Alþýðublaðið - 29.06.1966, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 29.06.1966, Blaðsíða 7
ÍWWWWMWWWMtWWWWW%WWWWW»iMMiWWWMWWWWWWt%tMWW.WWMWi*WiMMmMWMWWWMMWmMimWMWW> Skógurinn og landið Tímaritið Heima er bezt birti fyrir skömmu eftirfarandi forystugrein eftir Steindór Steindórsson, ritstjóra blaðsins. Alþýðublaðið birtir greinina hér í heild: Á þessu vori heimsótti ís- land góður gestur frá Noregi, Thoralf Austin deildarstjóri úr landbúnaðarráðuneytinu norska, og fer hann með skóg ræktarmál landsins. Austin flutti erindi bæði í Reykjavík og á Akureyri og ræddi við blaðamenn um skógarmálefni Noregs og meðferð þeirra. Færði hann oss margvísleg merkileg tíðindi , því að margt megum vér læra af frændum vorum þar í þessum efnum. Hann skýrði frá því, að skóg rækt hefði hafizt í Noregi fyrir um 100 árum. En Þá voru víð lend héröð skóglaus að kalla mátti. Við marga erfiðleika var að etja, og margt þurfti að læra áður en hin réttu tök væru fundin, og fjarri fór, að nokkur hrifning væri meðal landsmanna yfir þessari nýjung. Eignarskipting landsins var mjög óhagstæð, og tregðan við að hverfa frá eldri búskapar háttum var mikil, og loks var vantrúin á, að skógræktin mætti takast, og verða arðvæn leg atvinnugrein. En á öllu þessu hefur verið sigrast. Sam- kvæmt nýjustu áætlunum um skógrækt Norðmanna, er áætl að að planta í 16,200 hektara árlega, og að fullgera skóg- græðsluna í landinu á 25 ár um. Skógræktin og skógariðnaður inn veitir nú Norðmönnum úm 20% af gjaldeyristekjum þjóð arinnar og fer vaxandi. í land inu hefur verið margt smábýla þar sem búskaparskilyrði hafa verið örðug vegna landþrengsla og harðbýlis. Þessi býli hafa farið í eyði þúsundum saman,: þar sem ekki hefur verið unnt ||j að koma þar við vélvæðingu eða reka lífvænlegan búskap. En nú er skógræktin komin til JJ| sögunnar. Fjöldi bænda ræktar ' ' ‘ ' skóg á jörðum sínum með stuðn ingi ríkisins. Skógræktin veitir miklu f.jármagni í vinnulaunum inn í sveitirnar og vonir standa nú til að með aukinni skóg rækt megi stöðva fólksflóttann úr sveitunum að verulegu levti, skana landbændum baett lífs- kjör ger arðbær víðáttumikil landsvæði, sem nú eru til litilla eða engra nytja. Aukin reynsla og þekking hefur rutt flestum stórerfiðleikum brott, og áhugi almennings hefur stóraukizt. Margt fleira sagði Austin, en hér skal aðeins dx-epið á tvennt Það tók Norðmenn langan tíma að þreifa sig áfram, unz þeir fundu réttar trjátegundir og kvæmi fvrir hvert hérað. Víða þurfti að leita fanga, innan- lands og utan, og þeir urðu .fyr ir mörgum skakkaföllum, með an á þeirri leit stóð. Þá hafa þeir lagt kapp á að breyta verð litlum birkiskógi í arðbæran barrskóg. En birkiskógurinn veitir í fiestu tilliti betri skil yrði skógrækt en bersvæði. Saga og reynsla Norðmanna og viðhorf þeirra í þessum efn um er lærdómsrík fyrir oss. Undir ræðu Austins fannst mér hvað eftir annað ég hlýða á vora eigin sögu. Tregðan, van trúin, skilningsleysið og and staðan gegn því að hefja skóg rækt í stórum stíl var hin sama. Áfellin, sem skógræktin hafði orðið fyrir vegna þess, að reynsluna skorti, voru mörg lík því að vér megum minnast þess að víða er harðbýlt í Noregi, ekki sízt norðantil, og sumrin jafnvel styttri en hér og vetr arríki mikið. Með þrotlausri leit hafa Norð menn nú aflað sér þeirrar reynslu, að unnt er að ganga beint til verks. Skógræktin ís lenzka hefur margt af þeim lært og farið líkt að í mörgu Hér hefur verið leitað áf kappi og skógræktarmenn hafa þreif að sig áfram og sótzt betur en áhorfðist í fyrstu, svo að þrátt f.vrir áföll og vonbrigði, hef- ur skógrækt íslendinga þokað áleiðis snurðuminna en mátt hefði vænta. Og nýreist til raunastöð skógraaktarinnar, sem er gjöf Norðmanna, gefur oss vonir um að nú sækist hrað ar en fyrr, og unnt verði að sigla framhjá fleiri skerjum en áður. En þrátt fyrir þann árangur, sem náðst hefur, og þá þekk ingu, sem vér nú höfum á mögu leikum skógræktar, heyrum vér því enn haldið fram, að hún verði aldrei framkvæmd til gagns, og þótt skógurinn gæti vaxið, þá væri samt ekki eftir nokkru að sækjast, og ef hér yxi upp barr^kógur