Alþýðublaðið - 01.10.1966, Side 14
JSkuldabréf
Framhald af 3. síðu.
að skipta stærri bréfastærðum í
minni bréf við Seðlabankann.
Getur það verið hentugt, þegar
eigandi vill selja eða fá innleyst-
an hluta af skírteinaeign sinni.
Hins vegar getur eigandinn hald-
Ið bréfunum allan lánstímann,
sem er 12 ár, og nýtur hann þá
fullra vaxta og verðtryggingar allt
það tímabil.
3) . Verðmæti skírteinanna, tvö-
faldast á tólf árum. Vextir og
vaxtavextir af skírteinunum leggj-
■ast við höfuðstól, þar til innlau
fer fram. Sé skírteinunum haldið
í 12 ár tvöfaldast höfuðstóll
þeirra, en það þýðir 6% meðal-
vexti allt lánstímabilið. Ofan á
innlausnarupphæðina bætast síð-
an, eins og áður segir, fullar verð
uppbætur samkvæmt vísitölu
byggingarkostnaðar.
4) . Skattfrelsi. Skírteinin njóta
aiveg sömu fríðinda og sparifé
við banka og sparisjóði, og eru
þannig undanþegin tekju- og
eignarsköttum, svo og framtals-
skyldu.
5). Hagstæðar bréfastærðir.
Lögð er áherzla á, að þessi bréf
verði að stærð hagstæð öllum al-
menningi. Verða bréfin í tveimur
stærðum 1.000 og 10.000 krónu
bréf.
Eins og þessi lýsing á skilmál-
um spariskírteinanna ber með
sér, eru þau mjög hagstætt
spariform fyrir allan almenning.
Sérstaklega verður að telja hag-
stætt það einkenni skírteinanna,
að endurgreiðsla þeirra ásamt-
vöxtum er bundin vísitölu bygg-
ingarkostnaðar. Eitt megintak-
mark fjölda fólks, er að safna
sparifé til að geta komið sér upp
eigin húsnæði. Á þetta ekki sízt
við um ungt fólk. Þessi spariskír-
teini ættu að henta sérstaklega
vel í þessu skyni, þar sem þau
veita sömu verðtryggingu, eins
og fengist með því, að sama fjár-
hæð yrði þegar í stað lögð í fast
eign. Börn og unglingar, sem skír-
teinin eignast, geta því litið á
þau, sem fyrsta skref í þá átt að
eignast eigið húsnæði.
Annað atriði, sem miklu máli
mun skipta og var algert nýmæli
hér á landi með fyrri spariskír-
teinaútgáfum ríkissjóðs, er að
hægt er að innleysa bréfin, hve-
nær sem er, eftir að lítill hluti
lánstímans er liðinn. Þar sem
enginn skipulegur verðbréfamark
aður hefur verið hér á landi und-
anfarin ár, hefur verið mjög erf-
itt fyrir almenning að kaupa verð-
bréf, þar sem ekki hefur verið
hægt að selja þau, þótt eigánd-
inn þyrfti nauðsynlega á fjárhæð-
inni að halda. Spariskírteini eru
innleysanleg, hvenær sem er eftir
þrjú ár, en eftir þann tíma geta
eigendur skírteinanna fengið full-
an höfuðstól eignar sinnar ásamt
vöxtum og hugsanlegum verð-
bótum, ef þeir þurfa á að halda.
Athygli er vakin á því, að bank-
ar og stærri sparisjóðir taka að
sér geymslu verðbréfa fyrir al-
DANSSKÓLI
HEIÐARS ÁSTVALDSSONAR.
SÍÐASTI INNRITUNARDAGUR
INNRITUN:
Reykjavík:
Símar 2-03-45, 1-01-18 (kl. 1-7)
og 1-31-29.
Kópavogur:
Símar 3-81-26 (kl. 1:7) og 1-31-29
(kl. 1-7).
Hafnarfjörður:
Sími 3-81-26 (kl. 1-7).
Keflavík:
Sími 2097 (kl. 3-7).
AFHENDING SKÍRTEINA FER FRAM:
í Reykjavík að Brautarholti 4 sunnu
daginn 2. október og mánudaginn 3.
október frá kl. 1-7 e. h. báða dagana.
í Kópavogi í Félagsheimilinu (neðri
sal) sunnudaginn 2. okt. kl. 3-7 e.h.
í Hafnarfirði í Góðtemplarahúsinu
föstudaginn 7. okt.
í Keflavík í Ungmennafélagshúsinu
mánudaginn 3. okt. kl. 3-7 e. h.
MUNIÐ AÐ í DAG ER SÍÐASTI INNRITUNARDAGURINN.
menning gegn sanngjörnu gjaldi.
Um nánari skilmála skírtein-
anna vísast til útboðslýsingar, sem
birtist í dagblöðunum sl. föstu-
dag.
Spariskírteinin verða til sölu í
viðskiptabönkum, bankaútibúum,
stærri sparisjóðum og hjá nokkr-
um verðbréfasölum í Keykjavík.
Vakin er athygli á því, að spari-
skírteini eru einnig seld í af-
greiðslu Seðlabankans, Ingólfs-
hvoli, Hafnarstræti 14. Hefst sal-
an, eins og áður segir, næstk.
mánudag, 3. október.
