Alþýðublaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 4
Eltstjðrsr: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnartull-
trói: EiSur Guönason. — Simar: 14800-14903 — Auglýoingaaimi: 14905.
ABaetur Aiþýöuhúsiu viö Hverflsgötu, Reykjavik. — Pr«ntsmlöja Alþýöu
blaöslns. — Askriftargjald kr. 95.00 — 1 lausásölu kt1. 7,00 eintaUtk
Utgcfandl Alþýöuflokkurimi.
Bisnis eða tryggingar
MEGIN undirstaða núverandi stjórnarsamstarfs hef
ur verið samkomulag Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins um að éfla almannatryggingar og auka á
ýmsan 'hétt hið svonefnda velferðarríki, sem hefur
ó þessum árum verið vaxandi í flestum öðrum ríkj-
tim. Á þessu sviði hefur mikið unnizt, sérstaklega til
hagsbóta fyrir gamla fólkið, öryrkja, barnmargar
fjölskyldur og ýmsa þá aðila, sem standa höllum
fæti. Þetta er hrein jafnaðarstefna í framkvæmd, sem
byggist á þeirri hugsjón að bæta aðstöðumun fólks
í lífsbaráttunni, að svo miklu leyti sem hann er því
ekki sjálfráður.
Nú virðist Morgunblaðið hafa fengið slæma eftir-
þanka um þessa stefnu. Það boðaði í ritstjórnar-
grein í gær, að skattar væru orðnir of háir og mætti
ekki halda áfram að auka velferð landsfólksins á þenn
an hátt. í stað þess að „skapa hér gífurlega yfirbygg-
ingu“ segir blaðið, að réttara sé að veita athafnaþrá
og starfsorku fólksins í Iandinu útrás í eigin fram-
kvæmdum og sjálf*stæðu starfi þess.“ Með- öðrum
orðum: Morgunblaðið telur rétt að auka ekki frekar
ellilaun, örorkubætur, fjölskyldubætur og sambæri-
legar greiðslur, en setja meira af fé þjóðarinnar í
bisnis.
Það er misskilningur hjá Morgunblaðinu, að hin
mikla fjáröflun frá fyrirtækjum og einstaklingum til
velferðarkerfisins og greiðslur til fólksins á sama fé,
sé „gífurleg yfirbygging“ í þjóðfélaginu. Þvert á móti
er þetta kerfi undirstaða, traust undirstaða undir
jafnari lífskjörum og réttlátara þjóðfélagi en ella
væri. Og ekki má gleyma því, að þetta kerfi .veitir
þúsundum einstaklinga aukinn kaupmátt, sem bein
ist til smákaupmanna og kaupfelaga, til framleiðenda
matvæla og annarra nauðsynja, til landbúnaðar,
neyzluiðnaðar og ótal annarra fyrirtækja. Á þennan
hátt er velferðarkerfið trygg stoð undir veigamikl-
um þáttum efnahagslífsins.
Að sjálfsögðu verður að gæta varúðar við upp-
•byggingu velferðarkerfis og stíga skref fyrir skref
éftir því sem fjárhagsaðstæður leyfa. Erfiðleikar
eins og verðbólga og aflaleysi tefja framgang máls-
ins og hefur því tekið tíma að koma kerfinu á. Þetta
'gerir Alþýðuflokkurinn sér ljóst, en hann hefur samt
reynt 'að þoka þessum málum fram við hvert tæki-
færi og náð í þeim efnum miklum árangri, ekki sízt
í núverandi stjórnarsamstarfi. Þess vegna er hryggi-
legt að lesa í Morgunblaðinu ritstjórnargrein, sem
boðar allt aðra stefnu á þeim furðulega grundvelli,
feð þjóðin eigi að gera minna fyrir gamla fólkið og
aðra, sem hafa skerta möguleika til tekjuöílunar af
óviðráðanlegum ástæðum, til þess að geta veitt meira
fé í bisnis.
