Alþýðublaðið - 12.11.1966, Page 14
Umboðsmenn HAB
utan Reykjavíkur
Akranes: Helgi Daníelsson, Brekkubraut 7.
Akureyri: Stefán Snæbjörusson, Stórholti 6.
Bolungavík: Ósk Guðmundsdóttir,
Borgárnes: Grétar Ingimundarson.
Dalvík: Jóliann G. Sigurðsson.
Egilsstaðir: Gunnar Egilsson.
Eskifjörður: Bragi Haraldsson.
Eyrarbakki: Vigfús Jónsson, oddviti.
Flateyri: Emil Hjartarson.
Garður Gerðahrepp: Guðlaugur Tómasson.
Grindavík: Svavar Árnason.
Hafnarf jörður: Ingvar Viktorsson. c. o. Brunabótafél. ísl.
Hellissandur: Ingi Einarsson.
Hnífsdalur: Jens Hjörleifsson.
Hofsós: Þorsteinn Hjálmarsson.
Húsavík: Gunnar P. Jóhannesson, Skólagerði 10.
Hveragerði: Ragnar Guðjónsson, Brciðmörk 19.
ísafjörður: Bókavcrzl. Jónasar Tómassonar.
Keflavík: Hannes Einarsson, Miðtúni 5.
Kópavogur: Hörður Ingólfsson, Auðbrekku 25.
Neskaupsstaður: Sigurjón Kristjánsson, Þórliólsgötu 3.
Ytri-Njarðvík: Helgi Sigvaldsson, Hólagötu 27.
Ólafsfjörður: Sigurður Ringsted.
Ólafsvík: Ottó Árnason.
Patreksfjörður: Ágúst H. Pétursson.
Raufarhöfn: Guðni Árnason.
Reyðarfjörður: Guðlaugur Sigfússon, Brú.
Sandgerði: Kristinn Lárusson, Suðurgötu 30.
Sauðárkrókur: Brandur Frímannsson. Hólav.' 17.
Selfoss: Jóhann Alfreðsson. Austurveg 55.
SiglufjÖröur: Jóhann Möller, Laugaveg 25.
Stykkishólmur: Ásgeir Ágústsson.
Súgandafjörður: Eyjólfur Bjarnason.
Vestmannaeyjar: Hjörleifur Hallgríms. co. Verzl. Bláfell,
Faxastíg 35.
Þingeyri: Steinþór Benjamínsson.
Þórshöfn: Jón Árnason.
Önundarfjörður: Sr. Lárus Þ, Guðmundsson.
Brauðhúsið
j Laugavegi 126.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUBTERTUR
SÍMI 24631.
SERVÍETTU-
PRENTUN
Sími 32-101.
Stúdentafélag
Framhald af 2. rfðu.
Formaður Birgir ísl. Gunnar-
arson, lögfræðingur. Aðalstjórn:
Ellert B. Schram, lögfræðingur,
Friðjón Guðröðarson, lögfr., Jón
Reynir Magnússon, verkfr., Lúð-
vík Gizurarson, lögfræðingur.
Varastjórn: Jón Ólafsson, lögfr.,
Haukur Hauksson, blaðamaður,
Þór Guðmundsson, viðskiptafr.,
Benedikt Sveinsson, lögfræðingur,
Gunnar Sólnes, stud jur.
Vietcong
Framhald af 2. rfðu.
að sögn bandarísks talsmanns. Vi-
etcongmenn hörfa nú vestur á
bóginn og forðast bardaga við
bandaríska hermenn, sem veita
þeim eftirför.
í Saigon er sagt, að 14 manns
— aðallega konur og börn —
hafi beðiö bana þegar Vietcong
menn gerðu skotárás á herbúðir á
Mekongósasvæðinu í dag. Búðir
þessar voru reistar fyrir suður-
vietnamiska hermenn og fjölskyld
ur þeirra.
í Páfagarði hefur verið frá
því skýrt, að Páll páfi muni ef
til vill leggja til að hlé verði gert
á bardögum í Vietnam um iólin.
Aðferð
Framhald af bls. 1.
Aðferðin var þannig', að fiski-
Iest bátanna var hituð upp þar
til Iofthitinn var 25 gráður á Cel-
síus tækið síðan látið niður í lest-
ina, sem var vandlega lokuð, og
sett í gang. Rakaeyðingin fer
þannig: fram, að tækið dregur
loftið í gcgnum sig á þann hátt
að á leiðinni fer það í gegn um
kælivafninga, sem gerir það að
verkum að rakinn úr Ioftinu drýp
'ur niður í þar til gert ílát, en
loftinu er blásið þurru út aftur.
Þurra loftið Ieikur síðan um inn
viðina og dregur til sín rakann
úr þeim, sogast rakt inn í tækið
og þar endurtekur rakaeyðingin
sig.
Fulltrúar Samábyrgðar og
Opið til kl. 4 e.h. í dag
VEGNA
brunaútsölunnar
$
• •
KJORGARÐUR
Skipaskoðunarinnar kynntust þess
ari þurrkunaraðferð í Noregi sl.
sumar, fyrir atbeina norsks vís-
indamanns, hr. R. O. Ullevaalset-
er, sem unnið hefur undanfari ár
á vegum norska ríkisins að rann
sóknum fúavarna í norskum tré-
bátiun.
