Alþýðublaðið - 12.11.1966, Síða 6
/
iaaaES2S3B^5aasaa
Næstg dráttur í Happdrætti Al^ýðubiaðsins verSur 23. des-
ember. Þá eru hvorki meira né minna en þfár bsfreiðir í boði,
liver annarri glæsiiegrs: Hilmann Bmp. Vauxhall Viva og volks
wagen. IVðiðinn kostar aðeins 1$© kr. og er hér þvi um ein-
stætt tækifærs að ræéa. Skrifstofan er að Hverfisgötu 4 og
síminn er 22710.
Volvo-verksmiðjurnar 40 ára
Þær voru stofnaðar 1926, og þeg
ar á árinu 1927 voru framleiddar
297 bifreiðir, en nú er framleiðsl
an að nálgast 200 þúsund bifreiðir
á ári, bæði af fólksbifreiðum, Stat
ionbifreiðurn, vörubifreiðum, lang
ferðabifreitum og strætisvögn-
um ,en allar þessar gerðir eru
framleiddar hjá Volvo verksmiðj
unum.
Volvo bif reiðir hafa unnið fjölda
keppna víðsvegar í heiminum, og
fengu þann heiður á því ári 1965
að fá heimsmeistaratitilinn fyrir
flestar keppnir unnar. Þær keppn
ir sem aðallega réðu þar úrslitum
og Volvo bifreiðir höfðu verið
fyrstar i, voru sænska keppnin, er
Volvo vann bæði 1964 og 1965,
Safari-keppnin, Kanada-keppnin
og Lies-keppnin ,en verðlaunun
um var úthlutað í sambandi við
RAC brezku keppnina. Ennfremur
hefur Volvo unnið Akropolis-keppn
ina, Miðnætursólarkeppnina o.fl.
Aðalstöðvar og stærsta verk-
smiðjan eru staðsettar á Hissingen
eyju í Gauta’borg, en samsetning-
arverksmiðjur eru í Kanada, Belg
íú, Peru, íran, Casablanca, og nú
bætist ein við í Malasíu, og hef
ur þetta aukið mikið á fram-
leiðslu og sölu Volvo bifreiðanna
í heiminum. Til marks um það hve
mikil gæði, öryggi, viðbragðs
flýti og annað er Volvo bifreiðir
hafa er að Volvo bifreiðir eru
nú mjög viða seldar sem lögreglu
bifreiðir og á árinu 1965 keypti
sænska ríkislögreglan 600 Volvo
bifreiðir af mismunandi gerðum
en önnur lönd þar sem Volvo
bifreiðir eru mikið notaðar sem lög
reglubifreiðir eru: Þýzkaland,
Grikkland, Perú, Chile, Nígería,
Sviss, Holland, Belgía og öll Norð
urlöndin, svo og England og jafn-
vel hér á landi eru 7 Volvo bif
reiðir í notkun hjá lögreglunni.
í ár eru 10 ár liðin frá því að
framleiðsla hófst á Amazon, fólks
og Stationbifreiðum og á þessu ári
höfðu verið framleiddar hálf milj
ón Amazon bifreiða.
Þrátt fyrir minnkandi sölu bif
reiða í Svíþjóð á þessu ári, eða
um 30% samanlagt, hefur sala
Volvo bifreiða aukizt og skrásetn
ingar Volvo á þessu ári eru 23%
af öllum skrásettum fólksbifreið
um þar.
í Danmörku hefur salan á Vol
vo í tvö ár tvöfaldast, eða á
fyrstu nju mánuðum þessa árs
höfðu 7400 Volvo Amazon bif-
reiðir verið skrásettar á móti
3700 á sama tíma árið 1965. í
Norelgi er Volvo í þriðja sæti með
4,300 Amazon bifreiðir, skrásett
ar á fyrstu níu mánuðum þessa
árs, það er aukning úr 4,6% af
skrásettum bifreiðum fyrir árið
1965 í 9,2% í ár. í Bandaríkjun-
um hefur aukning á sölu Volvo
bifreiða orðið um 40% frá árinu
1965.
Á íslandi er st.öðug aukning á
sölu á Volvo bifi'eiðum og skrá-
settar Volvo bifreiðir hór nú munu
vera um 1500 talsins, enda má
segja að það sé sjaldgæft að sá
sem einu sinni hefur keypt Volvo
kaupi ekki Volvo aftur,
enda margir Volvo eigendur í
dag sem keyra nú á sinni þriðju,
fjórðu ,eða fimmtu bifreið síðan
árið 1955, en þá var allríflegur
innflutningur til landsins.
Wt! jjyv