Alþýðublaðið - 29.06.1966, Qupperneq 8
Björn Th. Björnsson leiðsögumaður ræ 5ir við Lýð Skúlason bónda á Keldum.
Hluti þátttákenda á leið upp að Hlíðarenda.
Ingibjörg Símonnrdóttir, einn yngsti þátttakandinn í ferðinni stend
ur við Sámsheili á Hlíðarenda.
Skálinn á Keldum var skoðaður í ferðinni.
SKEMMTIFERÐ
UM SUDURLAND
Skemmtiferð Alþýðu
flokksfélags Reykjavíkur,
Kvenfélags Alþýðuflokks-
ins og Félags ungra jafn-
aðarmanna. sem farin var
á sunnudag, tókst með á-
gætum vel. Um 100 manns
tóku þátt í ferðinni. Lagt
var af stað um níuleytið
og ekið austur Hellisheiði,
Ölfus og Grímsnes, en þar
var stanzað við Kerið. Það
an var svo ekið sem leið
liggur til Skálholts og
Skálholtskirkja skoðuð.
Mikla athygli vakti stein-
glitsmynd Nínu Tryggva-
dóttur, Kristur upprisinn,
sem er fyrir altari kirkj-
unnar og fullgerð var ný-
lega.
Leiðsögumaður ferðar-
innar, Björn Th. Björns-
son listfræðingur sagði frá
merkum atburðum í sögu
Skálholts og var frásögn
hans mjög fróðleg. Einnig
sagði Björn frá örnefn-
um og merkisatburðum
tengdum stöðum, sem
fram hjá var farið eða
komið var til í ferðinni
og óhætt er að segja að
allir höfðu af frásögn hans
fróðleik og ánægju.
Framhald á 10. síð*.
.8 ALÞYÐUBLAÐIÐ — 29. júní 1966