Alþýðublaðið - 07.07.1966, Side 11
Ungtemplaramót
Framhald at 3. glðll.
mót eru haldin þriðja hvert ár í
einhverju Norðurlandanna.
Enda þótt félög ungtemplara
starfi í anda Góðtemplarareglunn
ar, er ytra form starfsemi þeirra
gjörólík. Má segja, að starfsemi fé
laganna sé einna líkust £ sniðum
og starfsemi annarra æskulýðsfé
laga. Formið er frjálst og óþving
að, þar sem höfuðáherzlan er
lögð á heilbrigt líf, og heilbrigðar
skemmtanir þar sem sú æðsta
regla gildir, að áfengi er ekki haft
um hönd. Sænski þjóðdansaflokk
urinn og norski leik- og söngflokk
urinn' sem hér eru staddir, er
dæini um breytileika þess forms
sem félagsstarfið getur tekið á
sig. Þetta unga fólk vill koma fram
öðrum til gleði og þá einkum þeim
sem dvelja á sjúkrahúsum eða
álíka stofnunum. Hafi mönnum
á stundum fundizt, að Góðtempl
arareglan legði um of upp úr boð
um og bönnum, þá er því öfugt far
ið með félög ungtemplara, sem
leggja höfuðáherzlu á að rækta
með mönnum heilbrigt viðhorf til
áfengisvandans og sanna mönnum
að án þess eru þeir betur komn
ir í samfélaginu og að án þess er
fyllilega hægt að vera. Á þing
inu kemur oft fram hljómsveit
ungtemplara frá Siglufirði, er nefn
ist Stormar, en þeir helga sig
einkum dans- og dægurlögum.
Þetta er enn dæmi um það, að dans
og viðlíka skemmtan er hvergi
nærri bannorð ungtemlara. Ung-
templarar hafa síður en svo á
sér nein einkenni sértrúarflokka
eins og mörgum ókunnugum kann
að hafa komið til hugar. En að
sjálfsögðu eru höfuðform Góð-
templarareglunnar virt, enda eru
þar náin tengsl á milli. Það er
hinsvegar ekki alltaf skilyrði að
félagi í ungtemplarafélagi sé í
stúku, enda þótt svo sé oft. Fé
lagar eru flestir á aldrinum 14
ára til fertugs.
Heildarfélagatala á Norðurlönd
um er 23,586 í um 400 félögum
Svíar eru fjölmennastir, eða 17
000, Norðmenn 5000, íslendingar
745, Finnar 364 og Danir 118. í
öðru samsvarandi félagi dönsku
eru þó 216 félagar, en bindindis
starfsemi á erfitt uppdráttar í
Danmörk. Hafa ber í huga varð
andi þessar tölur, að auk þessa
eru svo starfandi góðtempiara-
reglur í öllum þessum löndum, en
þar skiptir félagatalan hundruð
um þúsunda. Á íslandi eru um
3 þúsund í stúkunni, auk barna
í barnastúkum. Bindindissamtök
skólanna eru og þarna fyrir utan
en í Svíþjóð er mikið um það
rætt að þau gerist aðilar að Nor
ræna ungtemplarasambandinu, svo
og Alþjóðasambandi ungtemplara
Formaður alþjóðasambands
ungtemplara, Lars Spjuthð frá
Ástralíu, ætlaði að koma við hér
í gærmorgun, en flugvélin sem
hann kom með lenti þá ekki hér
Hin^vegar kom á þingið umdæm
istemplar frá Japan, svo og Tyrki
sem stundar nám i Svíþjóð á veg
um sænskra ungtemplara. Þá var
boðið sérstaklega til þingsins fyrsta
formanni Norræna ungtemplara
samband^ins. Oscar Fransen frá
Svíþjóðí í tilefni af 50 ára starf
semi samtakanna. Formaður ís-
lenzkra ungtempjara er séra Áre
líus Níelsson.
U Thant
Framhald 5. síðu.
pólitískt og eitt grundvallarlegs
eðlis. Fyrsta skilyrðið var að
kjörtfmabil hans skyldi teljast
frá þeim tíma er hann tók við
embættinu skömmu eftir dauða
Hammarskjölds og var að því
gengið. Annað skilyrðið var
Kongódeilan yrði að vera leyst
eða að minnsta kosti að þvi kom
in að leysast, þegar hann tæki
formlega við embætti. Þriðja
skilyrðið var, að leysa yrði fjár
hagcerfiðleika samtakanna.
