Alþýðublaðið - 01.10.1966, Síða 4
fEQ££HI©>
Hitatjórar: Gylfi GriSndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. — RlUtjómarfull.
trúl: Eiður GuOnason. — Símar: 14900-14903 — Auglýslngasíml: 14906.
AOsotur AlþýOuhúslO vlO Hverfisgötu, Heykjavík. — PrgotsmlOja Alþýflu
blaOslns. — Aakrlftargjald kr. 93.00 — 1 lausásölu Xf, 7,00 elntakHJ,
tltgefandl Alþýðuflokkurlmi.
Landssíminn 60 ára
ÞAÐ var skemmtileg tilviljun, að Landssími íslands
skyldi eiga 60 ára afmæli daginn áður, en sjónvarpið
byrjaði útsendingar sínar. Síminn olli á sínum tíma
áköfum deilum og mun seint fyrnast yfir hópför
bænda til Reykjavíkur til að mótmæla þessari athygl-
isverðu nýjung. Ýmsir úrtölumenn deildu einnig á
fyrirætlanir um sjónvarpsstofnun hérlendis og fundu
sjónvarpi flest til foráttu rétt eins og bændurnir
símanum forðum.
Landssími Íslands er merk þjónustustofnun, sem
gegnt hefur veigamiklu hlutverki hér á landi. Tækni-
framfarir í símamálum hafa verið örar á undanförn-
um árum og þar hefur Landssíminn fylgzt með og
fjölgar nú óðum þeim stöðum sem hafa sjálfvirkt
símasamband, og í fyrradag voru teknar í notkun
þr jár nýiar sjálfvirkar símstöðvar á Suðurlandi Áætl
un hefur verið gerð um sjálfvirkar stöðvar í öllum
kaupstöðum og kauptúnum á landinu og þess vafa-
laust ekki langt að bíða, að allir sveitabæir á landinu
geti einnig notið sjálfvirkrar símaþjónustu, þar sem
ný tækni er komin til sögunnar, sem gerir þetta mögu
legt. •
Tölfræðiskýrslur greina frá þeim staðreyndum, að
íslendingar séu meðal mestu símnotenda í heimi og
er það athyglisverð staðreynd. Ýmsir hafa kvartað
yfir því, að ástandið í símamálum þéttbýlisins mætti
gjarna vera betra, og helzt ætti það að vera bannig,
að menn gætu fengið síma umsvifalaust, án þess að
þurfa að bíða. Þessu ber vissulega að keppa að, og
þótt símstöðvatæki og sjálfvirkur búnaður stöðvanna
kosti allmikið fé, greiða þéttbýlisbúar háar fjárhæð-
ir árlega fyrir f'astagjöld og umfram símtöl og ættu
því símavfirvöld, að kappkosta góða þjónustu í þess-
um efnum.
Upphaf sjónvarps er merkur áfangi í fjarskiptamál
um, engu síður en tilkoma símans á sínum tíma.
Landssími fslands hefur á umliðnum árum annazt
veigamikla bætti í starfsemi útvarpsins, þar sem eru
verkfræðistörf og margvísleg tækniþiónusta. Eins hef
ur Landssími íslands innt af höndum margháttuð
tæknileg undirbúningsstörf og mælingar á móttöku-
skilyrðum vegna sjónvarosins. Þessi störf hafa öll ver-
ið innt af hendi með mikilli prýði og er þetta hlutverk
Landssímans ef til vill ekki veigaminna- en símaþjón
ust'an sjálf.
Eins os litvarpið hefur fært þióðina saman og sión
varpið einnig mun gera, hefur síminn nú í sextíu á
greitt fvrir mannlegum samskiptum, brúáð bií, flut
fret4iir og biarsað mannslífum. Á komandi árum ;
símí biónustan bæði í dreifbýli og ekki síður í þéttbýl
árejðanlega eftir að aukast enn og batna frá því sen
uú er. og að bví ber að stefna, að þessi þjónusta verð
góð og almenn og frekast er unnt.
eins
á>
október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Skólinn tekur til staría
mánudaginn 3. okt.
