Alþýðublaðið - 12.11.1966, Síða 7
Hin nýja björgunar- og sjúkrabifreið við komuna Frá komu björgunar- og sjúkrabifreiðarinnar. Bj
Björgunar- og sjúkra-
bifreið til Akraness
Akranesi 9 nóv. — Hdan
S.l. mánudag kom til Akraness
ný björgunar- og sjúkrabifreið,
en eigandi hennar er Slysavarna
deildin HJÁLPIN á Akranesi.
Hin nýja bffreið, sem er af
rússneskri gerð kostaði 190 þús.
kr. smíðuð sem sjúkra- og björg
unarbifrei'ð og er með drifi á öll
um hjólum. í bifreiðinni er hægt
að shafa 4 sjúkrakörfur, eða 14
menn með öllum útbúnaði til leit
ar auk annars útbúnaðar, sem þar
er ætlað að vera eins og t.d. súr
efnistækja o.fl.
Eins og áður er sagt kom hin
nýja bifreið til Akraness sl. mánu
dagskvöld, og af því tilefni voru
nokkrir meðlimir úr björgunar
sveit deildarinnar samankomnir
við Berjadalsá þar sem þeir veittu
•oifreiðinni móttökuj jFdrmaður
Hjálpar, Björn Pétursson af-
henti Gunnari Bjarnasyni for-
manni björgunarsveitarinnar hina
nýju bifreið til afnota og auk þess
talaði sóknarpresturinn á Akra-
nesi, séra Jón M. Guðjónsson
í slysavarnadeildinni Hjálp eru
tæplega 500 félagar og fyrir þrem
árum var starf deildarinnar end
urskipulagt og komið á stofn sér
stakri björgunarsveít. í þeirrij
sveit eru 30 menn, sem síðan skipt
ast í 4 hópa: í sjóbjörgun
arsveit eru 8 menn, sveit sjúkra
liða skipa 6 menn, þá er 8 manna
hópur fjalla- og klifurmanna og
að lokum fjarskipta- og tækja
flokkur er 6 menn skipa.
Fyrir hverjum hóp er sérstakur
flokksforingi, en formaður sveit
arinnar er eíns og áður er sagt,
Gunnar Bjarnason bifvélavirki.
Björgunarsveitin hefur starfað
mjög vel og hefur lagt á það meg
ináherzlu, að koma, sér upp tækj
um og útbúnaði, er að sem beztu
gagni mætti koma, og er hin nýja
bifreið einn áfangi í þeirri við
leitni deildarinnar, jafnframt því
sem meðlimir björgunarsveitarinn
ar hafa haldið uppi öflugu fé
lagsstarfi. Á árinu hafa þejr hald
ið 14 æfingar við mismunandi veð
urskilyrði m.a. í óbyggðum, auk
þess sem þeir hafa lagt mikla
áherzlu á það, að þjálfa hvern
meðlim sérstaklega til sins starfa.
Er svo komið áð í dag er hægt
að kalla út þjálfaða og vel út-
búna björgunarsveit á Akranesi
á c.a. 15 mín. ef slys eða annað
ber að höndum.
SMURSTðÐlN
Sætúni 4 — Sími 18-2-27
BOtbm er smurður fljðft ug Td.
8tíjmn allar tcEuaair af stnuralíu'
örn Pétursson form. Hjálpar afhendir bifreiðina.
Samið við lan Smith
STJÓRN Wiisons hefur ekki
tekizt að eiða þeim ótta Afríku
ríkja, að hún hyggist komast að
samkomulagi við stjprn Ian
Smitljs í Rhodesíu. Nú hefur
þessi ótti einnig gripið um sig í
Verkamannaflokknum. Óttazt er
að hvíta minnihlutanum í Rhodes,
íu verði gert kleift að stjórna
landinu um ófyrirsjáanlega fram
tíð, ef friðmælzt verður við hana
Nýlega setti brezka stjórnin
„endanleg” skilyrði fyrir lausn
Rhodesíudeilunnar, og svar hef
ur borizt frá Smith. Wilson og
ellefu ráðherrar hans hafa fjallað
um svarið á þriggja tíma fundi
Einhvern næstu daga mun Wils
on síðan gefa yfirlýsingu í Neðri
málstofunni um stefnu Breta í dell
unni, en enn virðist útilokað, að
hervaldi verði beitt eins og Afr
íkuríkin hafa krafizt.
