Alþýðublaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 10
Brunavarðastöður Ákveðið hefur verið að fjölga brunavörðum í Slökkviliði Reykjavíkur frá 1. janúar 1967 að telja. Samkvæmt 10.g gr. Brunamálasamþykktar fyrir Reykjavík má ekki skipa í stöður þessar aðra en þá, sem eru á aldrinum 22-29 ára. Þeir skulu hafa óflekkað mannorð, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, og hafa fulla líkams- og starfs- orku. Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna Reykjavíkurborg ar. Eiginhandar umsóknir um stöður þessar ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil sendist undirrituðum fyrir 12. des- ember n. k. 29. nóvember 1966. Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík. Tilkynning Samkvæmt sérstöku samkomulagi við hin Norðurlöndin eru heimiluð hrað- og forgangshraðsímtöl milli Norðurlandanna svo og til Grænlands, frá cTg jneð 1. desember 1066. Gjald fyrir hraðsímtöl er tvöfalt og fyrir forgangshraðsím- tal þrefalt venjulegt gjald. Reykjavík, 30. nóvember 1966 Póst- og símamálastjórnin. Iljartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Þórunn Kristjánsdóttir, Strandgötu 35B, Hafnarfirði, sem lézt 22. nóvember, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, þann 2. desember kl. 2. Blóm vinsamlegast afþökkuð. en þeim sem vildu minnast hinn ar látnu, er bent á Fríkirkjuna í Hafnarfirði (Minningarsjóð Guðrúnar Einarsdóttur). Eirikka Guðmundsdóttir Ólafur Kr. Guðmundsson, Jónína Guðmundsdóttir, Vilhelmína Guðmundsdóttir Stefanía Guðmundsdóttir Guðmundur Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir Jóhanna Guðmundsdóttir Guðni Guðmundsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. SViinningarorð Framhald af 6. síðu. hann um það og jafnan var hug- urinn á vinnustað. Jafnvel undir erfiðri sjúkdómslegu erlendis sl. sumar leitaði hann sér frekari þekkingar í starfi sínu til að bet- ur gengi, þegar heim kæmi. Vel- ferð og gengi fyrirtækisins var honum mikils virði, en hverri stofnun er mikill styrkur að slík- um starfsmanni. Árið 1942 giftist Gunnar eftir- lifandi konu sinni Sigríði Einars- dóttur yfirprentara Hermannsson- ar í Reykjavík. Eignuðust þau 2 dætur, Helgu gifta Sigurgeiri Steingrímssyni og Birnu ógifta. Þó að ’áhugamál Gunnars væru mörg, var velferð fjölskyldunnar honum efst í huga. Hann var frá- bær heimilisfaðir, sem áreiðan- iega verður sárt saknað. Ég hélt að leiðir mundu liggja lengur saman, en færi honum nú að leiðarlokum beztu þakkir frá okkur starfsfélögunum fyrir gott samstarf, ég persónulega sakna góðs vinar og félaga, áhuga hans og dugnaðar. Hann var aldrei hálf vojgur í starfi. Eiginkonu, dætrum, öldruðum föður og öðru skyldfóki votta ég samúð mína. í harmi er engin huggun betri en sú, að vita það, að vinir og að- standendur kveðja í dag góðan dreng, sem öllum vildi gott gera. Björn Vilmundarson ISif r ei’iia eigen «S&sr <9rautiim obt réttum Fljót afgreiðsla. ^ifreiðaverkstæðJS ^ESTUítÁS H.F •ödarvot 3«, sfaai 35740. SMURSTÖÐIN Sœtúni 4 — Sími 16-2-27 BBliim er smurðúr fljðlt off vel. Séljttm allar tcguadlr af sinurolíu Brauðhúsið Laugavegi 126. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUB SÍMI 24631. áugíýsið í á^ýkblaðinu Laust starf Brunavarnaeftirlit ríkisins óskar að ráða eftir- litsmann með brunavörðum. Áskilið er að umsækjendur séu tæknifræðing- ar eða hafi próf frá Vélskólanum í Reykjavík. Umsóknir skal senda til Brunavarnaeftirlits ríkisins, pósthólf 1128, Reykjavík, fyrir 15. desember n.k. Forstöðumaður. Öskar Pétursson sextugur í tilefni sextugsafmælis Óskars Péturssonar þ. 2. des. n.k. ætla Skátafélögin í Reykjavík, Knattspyrnufélagið Þróttur og Bandalag ísl. skáta að efna til samsætis til heiðurs Óskari í Tjarnarbúð 2- des. n.k. kl. 20.00. Þeir vinir og félagar Óskars, er vildu taka þátt í þessu hófi, eru beðnir a-ð rita nöfn sín á lista er liggja frammi í Skátabúðinni v, Snorrabraut, hj'á Guðjóni Oddssyni í Málaranum og á skrifstofu B.Í.S' Eiríksgötu 31. Stjórnir félaganna. Staba Ijósmóður í Höfða og Nesjaumdæmi , Húnavatnssýslu er laus til um- sóknar. Umsóknarfrestur er til 15. desember og skulu um sóknir sendast sýslumanni Húnavatnssýslu, er gefur nánari upplýsingar. Staðan veitist frá 1. janúar. Hér um bil allar konur í umdæminu fæða börnin í hér- aðsspítalanum á Blönduósi og er þar vel búin fæðingar- stofa. Skrifstofa Húnavatnssýslu, 26.11 1966 Jón Isberg. Bridge á laugardaginn Spilum bridge á laugardaginn kemur, 3. desember, kl. 2 e. h í Inóglfskaffi (gengið inn frá Ingólfsstræíi). Stjórnandi er Guð mundur Kr, Sigurðsson. Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. >f >f GOLFTEPPI 14 gcrðir, margir litir, ný munstur. Getum bætt við nokkrum gólfteppa- pöntunum fyrir jól. Komið og skoðið. Álafoss, Pingholtsstræti 2. 10 1 desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.