í barnaflokkum verður kennt í öllum
aldursflokkum allt frá 2ja ára.
í samkvæmisdönsum verður allt það
kennt sem efst er á baugi. M. a.
Hill-Bylly-sambda. HoppelPoppeL
Sportdans, og fyrir táningana Natusi.
HJÓNAFLOKKAR
STEPP.
í BEYKJAVÍK er skólinn til húsa í hinum nýju og
glæsilegu húsakinnum að Skipholti 70 og Skátaheimil-
inu.
í KÓPAVOGI verður kennt í Félagsheimilinu.
í KEFLAVÍK fer kennsla fram í Aðalveri.
Upplýsinga og innritunarsímar frá og með 25. sept.
Reykjavík: 14081 kl. 9-12 f. h. og 1-7 e. h. 30002 kl. 1-7
e. h
Kópavogur. 14081 kl. 9-12 f. h. og 1-7 e. h.
Keflavík: 1516 kl. 2-6 e. h. og 2391 kl 2-6 e. h.
Kennt veröur alþjóðadanskerfið og nemendur þjálfaðir
til að taka alþjóðadansmerkið.
Upplýsingar liggja frammi í bókabúðum og víðar.
Næst síðasti innritunardagur.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
krossgötum
★ EITT YFIR ALLA.
Ávísanir eru hæði vinsælt og
hentugt greiðsluform, og liggur þung refsing við
misnotkun þeirra. Mjög hefur verið hert á eftir-
liti í þessum efnum undanfarin nokkur ár, enda er
tortryggni í garð ávísana næstum horfin, en einu
sinni var það svo, að margir voru næstum ófáan-
legir til að taka við þeim sem greiðslu.
Mörgum viðskiptamönnum bank-
anna, þykir þó fjári hart að vera gert að greiða
háar sektir, ef þeir misreikna sig óviljandi örlítið
í hefti Sínu og gefa óafvitandi út ávísun, sem ekki
er innistæða fyrir.
Þetta kom til dæmis fyrir einn
kunningja okkar fyrir skömmu og var upphæ'ðin,
sem bankinn taldi hann hafa feilreiknað sig um
átta hundruð krónur. Þeir bankamenn segjast hafa
hringt heim til viðkomandi til að greina frá þessu,
en hann þá vinnu sinnar vegna fjarverandi. Ekki
var hægt að tjá konu hans hvernig ástatt var, held-
ur voru ávísanirnar sendar beint í innheimtu án
frekari aðgerða. Þetta fannst vini vorum lítil kurt-
eisi af bankans hálfu, sem hann hefur átt viðskipti
við í allmörg ár og velt þar all miklu fé.
★ GERA ÞARF GREINAR-
MUN.
Það er ekki glæpur þótt menn
óviljandi misreikni sig um nokkur hundruð krón-
ur, og banki, sem vill halda í viðskiptamenn sína,
ætti að gefa viðkomandi kost á að leiðrétta mis-
skilninginn áður en lengra er haldið. Það er hins
vegar að sjálfsögðu allt annað mál, ef einhver kem-
ur og leggur nokkur þúsund krónur inn á reikning
til að fá tékkhefti og skrifar svo og skrifar falskar
ávísanir svo lengi sem honum endist blek og
pappír. Það eru þeir menn, sem á að refsa, sem
vísvitandi gefa út ávísanir án þess að innistæða sé
fyrir hendi.
Sjálfsagt er vandratað meðalhóf-
ið í þessum efnum, og skylt er að taka það fram
að flestir hafa bankarnir þann sið, að gefa við-
skiptamönnum sínum kost á að leiðrétta mistök
af þessu tagi án þess að láta koma til strangra
innheimtuaðgerða og sekta, þótt það sé ekki alls
staðar gert. — K a r 1.
£