TVeim síðarnefndu skilyrðun
um hafði ekki verið fullnægt,
þegar U Thant var formlega
skipaður framkvæmdastjóri. En
þótt engin lausn virtist fyrirsjá
anleg á Kongódeilunni, liðu að
eins nokkrir mánuðir þar til
friðargæzlustarfsemi Samein-
uðu þjóðanna bar þann árangur
að endir var bundinn á hinar
ýmsu að'-kilnaðartilraunir í
Kongó. Fjárhagsörðugleikar
Sameinuðu þióðanna eru ennbá
mjög alvarleeir, enda kostaði
friðargæzlustarfið í Koneó rúm
lega tíu milljónir dala á dag,
og þar við bætist kostnaður
vegna sams konar aðgerða sam
takanna víðar í heiminum, nú
seinast á Kýpur, en eihnig í
Kasmír, Jemen og á Gaza-svæð
Auglýsið í Aiþýðublaðinu
Auglýsingasíminn 14906
KRISIÍN ÓLAFSDÓTTIR læknir
hættir heimilislæknisstörfum hinn 1. ágúst.
Þeir samlagsmenn, sem hafa hana að heim-
ilislækni þurfa að snúa sér til afgreisðlu sam
lagsins og velja heimilislækni í hennar stað.
Hafið samlagsskírteinið meðferðis.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
ÞÓRARINN GUÐNASON læknir
hættir heimilislæknisstörfum hinn 1. ágúst.
Þeir samlagsmenn, sem hafa hann að heim-
ilislækni þurfa að snúa sér til afgreiðslu
samlagsins og velja heimilislækni í hans
stað.
Hafið samlagsskírteinið meðferðis.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
LS. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10,
j// NOREGUR.
f'f 14—16 dagar að jafnaði.
Verð frá kr. 11.500,00
til 14.300,00.
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT SÍÐAR
Forðaskrifstofa vor og norska ferðaskrifstofan FOLKE
FERIE.bjóða upp á ferð um Noreg. í Sogn, Geirang-
ursfjörð, Austurlandið, Harðangursfjörð, Norðurfjörð,
Sunnmærisalpa, Bergen, Suðurlandið, Stavanger, Jöt-
unheima, Þelamörk, Mæri, Romsdal, Þrándheim, svo
nokkuð sé nefnt. Flogið laugardaga eða þriðjudaga
KEF—OSL en OSL—KEF mánudaga og miðvikudaga.
Móguleikar á frávikum, Yfirleitt tvær skoðunarferðir
í nverri ferð (LS). Dvalizt á hótelum á milli i Oslo
allt upp í 3 daga, Allt innifalið í verði. Kynnið ykkur
ferðaáætlunina, Noregur heillar. Takmarkaður sæta-
fjóldi,
LAN DSa N t
FERÐASKRIFSTOFA
LAUGAVEG 54 - SÍMAR 22890 & 22875 -BOX 465
inu. Þrátt fyrir úrskurð Alþjóða
dómstólsins í Haag hafa komm
únistaríkin, Frakkland og fleiri
ríki neitað að standa straum af
kostnaði { sambandi við friðar
gæzlustörf samtakanna, en á
móti hafa komið frjáls framlög
ýmissa ríkja, m.a. íslands.
U Thant er fulltrúi nýs tíma
bils í sögu Sameinuðu þjóðanna
og hinna nýju aðildarríkja sam
takanna. Margir óttuðust, að
upptaka margra nýrra ríkja í
Sameinuðu þjóðirnar mundi
veikja heims'amtökin og tor
velda starf þeirra. En hin ný
frjálsu ríki hafa þvert á móti
reynt að efla vöxt og viðgang
Sameinuðu þjóðanna á alla
lund, enda telja þau samtökin
beztu trygginguna fyrir frelsi
sínu. Nýju ríkin binda meiri
vonir við Sameinuðu þjóðimar
og bera meiri virðingu fyrir
samtökunum en gömlu ríkin.
Það eru þessar skoðanir sem
U Thant var fulltrúi fyrir.
Ekki mun gleymast hvernjg
hann sannaði tilverurétt heims
samtakanna og möguleika fram
kvæmdastjóraembættisins f
Kúbúdeilunni. Einurð hans, virð
ing sú, sem hann nýtur, og sam
komulagsvilji hans áttu mikinn
þátt í lausn deilunnar. Afskipti
hans af deilunni höfðu þau áhrif
að risastórveldin þurftu ekki
að óttast að bíða álitshnekki
dýrmætur tími vannst og þar
með var friður tryggður.
HAPPDRÆTTI HASHOLA ISLANDS
Á mánudag verður dregið í 7. flokki.
2,200 vinningar að fjárhæð 6,200,000 krónur. Á morgun er seinasti endurnýjunardagurinn.
Happdrættí Háskóta Sslands
7. flokkur.
2 á 500.000 kr. .
2 - 100.000 — ..
74 - 10.000 — .
298 - 5.000 — .
1,820 - 1,500 — .
Aukavinningar:
4 á 10.000 kr. .
2.200
1.000 000 kr.
200.000 —
740.000 —
1.490.000 -
2.730.000 —
40 000 kr.
6.200-000 kr,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. júlí 1966 tl