Alþýðublaðið - 21.08.1966, Side 9

Alþýðublaðið - 21.08.1966, Side 9
Svo spiluðu þau sólma og lög eftir Inga T. mundi líklega eitthvað kosta núna. Við gengum síðan til stofu og stóð heima, þar stóðu tvö orgel til reiðu og ofan á öðru var heill hlaði af nótnabókum. — Á stóru borði voru pennar og reglustrika og nokkrar litlar harðviðarfjalir ásamt útskurðarhnífum. Málverk eftir bóndann voru á veggnum. Heimili hagleiksmannsins. — Nú spilum við fjórhent, sagði Jón og leiddi konu mína að org elinu. Skiptu þau síðan með sér verkum og spiluðu marga sálma og lög eftir Inga T. að því er ég gat heyrt og höfðu bæði gaman af, Jón bóndi dró hverja nótna bókina fram á fætur annarri og leitaði uppi ný og ný sálmalög. — Þetta er góð bók, sagði hann um eina. Hún er sænsk og er frá Hvítasunnumönnum. Ef þú girnist hana skaltu bara koma þér vel við þá. En passaðu þig á einu, eftir að þú ert búinn að klófesta bókina verðurðu að láta þá lönd og leið. Var nú hver sálmurinn á fætur öðrum spilaður og að lokum dró Jón fram nótur með tveim lögum eftir sjálfan sig og spilaði nú frú in undir en bóndi söng. Var það mikill söngur og verður ekki með orðum lýst. Hann þarf að heyrast. Þótt 86 ára væri titraði röddin ekki á háu nótunum og rauk upp á háa-c sem ekkert væri. Þegar Jón hafði lokið söngnum sagði hann okkur að fyrir mörgum ár Eramhald á 15. síðu ÖTSALA - ÚTSALA 20—50% afsláttur. Verzlunin Ása Skólavörðustíg 17 — Sími 15188 Aðvörun til íbúðareigenda í fjölbýlishúsum við HRAUNBÆ OG ROFABÆ Skrifstofa borgarverkfræðings leyfir sér að vekja athygli íbúðareigenda við fyrrnefnd- ar götur á grein úr úthlutunarskilmálum lóðanna, þar sem segir, að þeim aðilum, er fengu lóðaúthlutun við Hraunbæ og Rofa- bæ, sé skylt að slétta lóðirnar og koma þeim í rétta hæð. Eigi verður hægt að koma fyrir jarðstrengj- um og rafmagnsheimtaugum fyrr en þessu skilyrði er fullnægt. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík Skóialæknar SKÓLALÆKNA vantar við nokkra barna- og gagnfræðaskóla í Reykjavík á komandi skólaári. Nánari upplýsingar gefur forstöðukona Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur í síma 22400. Umsóknir sendist stjórn Heilsuverndarstcðv ar Reykjavíkur fyrir 15. sept. n.k. Reykjavík, 18. ágúst 1966 Stjórn lieilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Frá Vélskóla Islands VÉLSTJÓRANÁMSKEIÐ verða haldin á Akureyri og í Vestmannaeyjum ef nægileg þátttaka fæst, og myndu þau hefjast um miðjan september. Námskeiðin veita þeim er standast próf, rétt til að vera yfirvél- stjóri á fiskiskipi með allt að 500 hestafla vél, og þeim er hljóta framhaldseinkunn rétt til að setjast í 1. bekk Vélskóla íslands. Inntökuskilyrði eru 17 ára aldur og sund- kunnátta. Umsóknir sendist sem fyrst, helzt fyrir 1. september n. k. til Vélskóla íslands, Reykja vík. Gunnar Bjarnason skólastj. < 21. ágúst 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 0 Jón baukað lengi við orgelið, en ekkert gekk,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.