Alþýðublaðið - 01.10.1966, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 01.10.1966, Blaðsíða 16
Morgunblaðsmenn láta sér mjög •annt um þjóðlegar og alþýðlegar bókmenntir, Það birtir sálma, vís ur og kvæði um merkisatburði í sögu þjóðarinnar og er skemmst ■að minnast vígslu Skálholtskirkju Annar er og menningarauki blaðs ins sem vert er að drepa á. Það eru minningar - og afmælisgrein ar um stóðhryssi. Eiga þær sér fáa jafnmaka, nema ef vera skyldi Storkurinn í Dagbókinni. Öllu «nerkilegra er þó. að greinar þess ar hafa orðið skáldmennum vorum «ivatning; þær hafa lyft þeim upp í æðra veldi í kveðskaparsögu landsins; hafið skáldin upp úr logn mollu hversdagsleika sjónvarps og lítvarps. Morgunblaðsmenn geta því þegar fram líða stundir, stát að sig af því að hafa haft lieilla rænleg áhrif á andlegt líf alls þorra manna. í gær birtjr blaðið eina drápuna enn. Kveður hana Stefán Rafn, sem mun vera eitt kunnasta af- mælisvísnaskáld íslendinga. Fjall nr flokkurinn um færleikinn Faxa tvítugan að aldri, velkynjaðan og graðan. Eru vísurnar ortar af isnilli þess manns, sem stöðugt hef- ur Morgunblaðið fyrir augunum. Stefán hefur bersýnilega orðið fyr ir áhrifum af öðrum skáldmæring um, er beita svipaðri tækni: Rím skáldsins er og frábært. Tvær hend ingar þykja okkur þó bera af: I HAFNARSTRÆTI. Vaxinn er ég í volæði og synd og verð að dufti og ösku. Ó sæla heimsins svalalind í svartadauðaflösku. Kveðja vindar rámri raust rímur í öllum skotum. Nú er komið hrímkalt haust og hjálpræðið á þrotum. Innan í mér og allt um kring eilííur ríkir vetur. í Hafnarstræti ég stend og syng. Styðji mig sankti Pétur. „Þorvaldi svo vegni vel,/veiði stóra laxa“, og í annarri vísu: : „Það eru taldir miklir menn /sem * mega hesti ríða.“ Tilefni vísnanna væri bók , menntafræðingum vorum verðugt rannsóknarefni. Það sýnir gerst hversu mikil áhrif fornbókmennt ir vorar auk Morgunblaðsins hafa haft á hug skáldsins, því að Stefán Rafn segir svo í inngangsorðum sínum að kvæðinu: . „Svo var það nóttina milli 22. og 23. september (Er liðin voru nákvæmlega 725 ár frá vígi Snorra Sturlusonar, ef ég man rétt), að mig dreymdi þá félaga Þorvald og Faxa. Man ég drauminn glöggt en sleppi honum hér. Morguninn eftir orti ég svo eftirfarandi vísur.“ Baksíðan vill hér með vekja at hygli á skáldskap þessum. Hann er mikill að vöxtum og öllum fjól um fegurri, svo gripið sé til sam líkinga. Væri ekki ur vegi, að Sigurður A. Magnússon minntist á vísnagerð af þessu tagi, þegar hann hripar næst niður í norræn tímarit yfirlitsgrein um íslenzk ar samt:mabókmenntir, því að vís urnar marka tímamót í íslenzkri kveðskaparíþrótt í dag, alveg eins og leikritið Gesta'gangur olli straumhvörfum í íslenzkri leikrit un á sínum tíma. Nei, takk, þess þarf ekki með. Við þurfum bara að ýta á húninn. Ummæli um bækur han« hafa verið góð. Til dæmis segir síra Benjamín Kristóánsson: „Ýms ar setningar eru svo snjallar, aS vel sæmdi hverjum miklum rit höfundi“. Og hann nefnir. nokk ur daefmi. „Ilann beið heim- komu konu sinnar með jafw mikilli óþreyju og sakamað ur bíður dóms“ „ Hann kysstt hana meff jafnmikilli áfergju tag svangur hundur rífur í sig góðmeti.“ Auglýsing í Mogga. Mér varð nú ekki um sel er ég las Tímann í gær og sá: „Ein af aðalljóðabókum forlagsins verða endurminningar foreldra Guðmundar Kamban, Gísla Jónssonar alþm. og þeirra syst kina.“ Kellingin þóttist vera spök um daginn þegar hún sagði við kallinn: „Ég veit ekki hvers vegna ég skil ekki við þig.“ MEY álítur að það sé megn asta óréttlæti að félagið fái ekki að senda fulltrúa á þing ASI eins og önnur stéttarfél

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.