í Neðri málstofunni hefur hinn
nýi samveldisr^ðherra, Herbert
Bowden, enn vísað á bug ítrekuð
um kröfum um, að hervaldi verði
beitt til að víkja Smith-stjórn
inni frá völdum. Þótt málið hafi
sennilega aldrei verið vandmeð
famara, þar sem aðejns eru
þrjár vikur þangað til úrslitakost
ir brezku stjórnarinnar renna út,
þá hafa hinar margendurteknu
yfirlýsingar stjórnarinnar um,
að hervaldi verði ekki beitt gegn
stjórn Smiths, aukið grunsemdirn
ar um að verið sé að makka að
tjaldabaki og að álit almennings í
Afríku og öllum heiminum sé að
engu haft.
★ SEGIR CARADON AF
SÉR?
Um 70 þingmenn Verkamanna
flokksins hafa sent stjórn Wil
sons tvær áskoranir þess efnis
að Rhodesíu verði ekki veitt sjálf
stæði fyrr en meirihlutastjórn hef
ur verið komið á laggirnar, og að
slíkri meirihlutastjórn verði kom
ið á laggirnar á tíu ára timabili.
Hingað til hefur Wilson notið
trausts langflestra þingmanna
verkamannaflokksins í Rhodesíu
málinu. En sú staðreynd, að Wil
son hefur verið varaður við að
slá af þeim grundvallarskilyröum
sem Bretar hafa sett til lausnar
Rhodesíudeilunnar, sýnir, að þetta
traust hefur beðið hnekki.
Kvíði sá, sem nú gerir vart við
sig r Verkamannaflokknum, á sum
part rót sína að rekja til kvitts
um að sendiherra Breta hjá SÞ
Caradon lávarður (sem áður hét
Sir Hugh Foot og var um skeið
landsstjóri á Kýpur) hafi hótað að
segja af sér ef gerður verði
Múnchensamningur” við Smith-
stjórnina.
Caradon lávarður hefur varið
stefnu stjórnar sinnar á vettvangi
i SÞ með oddi og egg, enda þótt
vitað sé að hann hafi aðrar skoð
anir á málinu. Hann lítur svo á, að
IAKI SMITM
of langt hafi verið komið til mótp
við Smith-stjórnina. Ef Wilson
gerir róttækari ráðstafanir til að
binda enda á deiluna við hvíta;
minnihlutann í Rhodesíu er talið
að Caradon lávarður segi af sér.
Á Allsherjarþinginu er enp
fjallað um þá ályktunartillögu Afr
íkuríkja og Asíuríkja að Allsherj
arþingið skori á brezku stjórnink
að beita hervaldi gegn , Smitii-
stjórninni. En þessi tillaga hef
ur mætt töluverðri mótspyrnu
vestrænna ríkja.
Sendiherra Danmerkur hjá Sþ
Hans Tabor, hefur látið svo um
mælt, að ekki skuli beita valdi
meðan einhver von sé til þess að
leysa megi vandamálið með öðr
um hætti. í umræðum eftirlits
nefndar Allsherjarþingsins um
málið skoraði hann á aðra full
trúa í nefndinni að láta ekki til
finningarnar stjórna sér og hann
mælti með því að Öryggisráðið
fyrirskipaði bindandi efnahagsleg
ar refsiaðgerðir gegn Rhodesíu.
Fulltriiar margra annarra vest-
rænna ríkja hafa tekið í samá
streng.
En ef Wilson víkur frá þeirri
stefnu, sem fylgt hefur verið til
þessa í Rhodesíudeilunni og slak
ar á þeim grundvallarskilyrðum
sem Bretar hafa sett til að komast
að samkomulagi við Smith-stjórn
ina ,hlýtur stjórnmálaferill Wil
sons að komast í hættu. En ó-
líkicgt er að Wilson taki upp ger
samlega nýja stefnu hversu á-
kaft sem brezka stjórnin óskar að
binda enda á Rhodesíudeiluna.
Aðalfundur
í Vestmannaeyjum
Aðalfundur Alþýðuflokksfélag^
Vestmannaeyja verður haldinn
að Hótel H.B. í Vestmannaeyjum
næstkomandi laugardag kl. 5 síð
degis.
Venjuleg aðalfundarstörf
Kosning fulltrúa á flokksþing
Alþýðnflokksins.
T
12. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