Alþýðublaðið - 12.11.1966, Side 9
SJONVARP FYRIR
ALLA LANDSMENN
Þegar ríkisstjórnin ákvað fyr-
ir tveim árum að beita sér fyrir
því, að komið yrði á fót íslenzku
sjónvarpi, var sú ákvörðun
byggð á því, að aðflutningsgjöld
af innfluttum sjónvarpstækjum
skyldu ganga til greiðslu á stofn-
kostnaði sjónvarpsins, en tekjur
af árlegum afnotagjöldum og
auglýsingum skyldu standa und-
ir kostnaði við rekstur. Ríkis-
stjórnin fór því fram á það við
Alþingi, að hún fengi heimild
til þess að nota aðflutningsgjöld
af innfluttum sjónvarpstækjum
til greiðslu á stofnkostnaði íá-
lenzks sjónvarps. Samþykkti Al-
þingi þetta. Síðar samþykkti rík-
isstjórnin að nota þessa heimild
frá 1. júlí 1964.
í framhaldi af þessu samþykkti
ríkisstjórnin tillögur mínar um,
hvernig fyrstu framkvæmdum
skyldi hagað. Hef ég áður gert
grein fyrir því hér á hinu háa
Alþingi. Ákveðið var, að fyrstu
framkvæmdir væru við það mið-
aðar að reisa 500 watta sendistöð
í Reykjavík. Síðan yrði næsta
sporið að reisa 5.000 watta sendi-
stöð á Skálafelli, en hún myndi
ná um Suðurnes, mestallt Suður-
landsundirlendið, Borgarfjörð og
sunnanvert Snæfellsnes eða til
um það bil 60% þjóðarinnar, auk
þess sem hún næði til endurvarps
stöðva, er síðar yrðu byggðar í
Stykkishólmi, Húnaþingi, Skaga-
firði, og Eyjafirði. Yrði það lát-
ið fara eftir fjárhagsgetu sjón-
varpsins sjálfs, hvenær Skála-
fellsstöðin yrði byggð, og sömu-
leiðis, hvenær byggðar væru
endurvarpsstöðvar, er endurvörp-
uðu sjónvarps^fninu um landið.
Gylfi Þ, Gíslason.
í skýrslu Sjónvarpsnefndarinnar
svokölluðu, sem skilaði áliti i
marz 1964, var gert ráð fyrir því,
að höfuðstöðvar þess kerfis, sem
dreifði sjónvarpsefninu um land-
ið, yrðu á Skálafelli, í Stykkis-
hólmi, á Vaðlaheiði, Fjarðarheiði
og Hjörleifshöfða, og yrðu þær
5.000 wött að styrk. Gerði nefndin
ráð fyrir því, að þær myndu kosta
um 9 millj. hver eða 45 millj. kr.
samtals. Auk þeirra yrðu síðan
margar minni stöðvar, ýmist 500
wött, 100 wött e'ða örsmáar stöðv-
ar 1—10 wött. Áætlaði nefndin, að
heildarkostnaður dreifikerfisins
um landið yrði 180 millj. kr.
Þessar frumáætlanir Sjónvarps
nefndarinnar hafa ekki enn verið
endurskoðaðar. En með hliðsjón
af þeirri reynslu, sem fengizt hef
ur og byggingu Reykjavíkurstöð
varinnar má gera ráð fyrir því að
endurskoðun þessara áætlana leiði
til mjög verulegrar hækkunar.
Hinn 1. október síðastliðinn var
hreinn stofnkostnaður Reykjavík-
urstöðvarjnnar orðin 38.4 millj.
kr. Hin er ekki fullgerð enn. Er
áætlað að hún geti orðið fullgerð
um næstu áramót og muni þá
kosta 57.4 millj kr. Þótt hún megi
megi þá teljast fullgerð, verð-
ur þó sjálfsagt einhver aukn
ing nauðsynleg síðar meir.
Hér er u.m að ræða beinan stofn
kostnað, þ.e. kostnað við tæki og
húsnæði. En áður en sjónvarpssend
ingar gætu hafist, varð að sjálf
sögðu að leggja í margs konar und
irbúningskostnað, fyrst og fremst
launagreiðslur, en auk þess efnis
kostnað. Þegar tilraunasendingar
sjónvarpsins hófust 30. september
síðastliðinn, hafði slíkur undirbún
ingskostnaður numið 9,9 milljón
um króna. Ef allur reksturskostn
aður ársins 1966 er talinn undir
búningskostnaður nemur hann alls
21,7 millj. kr. Sé allur þessi und
irbúningskostnaður talinn til stofn
kostnaðar, verður stofnkostnaður
Reykjavíkurstöðvarinnar ' 79,1
millj. kr. Hér er þess þó að geta,
að ekki þarf að greiða allan þenn
an stofnkostnað þegar í stað eða
á þessu ári. Er um gjaldfrest að
ræða í sambandi við húsakaup og
tækjakaup. Það, sem greiða þarf £
stofnkostnað og undirbúnings-
kostnað til ársloka þessa árs nem
ur 70,2 millj. kr.
Til 1. október síðastliðins námu
tekjur af aðflutningsgjöldum
vegna innfluttra sjónvarpstækja
57,5 millj. kr. Til ársloka eru þess
ar tekjur áætlaðar 15,0 millj. kr.
Framhald á bls. 10
í Islenzka sjónvarpið hefur hlotið góða döma, en reyn ist dýrara en ráð var fyrir gert.
TILKYNNING
Óskað er eftir tilboðum í svonefnd „eld-
spýtnabréf“ til afgreiðslu á árinu 1967. Um
gerð og magn eru veittar nánari upplýsing-
ar í innkaupadeild vorri.
Tilboð ásamt sýnishornum berist skrifstofu
vorri í lokuðu umslagi eða pakka fyrir 31.
des. 1966.
Tilboð, er þegar hafa 'borizt óskast endurnýj-
uð fyrir sama tíma.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er, eða hafna öllum. Tilboðin verða opn-
uð á skrifstofu vorri, fimmtudaginn 5. jan-
úar 1967 kl. 10.30 f. h.
Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.
Ódýr reiðhjól
Seljum næstu daga nokkur lítið gölluð
drengja- og telpna reiðhjól (fyrir 7-11
ára).
Reiðhjólaverzlunin
Ö R N I N N
Spítalastíg 8.
/ SMÍÐUM
2 glæsilegar 5-6 herbergja íbúðir á góðum stað
í Garðahreppi til sölu. Seljast fokheldar ásamt
bílskúrum. Fallegt útsýni.
Upplýsingar í síma 51787,
eftir kl. 7 á kvöldin.
Námskeib í
vinnurannsóknum
fyrir trúnaðarmenn verkalýðs- og vinnuveit-
enda í vinnurannsóknarmálum verður haldið
í IMSÍ dagana 28. nóv. — 10. n. k. Þetta verða
heilsdagsnámskeið, sem miðast við að gera
þátttakendum kleift að skilja og meta vinnu-
rannsóknagögn og gera samanburðarathug-
anir.
Umsóknarfrestur er til 21. nóv, nk.
Umsóknáreyðublöð og nánari upplýsingar
eru látnar í té í
Iðnaðarmálastofnun ísland
Skipholti 37 — Rvík — Símar 19833/34.
Áskriftarsími
er 14900
12. nóvember 1966'-- ALÞÝÐUBLAÐIÐ £