HEIMSÞEKKT GÆÐAVAKA
Fæst í næstu búð.
Salt
CEREBOS í
HANDHÆGU BLÁU
DÓSUNUM.
rAT
VANTAR BLABBURBAR-
FÓLSC 8
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐBÆ, I. OG U.
HVERFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
LAUGARNESHVERFI
LAUFÁSVEG
LAUGARÁS
LAUGARTEIG
KLEPPSHOLT
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLIN
IIRINGBRAUT
LAUGAVEG, EFRI
SELTJARNARNES, L
SIMI 14900.
á krossgötum
FÉLÖG OG BLAÐAÚTGÁFA.
Hér á landi er starfandi mikill fjöldi alls-
konar félaga, stórra og smárra. Hér eru stjórnmála
félög, íþróttafélög, ungmennafélög, kvenfélög, hús-
mæðrafélög, búnáðarfélög, férðáfélög, félög um
heilbrigðis- og mannúðarmál, slysavarnafélög, ýmis
konar hagsmunafélög, taflfélög, félög rithöfunda og
iistamanna o.s.frv. Tala þeirra er legíó. Ákaflega
mörg þessara féiaga gefa út sitt eigið málgagn,
blað eða tímarit, einu sinni eða tvisvar á ári, árs
fjórðungslega eða jafnvel oftar. Það getur verið
býsna fróðlegt að glugga í allan þennan fjölda
blaða og tímarita, efni þeirra og útlit, kynna
sér útbreiðslu þeirra og eintakafjölda, fjárhags-
grundvöll og útgáfukostnað.
Fyrir nokki-um árum var haldin hér ráð-
stefna á vegum æskulýðssamtakanna í Reykjavík.
Verkefni ráðstefnunnar var að ræða um útgáfu-
starfsemi félaganna innan æskulýðssamtakanna,
m.a. hvernig hún næði bezt tilgangi sínum og
hvernig henni yrði bezt fyrir komið fjárhagslega.
F J ÁRH AGSEÍtFIÐLEIK AR.
Það kom í ijós, að útgáfa flestra blaðanna
hefur geniðmjög skryklcjótt, blöðin koma óreglu-
lega út, hætta jafnvel alveg um tíma, byrja síðan
kannski að nýju. Fjárhagserfiðleikar eru hjá flest
um þeirra, sérstaklega þeim, sem byggja á áskriftar
gjöldum einum saman. Heppilegra virðist, að út
gáfukostnaðurinn sé innifalinn í félagsgjaldinu.
Með því móti nær blaðið líka til allra sem í félag
inu eru, aukafyrirhöfn við innheimtu sparast og
tekjustofninn er öruggari. Yfirleitt er upplag þess
ara blaða frekar lítið. Þá kom og í ijós, að um
brot og útlit blaðanna er mjög misgott, sömuleið-
is pappír og prófarkalestur. Ég skal geta þess til
gamans, að ýmsum þótti Árroði, blað SUJ, mjög
til fyrirmyndar að þessu leyti.
Um efni félagsblaðanna er það að segja, að
yfirieitt er það bundið við þröngt áhugasvið hvers
einstaks félags, sem eðlilegt má teljast.
Hér hefur verið drepið á nokkur atriði í
útgáfustarfsemi hinna ýmsu félaga í umhugsunar
fkynj. Félagsblöðin hafa þýðingarmiklu hlutverki
að gegna hvert á sínu sviði, en nauðsynlegt er að
livert félag sníði sér stakk eftir vexti í þessum efn
um og reisi sér ekki hurðarás um öxl í útgáfustarf
seminni. í sumum tilfellum mundi lítið og ódýrt
félagsbréf nægja. En umfram allt þurfa félögin að
vanda til blaðaútgáfunnar á allan hátt, bæði hvað
efni og frágang snertir, svo að viðtakandi hafi nokk
urt gagn og ánægju af að fá blaðið í hendur hverju
sinni. —• Steinn.
4 16. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