Drykkjarvatn
Framhald af 3. síðu
Fecal getur þýtt grugg, botnfall
eða jafnvel saur, svo að þar er
skiljan lega lítt aðlaðandi fyrir ís
firðinga að svala þorsta sínum
með vatni .,Coligerlar“ geta vald-
ið allskonar óþægindum, m.a.
magakveisum enda mun það tíður
kvilli í bænum. Á fundi bæjar-
ráðs var samþykkt að fela bæjar-
stjóranum Jóhanni Einvarðssyni
að athuga málið og kanna leiðir
til úrbóta. í rauninni er vandséð
um hverjar þær geta orðið aðrar
en að setja klór í vatnið, en það
er algert neyðarúrræði. Sigurður
Pétursson, gerlafræðingur, fer
væntanlega til ísafjarðar innan
skamms til að taka fleiri sýnis-
horn, kanna málið frekar og reyna
að finna einhverja leið út úr ó-
göngunum.
Vitni óskast
Rvík, — ÓTJ.
Föstudaginn 23. mánaðar slas
að'ist kona alvarlega er hún varff
fyrir bifreið á Suffurlandsbraut
rétt hjá stræftisvagnafaiðskýli. í
skýlinu stóff kona sem aff öllum
likindum hefur séff slysiff, en hún
var farin áffur en lögreglan kom
á staffinn. Rannsóknarlögreglan
biffur hana vinsamlegast að hafa
samband viff Torfa Jónsson í síma
21100. Laugardaginn í fyrri viku
varff svo árekstur milli Fiat og
Vauxhali bifreiffa á mótum Lauga
vegar og Laugarnesvegar. Tveir
drengir voru Vitni aff árekstrinum
og gáfu Iögreglunni nöfn sín. Nú
vildi svo óheppilega til aff miff
inn meff nöfnum þeirra glataffist,
oíg eru þeir því vinsamlegast
beffnir aff hafa samband viff rann
sóknarlögregluna einnig í sima
21100.
FRAMTÍÐIN
Framhald af 2. síffu.
rós Sveinsdóttir, Guðríður Elías
ídóttir, Guðbjörg Guðjónsddttir,
María Jakobsdóttir, Halldóra
Bjarnadóttir og Málfríffur Stefáns
dóttir. Til vara: Ásta Jónsdóttir,
Hildigunnur Kristjánsdóttir, Rakel
Bjarnadóttir, Kristín Þorsteinsdótt
ir, Gíslína Gísladóttir og Sigríff
ur Björnsdóttir.
RUDOLF HESS
Framliald af 2. síffu.
aldri, situr nú einn eftir í
í fangelsinu. Vesturveldin
vilja að lionum verði sleppt
úr lialdi en Rússar vilja ekki
fallast á það. Hess var
dæmdur í ævilangt fangelsi
í stríðsglæparéttarhöldunum
í Núrnberg 1946. Von
Schirach og Speer hafa nú
afplánað sinn dóm, sem var
20 ára fangelsi.
NÁMSíSEH)
Framhald af 2. síffu.
drengjum. Hráefnin sem notuð
eru við vinnsluna eru tiltölulega
ódýr, en koma þarf upp þar tii
gerðum brennsluofnum í kennslu
stofum til þess að þessi kennsla
geti farið fram. Nemendur nám
■skeiðsins hafa reynzt mjög á-
hugasamir og hafa þrátt fyrir stutt
an n'ámstíma gert marga fallega
gripi, Eru það einkum skartgrip
ir sem þeir hafa búið til, svo sem
armbönd, nælur, skyrtuhnappar og
slíkt. Einnig er hægt að gera skál
ar og öskubakka og sitthvað fleira
í smelti. Aðferðin er sú að glerj
ungur í ýmsum litum er brennd
ur á málm, oftast kopar, og eru lít
il takmörk fyrir möguleikum efn
isins sé tæknileg kunnátta og list
rænir hæfileikar fyrir hendi.
HÚS REIST
Framhald af 3. síffu.
ekki sé varlegar farið með dýra
hluti.
Og hvað er áætlað kostnað-
arverð hússins?
Það er ekki svo gott að segja
um það enn, vinnukostnaðurinn
reiknast sér og við vitum ekki,
hvað hann verffur mikill. En
við verðum fyrir vonbrigðum,
ef að kostnaður fer yfir 900
þúsund.
Og svo ræðum við aðeins
við norsku byggingamennina og
þeir segja okkur að húsið sé
smíðað hjá byggingameistaran-
um Oskar Drivflaadt í Sta-
vanger og hjá honum séu smíð-
uð þrjú slík hús á dag. Og hús-
in kallast Joku-hús.
■tf. r
m 14 1. október 1966
9*.
Vöruf/utningar í /ofti eru viðskiptaháttur nútímans
Þér sparið
tíma
Það eru
klukkustundir
í stað daga,
þegar þér
flytjið vöruna
meö
Flugfélaginu.
Þér sparið
fé
Sérfarmgjöld'
fyrir sérstaka
vöruflokka,
örari umsetn- ^
ing, minni ‘1
vörubirgðir. >
Þér sparið
fyrirhöfn
Einfaldari
umbúðir,
auðveldari
meðhöndlun,
fljót
afgreiðsla. -
:x T1
T 1
1
JL X
Flugfélagið heldur uppi áætlunarflugi milli íslands og
mikilvægustu viðskiptamiðstöðva íslendinga íEvrópu
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