yrði að lion um cvo mikill fegurðarspillir, að það eitt mælti á móti honum. Frámhald á 10. síðu WWWWWWWWWWmWVtMWWMWMMMtMWtmMWMMWWMiWHMWMWMWWWMMWIMWW WHWWWtWWWWVHWWiWWMUWVVWV Félagsmálaáhugi hennar dofnaji árin færðpsjt dag er þessi Minning: Svanfríður Albertsdóttir FRÚ SVANFRÍÐUR ALBERTS- DÓTTIR, ísafirði, andaðist 20. þ. m. og verður jarðsungin í dag frá ísafjarðarkirkju. Hún var fædd á ísafirði þann 26. október árið 1895, dóttir hjónanna Messíönu Sæmundsdóttur og Alberts Brynj- ólfssonar, skipstjóra. Var hún elzt af ellefu systkinum, og eru þrjú þeirra á lífi. Var hún í föðurhúsum til 12 ára aldurs, en fór eftir það til hjónanna Kristínar og Jóns Laxdals tónskálds, sem þá var verzlunarstjóri á ísafirði við Hæstakaupstaðarverzlun og at- hafnasamur í félagslífi bæjarbúa. Þann 12. september árið 1912 giftist Svanfríður Halldóri Frið- geiri Sigurðssyni skipstjóra, en hann var fæddur í Arnardal 26. janúar árið 1880. Hafði hann stundað sjó frá unga aldri, og var framsækinn og farsæll skipstjóri, með afbrigðum vinsæll meðal starfsfélaga' sinna, og í hvívetna sórni sinnar stéttar. Áttu þau hjón einkar vel skap saman og voru óvenjulega hamingjusöm í blíðu og stríðu. Halldór andaðist þann 17. nóvember árið 1960. — Þau hjónin eignuðust 13 börn, og eru 9 þeirra á lífi. Einnig ólu þau upp dótturson sinn, sem missti foreldra sína, er hann var í bernsku. Eru niðjar þeirra Svan- fríðar og Halldórs nú orðnir 63 talsins. Það ræður að líkum, að mikið þurfti fyrir því að hafa að koma upp hinum stóra barnahópi, og oft hafa áhyggjur húsmóðurinnar verið miklar, þegar eiginmaður- inn og synirnir voru á sjónum í vondum veðrum. Einnig kvaddi sorgin dyra á heimilinu, en alltaf var húsmóðirin jafn- æðrulaus og staðföst. Hugir henn- ar og Halldórs heitins voru alltaf samstilltir á hverju sem gekk, og létu aldrei bugast, og alltaf áttu hann og börnin öruggt athvarf á heimilinu hjá Svanfríði. Það var eins og örugg höfn, þar sem allir gátu verið óhultir fyrir brotsjóum og áföllum. Er þetta ekki það bezta, sem sjómannskonan getur boðið manni sínum og börnum? Vissulega er það svo, en Svanfríði var þetta ekki nóg. Hún fylgdist með manni sínum og sonum í starfi þeirra, skyldi hætturnar, sem oft voru því samfara, og vildi hjálpa til að skapa þeim sem mest öryggi, einn- ig á vettvangi starfsins. Hún gerðist einn af sofnendum Kvennadeildar SVFÍ á ísafirði og starfaði mikið og vel í þeinv félagsskap. Var hún síðustu árin heiðursfélagi deildarinnar. Lífsreynsla Svanfríðar mótaði einnig afstöðu hennar á fleiri, sviðum félagsmála og boðskapur Alþýðuflokksins og kvenréttinda- hreyfingarinnar var að hennar skapi. Hún var heiðursfélagi í Kvenfélagi Alþýðuflokksins á Svanfríður Albertsdóttir. ísafirði og starfaði mikið í kven- félaginu Ósk um 50 ára skeið. Síðustu ár Svanfríðar átti hún við vanheilsu að stríða, en alltaf lét hún sér mjög annt um hinn stóra afkomendahóp og fylgdist af lífi og sál með þroska hvers og eins. Mundi hún t. d. afmælis- daga allra niðja sinna, og taldi ekki eftir sér að ferðast um langa leið til þess að heimsækja þá þeirra, sem fluttir eru frá ísa- firði. heldur ekki, yfir hana — þótt og í merka kona kvödd með söknuði af öllum, sem voru svo lánsamir að þekkja hana. Minningin um Svanfríði Al- bertsdóttur lifir björt og hreiii. Birgir Finnssow}- HÚSFREYJAN, rit Kvenfélaga sambands íslands, 2. tbl. 1966 nýkomið út. Þar er birt erindi V^jLg disar Jónsdóttir, er hún flutti ,a. landsþingi Kvenfélagasambands , lands: Áhrif tækniþróunarinnarrJt. heimilin; smásaga eftir Líney(jyi Jónsóttur. Rekstrarferðin, mann eldisþáttur, sjónabók húsfreyjupn ar, heimilisþáttur, grein lypi röggvahnýtingu; þáttur er nefnjsí Frá leiðbeiningastöð húsmæðra og er þar fjallað um nýjar pönn- ur á markaðnum; þátturinn spurt og svarað og birt er ræða Hólmfríð ar Pétursdóttur, er hún fluttit í hófi Kvenfélagasambands S.-Þing eyjinga, er það var fimmtugt, grein um orlof-dvöl kvenna acl Varmalandi, smásagan Spariand. litið og grein er um Mæðrafélgg ið 30 ára. ALÞÝÐllBLAÐIÐ — 29. juní 1966 J *

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.