Aðilar þeir, sem standa að þess
um tilraunum gera sér góðar
vonir um að ná árangri í barátt-
unni gegn bráðafúa í tréskipum,
en hann orsakast af sveppum, sem
hafa útbreiðsluskilyrði í timbri,
sem inniheldur yfir 20% raka,
og segja má að undantekning sé,
ef innviðir íslenzkra tréfiskiskipa
hafa ekki það rakainnihald.
Verkalýðsfélög
Fr«Bih»M af hl». 1.
Sveinafélag skipasmiða
Málm- og skipasm.samb. ísl.
Félag ísl. kjötjðnaðarmanna
Starfsstúlknafélagið Sókn
Verkakvennafél. Framsókn
Félögin ráðgera að flytja
starfsemi sína að Skólavörðu-
•stíg 16 A þegar lokið verður
endurbótum og breytingum á
húsnæðinu.
Jafnframt er ráðgert að
Sparisjóður ATþýðu fái hús-
næði fyrir starfsemi sína á
sama stað.
Atvinnuleyísistryggingasjóð-
ur veitti félögunum lán til
húsakaupanna.
Olíumál
^ramhald af bls. 1.
þarna eru í uppsiglingu. Verða
fulltrúar væntanlega skipaðir
næstu daga til að ganga formlega
frá stofnun þeirra.
Magnús gat þess að lokum, að
FÍB hefði lengi barizt fyrir að fá
betra benzín á markað hér, og
virtist nú sem ioks væri aðeins
að rofa til í því máli. Þá kvað
hann marga óánægða með diesel-
olíuna, sem hér fenlgist og bæði
væri notuð til kyndingar og á
bíla. Kvað hann ýmsa telja gæði
hennar mjög léleg.
EFTA.
Framhald af 3. síðu.
'ganga erfiðlega að tryggja hag-
stæðar tilslakanir að því er varð-
ar landbúnað Breta.
Wilson og George Brown utan-
Iríkisrtáðheýria heimísækja höfuð-
borgir hinna sex aðildarríkja EBE
á tímabilinu desember til marz.
Þar með gefst þeim timi til að
kynnast afstöðu EBE-landanna í
Kennedyumferð viðræðnanna um
alþjóðatollalækkanir. Kennedy-
umferðinni á að ljúka fyrir apríl.
Bretar telja þessar viðræður mjög
mikilvægar, þar sem Bandaríkin
og samveldislöndin itaka einnig
þátt í þeim.
Kunnugir segja, að hið nýja
frumkvæði Wilsons í markaðsmál-
unum marki breytingu á stefnu
Verkamannaflokksins og afstöðu
hans sjálfs gagnvart Evrópu. Wil-
son hefur áður verið andvígur
brezkrj aðild, og svo seint sem
fyrir nokki’um dögum sagði hann,
að hann gerði strangan fyrirvara
varðandi aðild að EBE. Jafnvel
eftir yfirlýsinguna í Neðri mál-
stofunni efast margir þingmenn
um, hvort honum sé alvara, og
sumir telja að hann vilji sýna
fram á að Frakkar séu staðráðnir
í að koma í veg fyrir aðild Breta.
Þannig geti hann sýnt í eitt skiptj
fyrir öll, að brezk aðild sé ekki
tímabær.
En flestir eru'sammáia um, að
Wilson sé (hlynntur aðildinni að
EBE.
Brandt
Framhald af bls. 1
í dag, að Kiesinger hefði gefið
skýra yfirlýsingu um fortíð sína
áður en hann var tilnefndur.
Hver sá, sem kynnir sér þessa
yfirlýsingu náið og eitthvað veit
um störf Kiesingers í þágu Þýzka
lands, Evrópu og hins frjálsa
heims, lætur ekki fjarstýrðan áróð
ur leiða sig á villigötur, sagði
von Hase.
Von Hase sagði að Erhard
mundi gegna starfi kanzlara unz
ný samsteypustjórn hefði verið
mynduð.
Blöð, sem styðja jafnaðarmenn,
gagnrýndu í dag val Kiesingers,
en flest blöðin eru sammála um,
að ekki megi einblína á fortíð
hans. Blaðið Bild:Zeitung segir,
að Kiesinger hafi oft sannað að
hann sé lýðræðissinni Óháða
blaðið Die Welt segir að þeir,
sem tilnefndu hann, hafi vitað
um fortíð hans og að árásir er-
lendis frá komi ekki á óvart.
Blaðið Expressen í Stokkhólmi
segir, að það yrði mikil ógæfa
fvrir Vestur-Þýzkaland og Evrópu
ef Kiesinger yrði kanzlari. Þessi
fyrrverandi nazisti og milligöngu
maður milli utanríkisráðuneytis
Ribbentrops og áróðursmálaráðu-
neytis Göbbels sé ekki vel til
þess fallinn að taka að sér stjórn
stærsta og mikilvægasta lands Ev-
rópu. Ekki sízt með tilliti til upp
ganes nýnazista í Vestur-Þvzka-
landi að undanförnu geti tilnefn-
ing Kiesinger haft alvarleg áhrif
á ástandið í heiminum.
Blað jafnaðarmanna, Aftenblad-
et.. seeir að fortíð Kiesingers sé
ógeðfelld. Sú staðrevnd, að Franz
To«ef Strauss st.andi á bak við
Kiesinger ætti að vera nógu sterk
'dðvörun.
lesið áiþýðyblaðið
Áskrifiasíminn er 14900
Muniö merkjasölu
Blindrafélagsins á morgun.
• ■ i
BLINDRAjFÉLAGIÐ.
3,4 12. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