Alþýðublaðið - 31.08.1966, Side 1
MiVvikudagur 31. ágúst 1966 - 47. árg. 195. tbl. - VERÐ 5 KR.
Hafnarstjóri, dýra-
verndunarfélagið
y og lögregían bönn-
uðu grindadrápið
Gífurlegur mannf jöldi var saman kominn inn í Ij augarnesi um hálftíu leytiff í gærkvöldi þegar veriff
var að reyna a3 reka grindhvalavöðuna þar á land. Aðeins tókst að drepa þrjá hvali, endá lögðu yfir-
völd bann við hvaldrápinu í borgarlandinu.
ÞAU SAU VÖÐUNA FYRST
Vestur við Ægisgarð hittum
við í gærkvöld þau Geirarð
Jónsson og Karítas Bjarnadótt-
ur, en þau fundu grindhvala-
vöðuna um sjö leytið í gær-
kvöld við róðrarbaujuna.
— Fyrst rákum við hana ein,
sagði Geirarður, og svo bættist
önnur trilla við. Sú þriðja kom
ekki fyrr en á ytri höfninni.
Okkur gekk reksturinn prýði-
lega þangað til að bátunum
fjölgaði.
— Þetta er sá tími ársins,
sem hvalirnir verða nær algjör-
lega blindir, hélt Geirarður á-
fram, það vaxa einliverjir fitu-
Framhald í 14. síðu.
Reykjavík, — EG.
í Ijósaskiptunum í gærkveldi fylgdust hurxdruð, ef
ekki þúsundir Reykvíkinga með því, er reynt var að
reka grindhvalavöðu á land í smávík á Laugames
tanga. Þrír hvalir voru skornir í f jörunni, — með
smákutum, en hinir sennilega um 100 talsins sluppu
og eiga Dýraverndunarfélaginu, hafnarstjóra og lög
reglunni í Reykjavík líf að Launa.
Um átta leytið í gærkveldi* '
veittu menn því athygli, að þrjár
trillur voru á ytri höfninni í
Reykjavík og ráku á undan sér all
stóra grindhvalavöðu. Barst leik
urinn brátt inn á Rauðarárví’kina
og olli þetta nær umferðarstöðvun
á*Skúlagötunni, en hundruð manna
söfnuðust saman í Sætúni og fylgd
ust þaðan með viðureigninni.
voru myndavélar og sjónaukar
víða á lofti. Bátunum sem ráku vöð
una fjölgaði brátt og sama mátti
segja um forvitna áhorfendur, sem
flykktust að. Um níu leytið var
vaðan komin inn undir Laugar-
nestanga, og ekki þótti viðstödd
um Færeyingum íslendingum far
ast reksturinn kunnáttusam’liega
úr hendi því lengi var svo, að
hvorki igekk né rak. Vaðan var
sttmdum 100—200 metra frá landi
og stundum fjær, og létu dýrin
ófriðlega og voru stygg.
Þegar klukkan fór að halla í
tíu var vaðan undan Laugarnes
tanga. Voru þá bátarnir orðnir
fjórtán, sumt trillur, sumt hrað
skreiðir plast bátar. Áhorfendur
semiilega 1—2 þúsund og Laugar
Framhald á 13. síðu
Birgir Finnsson
ávarpaöi ísraels-
þing í geer
Vígt var nýtt þinghús í ísrael
í gærdag, og voru rúmlega fimm
þúsund gestir viðstaddir vígsluat
(höfnina. Af þessu tilefni bauð
ísraelsstjórn þingforsetum löggjaf
arþinga allra þeirra landa, sem ísr
Framhald á 14. síðu.