með 5 villur. Er hann sá sem helzt hefur reynt að spila í liðinu. Skárstur var Einar Matt. með 26 stig. Gætti hann Einars Bolla- sonar og var fullharðhentur á stundum. Þórir skoraði 31 stig en það er ekki nóg, ef engin vörn |er leikin, en beðið eftir boltan- Mikill íþróttaáhugi að Núpi í Dýrafirði um undir körfu andstæðingsins. Dómarar: Hólmsteinn Sig. og Tómas Zoéga. ★ ÍR - Ármann 69:51. Mjög jafn og skemmtilegur leikur framan af. Skiptust liðin á um forystuna í fyrri hálfleik og var jafnt í hléi 26:26. ÍR-ingar voru heldur ákveðnari í byrjun síðari hálfleiks og komust í 38:32. Helzt þessi munur þar til á 12. | mín. er Ármenningar brotnuðu al- veg. Lagfærðu ÍR-ingar þá stöð- una úr 44:38 í 52:38. Undir lokin juku þeir enn á muninn og lauk leiknum 69:51 fyrir ÍR. ÍR: Léku nú skipulagt og af ákveðni. Langbeztur var Agnar, með 33 stig. Agnar tók einnig aragrúa af fráköstum og átti nú sinn bezta leik á vetrinum. Einn- ig átti Hólmsteinn ágætan leik með 18 stig. Ármann : Beztur var Birgir með 20 stig. Liðið lék nú langt undir getu allan seinni hálfleikinn. — Einnig veikti það nokkuð að Hall- grímur lék ekki með. Dómarar: Einar Oddsson og Finnur Finnss. Á laugardags og sunnudags- Framhald á 15. síffu. Laugardaginn 26. marz var háð innanhússmót í frjálsum íþróttum að Núpi í Dýrafirði. Þátttaka var góð og árangur yfirleitt ágætur, Sérstaka athygli vakti drengjamet Affalbjörns Jóakimssonar, Reyni, í langstökki án atrennu, en hann stökk 3,17 m. Þrístökk Aðalbjörns Jóakimssonar, Reyni, 9,19 m. er nýtt skólamet. Helgi Hólm, í- þróttakennari Núpsskóla keppti með og náði einnig góðum árangri, sínum bézta í hástökki með at- rennu, stökk 1,81 m. Mikill í- þróttaáhugi er að Núpi. Hér eru helztu úrslit mótsins: Langstökk án atrennu: Karlaflokkur: Helgi Hólm, ÍR 2,94 m. Drengjaflokkur: Aðalbj. Jóakimss. Reyni 3,17 drengjamet. Jón Lúðvík Guðm. Þrótti 2,85 Sveinaflokkur: Guðm. Jör. Þrótti 2,75 Björn Jónsson, ÍFB 2,56 Helgi S. Sigurðsson, Gr. 2,54 Guðm. Herm. Stefni 2,52 Konur: Margrét Friðriksd. Reyni 2,19 Sigurbj. Ottesen, HSK 2,11 Ólafía Sigurjónsd. Höfr. 2,10 Elísabet Kristjánsd. UMFV 2,07 Hástökk með atrennu: Karlaflokkur: Helgi Hólm, ÍR 1,81 Drengjaflokkur: Vilb. Guðm. Gretti 1,45 Sveinaflokkur: Hösk. Hösk. Höfrungi 1,55 Böðvar Gíslason^ Gretti 1,50 Kjartan Rafnsson, Gretti 1,50 Guffm. Herm. Stefni 1,50 Rafn Ragnarsson, Árm. 1,50 Björn Jónsson, ÍFB 1,50 Konur: Elísabet Kristjánsd. UMFV 1,27 Ólafía Sigurjónsd. Höfr. 1,27 Anna Jóhannesd. Núpi 1,17 Ásdís Sæmundsd. Herði 1,17 Hafdís Garðarsd. Núpi 1,17 Þrístökk án atrennu: Karlaflokkur: Helgi Hólm, ÍR 9,031 Drengjaflokkur: Aðalbjörn Jóakimss. Reyni 9,18 Jón L. Guðm. Þrótti 8,33 Vilberg Guðm. Gretti 8,18 Sveinaflokkur: Kjartan Rafnsson, Gr. 8,15 Böðvar Gíslason, Gretti 8,12' Helgi S. Sig. Gretti 7,78 Rafn Ragn. Ármanni 7,63 Hefur áhuga á félagsmerkjum Iþróttasíðunni barst nýlega bréf frá vestur-þýzkum áhuga manni um félagsmerki íslenzk knattspyrnufélaga. Hann heitir Peter Zacher, 893, Schwabmúnctv en, Ostendstrasse 7, V.-ÞýzkalandJ og langar að kynnast íslending með sama áhugamál. H 27 keppendur i 51. viðavangshlaupi IR Þátttökutilkynningar hafa bor- izt í víðavangshlaupi ÍR sem mun fara fram að venju á Sumardag- inn fyrsta. Héraðssambandið Skarphéðinn skartar með flesta þátttakendur, eða 16 alls. Þeirra á meðal eru til dæmis Jón Gunn- laugsson, Hafsteinn Sveinsson og Jón Stefánsson. KR er með 3 kepperidur, m. a. Agnar Leví og Halldór Guðbjörnsson. ÍR sendir 2, Þórarin Arnórsson og Guðmund Guðjónsson. íþróttabandalag Kefla víkur sendir nokkra, eða líklega 6 keppendur. Kl. 2 leggja keppendur af stað úr norðvesturhorni litlu tjarnar- innar og hlaupa með henni að Hljómskálanum, og þaðan frá yfif(, Hringbraut, skáhallt yfir mýrin%, neðan við Háskólann að Njarðæv götu og eftir henni til baka inn i; Hljómskálagarðinn aftur, siðan eftir Fríkirkjuvegi þar sem hlaupi,, ið verður látið enda fyrir neðan , Miðbæjarbarnaskólann. Verðlaun verða afhent upp A;, I íþróttavelli að hlaupi loknu, e%;! þau eru 1., 2. og 3. verðlaun. — Bikarar eru veittir fyrir fyrstty,, þriðju og fimm manna sveitina, eru það farandbikarar sem þurfa að vinnast þrisvar í röð eða all» fimm sinnum. Einnig er keppt uttrj bikar í 10 manna sveit og vinnsí hann til eignar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.